Fréttablaðið - 18.12.2009, Qupperneq 66
10 •
Bergur Ebbi: „Segðu mér, nennir þú
að taka svona viðtal – í ljósi þess að
við erum þrír og erum að fara að
tala ofan í hvern annan – og skrifa
þetta upp?“
Hvað á ég að gera? … Jújú, ég
nenni því alveg.
Jóhann: „Getum við ekki farið í
sjónvarpið með þetta?“
Það væri náttúrlega langbest.
Ósk okkar Jóhanns rættist ekki
og þess vegna ertu að lesa þetta af
pappír, sem er náttúrlega hneyksli.
Það er gríðarlega erfitt að koma
grínorkunni sem stígur frá þessum
drengjum í rituð orð og þetta viðtal
litast af því. Til að undirstrika það
sem Bergur Ebbi sagði í upphafi
viðtalsins, þá eru næstu sekúndur
í upptökunni sem ég skrifa viðtalið
eftir þannig, að hann talar á meðan
Ari gluggar í nýjustu bók Hugleiks
Dagssonar, Íslensk dægurlög, og
hlær. Ég spóla því örlítið áfram.
Tiger Woods er fáviti
Dóri er ekki hérna með ykkur, er hann
„the outsider“ í hópnum?
Bergur Ebbi: „Nei nei, hann
gleymdi sér. Eru ekki þrír frekar
margir?
Jújú. En já, ég vil hefja viðtalið á
viðeigandi hátt. Hvað er með Tiger
Woods, níu hjákonur!?
Ebbi: „Er þetta ekki bara dæmi
um flóðgátt sem er að bresta? Þegar
maður er búinn að halda utan um
eitthvað ákveðið lengi, þá er ekkert
skrýtið að þegar það brestur, þegar
það kemur lítil sprunga í stífluna, þá
fer allt. Þetta verður svona í Kára-
hnjúkum. Það kemur smá skemmd
og þá er allt farið. Málið er líka í
eðli sínu þannig að helmingurinn
er lygi.“
Ari: „Það er ekkert skrýtið að hann
eigi tvær, þrjár hjákonur.“
Ebbi: „Wilt Chamberlain, sem er
einn farsælasti körfuboltamaður allra
tíma; hann svaf hjá þrjú þúsund og
eitthvað konum. Það var reiknað
út, að ef þetta er rétt þá svaf hann
hjá 1,3 konum á dag frá því að hann
var 18 ára …“
Jóhann: „Mér finnst þetta svolítið
merkilegt. Wilt Chamberlain var fá-
viti, það er talað um að Tiger Woods
sé fáviti líka – kaldur og leiðinlegur.
Uppistandarar eru strax byrjaðir
að taka þetta fyrir, eins og „Tiger
Woods, we always knew he can‘t
drive“. Það er góður golfbrandari.
Hann verður að passa sig á trénu,
ekki nota tréð mikið – vera frekar
í járninu.“
Ebbi: „Þetta býður upp á enda-
laust, maður.“
Áður en ég næ að breyta um
umræðuefni kemur undarlegur svip-
ur á Jóhann Alfreð og hann tekur
ómakið af sér.
Jóhann: „Ég er í ógeðslegri
peysu.“
Ari: (Skellihlær)
Ebbi: „Ég man þegar þú varst
nýbúinn að kaupa þessa, þú varst
helvíti rogginn með þig.“
Jóhann: „Ég er geðveikt ógeðs-
legur í þessu viðtali, ég er búinn að
vera að rífa á mér neglurnar. Þetta
er hrikalegt.“
Ísland fyndnara en
Liechtenstein
–En strákar, af hverju uppistand í
landi þar sem góðir uppistandarar
eru á hverju strái?
