Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 68

Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 68
12 • R E Y K J A V Í K Laugavegur 56 - 101 Reykjavík - www.nikitaclothing.com Rivers Cuomo, forsprakki Weezer, verður fertugur á næsta ári, en hann ætlar ekki að játa sig sigraðan. Hann ætlar að syngja um „homies“ og um fólk sem er „trippin‘“ og „chillin‘ in the shack“ þrátt fyrir að fátt sé kjánalegra en fertugir karlar sem hegða sér eins og unglingar. Tónlist Weezer hefur ekki breyst mikið í gegn- um tíðina, en neistinn sem var á tveimur fyrstu plötum hljómsveit- arinnar er víðsfjarri á Raditude. Raditude gæti verið konsept- plata um gráa fiðringinn. Lög eins og Can‘t Stop Partying, Trippin‘ Down the Freeway og In the Mall eru til marks um að Cuomo er með Péturs Pan-heilkenni á mjög alvarlegu stígi og hreinlega neitar að eldast. Hann kann samt ennþá að semja grípandi lög og það er erfitt að dilla sér ekki við sum laganna á Raditude. Þrátt fyrir það er Raditude með því verra sem Weezer hefur sent frá sér. Ágætissprettir hér og þar komast ekki í hálfkvisti við snilld- ina sem hljómsveitin sendi frá sér um miðjan tíunda áratuginn og ef ég á að segja eins og er finnst mér að hljómsveitin ætti að segja þetta gott. - afb POPPPLATA: WEEZER MEÐ GRÁA FIÐRINGINN KOMIÐ GOTT WEEZER RADITUDE Dánlódaðu: I Don‘t Want to Let You Go. Pinkerton er af mörgum talin besta plata Weezer. Lesendur Rolling Stone voru ekki sammála og settu plötuna á lista yfir verstu plötur ársins árið 1996. Avatar er dýrasta mynd allra tíma og fyrsta mynd leikstjórans James Cameron frá því að hann sendi frá sér Titanic. Í grunninn er myndin gamaldags ástarsaga, en Cameron tekst að skapa ótrúlegan heim sem áhorfand- inn fær að njóta í þrívídd. FRUMSÝNING: AVATAR Mamma Eftir að höfuðið á mér hætti að snúast fannst mér myndin voðalega góð. Þetta er náttúrlega hörkuhasar, en sagan er mjög falleg. Mér fannst Titanic alveg frábær og Avatar gefur henni ekkert eftir. Myndin fékk mig líka til að hugsa um eyðileggingarmátt mannsins og umhverfismál. POPPDÓMNEFNDIN Bíónördinn Stórkost- leg mynd eftir einn merki- legasta leikstjóra allra tíma. Tækni- brellurnar í Avatar eru ekki af þessum heimi, en þær kæfa alls ekki söguna – sem nýtur sín vel í heiminum sem James Cameron skapaði. Ein ótrúlegasta mynd sem ég hef séð í langan tíma og býr til ný viðmið. Vinurinn Hasar, spenna og heitar geimveru- gellur! Þessi mynd er með allan pakkann. Ég hafði ekki mikla trúa á því að ég tæki bláa kalla alvarlega, en ég hafði rangt fyrir mér. Avatar er frábær mynd og þrívíddin kemur svakalega vel út. Djöfull var herforinginn flottur. Ég hélt nánast með honum. Stelpan Mér finnst þessi mynd alveg ógeðslega góð. Hún er ótrúlega flott og um leið alveg rosalega rómantísk. Það er gaman að fylgjast með sambandi hermannsins og bláu stelpunnar þróast og þrátt fyrir að myndin sé rosalega löng, þá leiddist mér aldrei, enda hasarinn mikill. ÓTRÚLEG MYND Tenging við Strumpana Í South Park-þætti fyrir nokkrum vikum var gert létt grín að Avatar. Myndinni var líkt við strumpana, sem er alls ekki galið. Í Avatar er blátt fólk, sem neyðist til að verja heimkynni sín fyrir ofurefli illra manna. Spurning um að fá Ladda til að lesa inn á allar persónurnar í Avatar? Topp 10 listi desembermánaðar Topp 10 listinn er í boði Mohawks Kringlan | 534-2951 www.mohawks.is | facebook.com/mohawksiceland 1. Peverelist - Jarvik Mindstate (Punch Drunk) 2. dBridge - Inner disbelief (Exit) 3. Joy Orbison - J Doe (Doldrums) 4. Robot Koch - Death Star Droid LP (Robot’s Don’t Sleep) 5. Consequence - Live for Never (Exit) 6. Original Sin - Kiss (Playaz) 7. SP:MC & Joker D - Taiko Dub (Tempa) 8. Millie & Andrea - Ever Since You Came Down (Daphne) 9. Icicle - Cold Fear EP (Shogun Audio) 10. ASC - Porcelain (Nonplus) Breakbeat.is er á dagskrá Xins 97.7 öll miðvikudagskvöld 23:00-01:00 • www.breakbeat.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.