Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 63
• 7
Google vill komast inn
Sögur af Google-síma komu
fljótt eftir að iPhone var kynnt-
ur. Seinna kom í ljós að síminn
var í raun stýrikerfið Android.
Google fór þannig ekki að-
eins í samkeppni við iPhone
heldur í beina samkeppni við
Microsoft með því að bjóða
upp á stýrikerfi sem hvaða
farsímaframleiðandi sem er
gat notað. Android hefur ekki
náð jafn miklum vinsældum
meðal almennings og iPhone,
sérstaklega virðist ganga illa
fyrir Android að ná fótfestu í
Evrópu. Hins vegar eru flestir
farsímaframleiðendur með And-
roid-síma í framleiðslu. Sony
Ericsson ætlar sér stóra hluti
með kerfinu og er nú að leggja
lokahönd á X10 símann, Motorola
hefur snúið vörn í sókn með
Droid-símanum sem rokselst
í Bandaríkjunum.
Sögurnar um Google-sím-
ann sneru aftur nýverið, en
samkvæmt þeim er Google
að vinna að Android-síma í
samstarfi við framleiðand-
ann HTC, en verður engu
að síður seldur undir
merki Google. Síminn
kallast Nexus One og
hafa myndir af frumein-
tökum lekið á Netið. Ekki er
enn víst hver stefna Google er
með þeim síma, en talið er
líklegt að síminn sé hugsaður
sem sá Android-sími sem aðrir
slíkir símar verða bornir saman
við. Enda vélbúnaðurinn á þeim
símum sem hægt er að fá núna
gjarnan ansi ólíkur.
Nokia og stýrikerfin
Stærsti farsímaframleiðandi í
heims er einnig einn af þeim
sem hefur dregist einna mest
aftur úr. Símar Nokia keyra allir
á Symbian-kerfinu og hefur Nokia
sett gríðarlegar upphæðir í fyrir-
tækið. Peningarnir virðast seint ætla
að skila sér til baka. Symbian var
engan veginn búið undir þá þróun
sem átti sér stað í heimi farsíma. Í
flýti var búið til viðmót fyrir stýri-
kerfið sem ætlað var fyrir snertiskjái,
viðmót sem í alla staði þykir gallað
og óklárað.
Ásamt Symbian hafði Nokia verið
að vinna að Maemo, stýrikerfi sem
byggði á Linux og var ætlað fyrir
svokallaðar nettöflur. Maemo hefur
nú verið flutt yfir á farsímana og
verður N900 síminn sá fyrsti sem
keyrir kerfið. Af því sem sést hefur
af farsímaútgáfu Maemo verður
N900 fyrsti nútímavæddi sími Nokia
sem getur keppt keppt við iPhone
og Android.
Þróun Symbian verður
hins vegar ekki hætt og
er stefnt á að ný útgáfa
af kerfinu komist á mark-
að undir lok næsta árs.
Viðmótið verður tekið í gegn
og notkun á kerfinu verður
bæði fljótari og skilvirkari.
Nokia lendir þá í þeirri und-
arlegu stöðu að verða með
tvö stýrikerfi í beinni sam-
keppni við hvort annað.
Microsoft-menn seinir
Líkt og Nokia voru þeir hjá Microsoft
ansi kokhraustir. Windows Mobile-
stýrikerfi þeirra var keyrt í milljónum
síma um allan heim, en lítil vinna var
lögð í að betrumbæta kerfið, sem
er úrelt miðað við samkeppnina frá
Apple og Google. Microsoft leggur
nú alla vinnu í framleiðslu á Windows
Mobile 7, sem líkt og Windows 7 á
að vera talsverð breyting frá fyrri
útgáfum. Hins vegar verður
kerfið ekki tilbúið fyrr en í
lok næsta árs í fyrsta lagi.
Í millitíðinni var gefið út
Windows Mobile 6,5 sem
er í raun aðeins minniháttar
uppfærsla.
Vélbúnaðarstríð
En það er ekki aðeins nóg
um að vera í stýrikerfabrans-
anum. Vélbúnaðurinn þróast
ótrúlega hratt og fáir taka eftir
því. Fæstir vita hvaða stýrikerfi
síminn þeirra keyrir og jafnvel
enn færri hvaða örgjörvi er í
honum. Það er þó enginn skortur
á framboði og það áhugaverðasta
er að risarnir á tölvumarkaðinum
eiga í mesta basli við að komast inn
á farsímamarkaðinn. Risar eins og
Intel og nVidia sem ráða tölvumark-
aðinum framleiða bæði örgjörva og
skjáhraðla fyrir farsíma og sambæri-
leg tæki. Hins vegar eru það vörur
frá lítt þekktari fyrirtækjum eins og
ARM, Qualcomm og PowerVR sem
finna má í flestum símum þessa
dagana, en allt eru þetta fyrirtæki
sem ekki gátu keppt við risana á
tölvumarkaðinum.
Ólíkt tölvumarkaðinum eru það
minni fyrirtæki sem nú hafa yfir-
höndina, þá sérstaklega í vélbún-
aðarheiminum. Apple, Google,
Microsoft og Nokia eru alls ekki
ein í samkeppninni. Palm er bæði
með öflugan síma og stýrikerfi í
sölu, Blackberry-símarnir eru án
efa stærstir í heimi viðskiptanna
og Samsung ákvað nýlega að hella
sér í leikinn þegar fyrirtækið kynnti
Bada-stýrikerfið. Spurningin er svo
bara, hvort það sé pláss fyrir öll þessi
stýrikerfi á markaðnum?
POPPGRÆJUR: HÖRÐ BARÁTTA FARSÍMAFRAMLEIÐENDA
STÝRIKERFASTRÍÐIÐ
GOOGLE
NEXUS ONE
Google-sím-
inn ógurlegi.
Lítið er vitað
um símann
né hvenær
hann mun
koma á
markað-
inn.
Síðan iPhone kom á
markað hefur farsíma-
markaðurinn breyst ræki-
lega. Síminn var sparkið í
rassinn sem aðrir farsíma-
framleiðendur þurftu
á að halda. Síminn er
ekki lengur bara sími
heldur þarf hann að
vera myndavél,
nettengdur og
það þarf að vera
ánægjulegt að
skoða síður í
tækinu - það
nennir
enginn að
hanga á
Facebook á pínu-
litlum skjá.
SÍMAR NOKIA KEYRA
ALLIR Á SYMBIAN-KERF-
INU OG HEFUR NOKIA
FJÁRFEST GRÍÐARLEGUM
UPPHÆÐUM Í FYRIR-
TÆKIÐ. PENINGARNIR
VIRÐAST SEINT ÆTLA
AÐ SKILA SÉR TIL BAKA.
SYMBIAN VAR ENGAN
VEGINN BÚIÐ UNDIR ÞÁ
ÞRÓUN SEM ÁTTI SÉR
STAÐ Í HEIMI FARSÍMA.
SONY
ERICSSON
XPERIA X10
Sony Xper-
ia X10, fyrsti
Android-sími
Sony Ericsson
en líklega ekki
sá eini.
NOKIA N900
Nokia N900
frá Nokia, fyrsti
síminn sem
keyrir Maemo-
stýrikerfið.
MOTOROLA DROID
Motorola Droid síminn sem virðist
ætla að bjarga Motorola frá gjald-
þroti og einn helsti keppi-
nautur iPhone.
MARGT GERIST BAK-
VIÐ TJÖLDIN Í SÍMA-
BRANSANUM. FÆSTIR
GERA SÉR GREIN
FYRIR VINNUNNI SEM
LÖGÐ ER Í KERFIN SEM
KEYRA SÍMANA.