(Áður en ég leyfi þeim að svara
spurningunni skal tekið fram að ég
gat ekki haldið andlitinu á meðan ég
bar spurninguna upp. Bergur Ebbi
sagði reyndar að hláturinn stafaði
af mikilli kaffineyslu, en viðtalið
var tekið undir lok vinnudags: „Þú
ert bara byrjaður að hlæja að öllu,
skilurðu?“)
Ebbi: „Ég get alveg tekið undir
þetta að sumu leyti. Við erum byrj-
aðir að opna fyrir þetta. Mér finnst
ógeðslega margir koma til greina til
að vera með uppistand. Ég sé fyrir
mér að annar hver vinur minn geti
stigið á svið.“
Jóhann: „Ég held að allir eigi eitt
sett inni í sér.“
(Allir hlæja)
Ebbi: „Ekki spurning, það eiga
allir sín móment.“
Ari: „Jói talar í „sound bites“.“
Ebbi: „Við erum á reglulegan hátt
að reyna að eiga okkar móment.“
Jóhann: „Íslendingar eru mjög
fyndnir – ég myndi segja það, er
það ekki?“
Ebbi: „Ég held að Íslendingar
séu meðalfyndnir. Ég held að við
séum fyndnari en Frakkar, aðeins
minna fyndnir en Írar og Ástralar
og aðeins minna fyndnir en Banda-
ríkjamenn.“
Jóhann: „Aðeins minna? Ég held
að við séum á pari við Kanann. En
það er rétt, að Írar og Ástralar eru
fyndnari en við.“
E b b i : „ … O g á k v e ð n a r
eyjaþjóðir.“
Ari: „Ég held að við séum klárlega
fyndnari heldur en Danir … ég get
ekki bakkað þetta upp.“
Jóhann: „Danir eru fyndnir.“
Ebbi: „Ég hef oft pælt í þessu. Ég
held að við séum aðeins fyndnari en
meginlandið, Þjóðverjar og Frakkar
og svona.“
Jóhann: „Erum við samt ekki eigin-
lega einna fyndnastir af Skandin-
övunum?“
Ari: „Við erum fyndnari en Liechten-
stein, fyndnari en San Marínó og við
UPPISTAND
MEÐ ÞORSTEINI
GUÐMUNDSSYNI
Mið-Ísland ræðst ekki á
garðinn þar sem hann er
lægstur og verður með
þungavigtargrínistann
Þorstein Guðmundsson með
í för á uppistandskvöldi á
Batteríinu í kvöld. Pakk-
inn verður því grjót harður
í kvöld, en ásamt Þor-
steini ætla Bergur Ebbi,
Ari Eldjárn, Jóhann Alfreð
og Dóri DNA að fara með
gamanmál ásamt Hugleiki
Dagssyni, sem var með sitt
fyrsta uppistand á síðustu
skemmtun Mið-Íslands.
ORÐ: Atli Fannar Bjarkason
MYND: Gunnar V. Andrésson
Það er ekkert sérstaklega
langt síðan uppstands-
hópurinn Mið-Ísland steig
fram og byrjaði að grína
víða um landið. Allt voru
þetta strákar sem fólk
þekkti fyrir eitthvað, en
mismikið þó. Berg Ebba
og Dóra DNA könnuð-
ust flestir við – Bergur
söng og glamraði á gítar
í Sprengjuhöllinni, en er
hættur því núna, og Dóri
rappaði sig inn í hjörtu
landsmanna með hljóm-
sveitinni Bæjarins bestu.
Jóhann Alfreð fékk sínar
15 mínútur í auglýsingum
fyrir Glitni, það var banki
– ef einhver var búinn að
gleyma því – og Ari Eld-
járn hefur til dæmis verið
á meðal handritshöfunda
áramótaskaupsins.
ÍSLENDIN
ERU MEÐALFY
GRÍNHÓPURINN MIÐ ÍSLAND
Myndardrengir, frá vinstri Ari Eldjárn, Halldór Halldórsson (Dóri
DNA), Jóhann Alfreð og Bergur Ebbi.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki