Fréttablaðið - 18.12.2009, Side 69
• 13
Opið: Alla daga til jóla frá 11 til 22
Sími 578 9400
*Gildir ekki af DVD-diskum og hlaupahjólum.
Afslátturinn er alfarið á kostnað MerkjaOutlet.
KORPUTORGI
TAX-FREE
DAGAR
Vörum er hægt að
skipta í aðrar vörur
til 31. desember 2009.
ALLAR VÖRUR VE
RSLUNARINNAR
ÁN VSK!*
TIL JÓLA!
Outlet verð kr. 4.995
TAX-FREE
VERÐ kr. 4.012Outlet verð kr. 4.995TAX-FREE
VERÐ kr. 4.012
Outlet verð kr. 1.695
TAX-FREE
VERÐ kr. 1.361
Outlet verð kr. 1.695
TAX-FREE
VERÐ kr. 1.361
Outlet verð kr. 11.995
TAX-FREE
VERÐ kr. 9.634
Outlet verð kr. 4.995
TAX-FREE
VERÐ kr. 4.012
So
ft
sh
el
l j
ak
ki
m
eð
h
et
tu
,
8.
00
0
m
m
v
at
ns
he
ld
ni
M
yn
da
bo
lu
r,
bi
nd
i
H
et
tu
pe
ys
a,
m
/á
le
tr
un
H
et
tu
pe
ys
a,
m
/á
le
tr
un
M
yn
da
bo
lu
r,
H
om
er
Æ
fi n
ga
bu
xu
r
fy
ri
r
dö
m
ur
The Saboteur er sandkassaleik-
ur í stíl við Grand Theft Auto,
Mercenaries og Saint’s Row. Í
leiknum fara menn í hlutverk
írska drullusokksins Seans Dev-
lin þar sem hann hjálpar frönsku
andspyrnuhreyfingunni að berj-
ast gegn hernámi nasista í seinni
heimsstyrjöldinni. Spilun leiksins
samanstendur af því að flakka
um gríðarstórt leiksvæði leiksins,
t.a.m. París, og sinna verkefnum
fyrir hina og þessa meðlimi and-
spyrnuhreyfingarinnar.
Það er margt sniðugt við
Saboteur, svo sem notkun lita
til að gefa til kynna sterk ítök
nasista á mismunandi svæðum.
Einnig er það skemmtileg til-
breyting að fá að vafra um París
þó það sé ekki nema bara til að
kíkja á Eiffel-turninn. Því miður
eru gallar leiksins ívið fleiri en
kostirnir. Aksturshlutar leiksins
eru hægir og þunglamalegir,
vopnin eru frekar óspennandi og
slagsmálakerfið er í besta falli
slappt. Saboteur er leikur sem
hafði alla burði til að verða fram-
úrskarandi leikur, en því miður
hefur eitthvað farið úrskeiðis
og eftir stendur leikur sem er
dæmdur til meðalmennsku.
Vignir Jón Vignisson
POPPLEIKIR: THE SABOTEUR
MEÐALMENNSKAN
ER SVO SEM ÁGÆT
NASISTAR Leikurinn notar svart/hvítt litaskema til að tákna sterka nærveru nasista.
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
3/5 3/5 3/5 4/5
Í Assassin’s Creed II heldur áfram
saga Desmond Miles, og er
hann nú endurfæddur sem Ezio
Auditore di Firenze í Florens,
Ítalíu. Eftir fráfall föður síns fyllir
Ezio hans stað sem launmorðingi,
og er byrjaður að stráfella spillta
menn hægri vinstri í þeim tilgangi
að uppræta forna reglu.
Assassin’s Creed II er sand-
kassaleikur (e. sandbox), líkt
og forveri hans, og með nokkr-
um borgum. Útlit leiksins er
mjög flott og umhverfi litríkt
og lifandi. Stjórnunin á PS3 er
þægileg þrátt fyrir ansi margar
mismunandi hreyfingar. Leikur-
inn sjálfur er sá prýðilegasti. Það
reynist ótrúlega skemmtilegt að
vera innan um margmenni og
áætla hvenær sé best að láta
til skarar skríða, drepa menn
og reyna síðan að falla inn í
mannfjöldann. Líkt og í öðrum
sambærilegum leikjum þá eru
margir möguleikar á verkefnum
sem eru ekki hluti af sögunni,
en þjálfa mann og auka þyngd
peningapyngjunnar.
Ending leiksins er vægast
sagt góð, með rúmar 26 klukku-
stundir að baki og litlum sem
engum tíma eytt í að eltast við
aukaverkefni. Assassin’s Creed II
er frábær spilun frá byrjun og til
enda og á eftir að vera ofarlega
á árslistum spilara.
Vignir Jón Vignisson
POPPLEIKUR: ASSASSIN’S CREED II
Í FÓTSPOR
LAUNMORÐINGJA
BLÓÐ! Leikurinn er ansi blóðugur.
NIÐURSTAÐASPILUN GRAFÍK HLJÓÐ ENDING
4/5 4/5 4/5 5/5
Kelly Rowland hefur lýst því
yfir að hún hafi mikinn áhuga
á að verða einn af dómurum
breska söngþáttarins X-Factor
á næsta ári. Áhugi hennar á
dómarasætinu mun vera kom-
inn til af því að Simon Cowell,
hugmyndasmiður þáttanna, vill
hafa fimm dómara í stað fjög-
urra til að koma í veg fyrir að
úrslitaákvörðun um hver dettur
út hverju sinni fari eftir greidd-
um atkvæðum almennings.
Samkvæmt breskum fjölmiðl-
um reyndi Simon Cowell að fá
Robbie Williams til að setjast í
eitt dómarasætið, en hann af-
þakkaði boðið sökum anna og
í kjölfarið bauð Kelly Rowland
sig fram. Auk þess hefur Simon
Cowell boðið David Bowie,
Eminem og Dr. Dre að koma
fram í þáttunum á næsta ári.
Pink segist vera pirruð á því
þegar poppstjörnur syngja ekki
„live“ þegar þær koma fram. Í
viðtali við tímaritið Women´s
Health segist söngkonan
forðast að fara á tónleika þar
sem listamaðurinn hreyfir bara
varirnar við tónlistina. „Þegar
maður elst upp við tónlist
Janis Joplin vill maður ekki
fara á tónleika og sjá einhvern
mæma,“ útskýrir Pink. Þá seg-
ist hún ekki hafa neitt á
móti Britney Spears
þrátt fyrir að hún
sé þekkt fyrir þetta
á tónleikum sínum.
„Ég hef alltaf sagt
að ég kann vel við
Britney, við
höfum rætt
það okkar á
milli. Það á
bara ekki
að bera
okkur saman
því við erum
svo ólíkar,“
segir Pink.
Liam Gallagher er nú að vinna
að heimildarmynd um nýju
hljómsveitina sína. Söngvarinn
stofnaði nýtt band með fyrr-
verandi meðlimum Oasis eftir
að Noel bróðir hans yfirgaf
sveitina í fyrrasumar og er
Liam sagður vilja kvikmynda
ferlið í kringum stofnun nýju
hljómsveitarinnar til að sýna
að hann sé sköpunarkraft-
urinn í bandinu. Samkvæmt
heimildum breska
dagblaðsins Daily
Star segist Liam
ekki vera búinn
að finna nýtt nafn
á sveitina. Ekki er
ákveðið hvenær
heimildar-
myndin verð-
ur sýnd, en
hann útilokar
ekki að hún
komi út á DVD
með væntan-
legri plötu.