Fréttablaðið - 18.12.2009, Qupperneq 94
54 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Camerarctica
Hafnarfjarðarkirkju, föstudag 18. desember kl. 21.00
Kópavogskirkju, laugardag 19. desember kl. 21.00
Garðakirkju á Álftanesi, sunnudag 20. desember kl. 21.00
Dómkirkjunni í Reykjavík , mánudag 21. desember kl. 21.00
Miðasala við innganginn, miðaverð kr. 2.000 / 1.000
Mozart við kertaljós
Kammertónlist á aðventu 2009
Ellefta Grasrótarkvöld gogoyoko
og Reykjavík Grapevine verður
haldið á Hemma og Valda í kvöld.
Í tæpt ár hefur þessi mánaðarlegi
viðburður staðið fyrir því að veita
ungum og efnilegum listamönnum
góðan vettvang til að fremja sína
list, auk þess sem að á kvöldunum
geta tónlistaráhugamenn kynnt
sér ferska nýja strauma í íslenskri
tónlist.
Á tónleikum kvöldsins koma
fram Nolo og Hypno, auk þess sem
SLÁTURmennirnir Áki Ásgeirs-
son, Guðmundur Steinn Gunnars-
son og Þráinn Hjálmarsson troða
upp saman, en hver í sínu lagi.
Nolo er ung og efnileg hljómsveit
úr Menntaskólanum við Hamra-
hlíð og samanstendur af tveimur
strákum á hljómborð og gítar. Þeir
hafa getið sér gott orð fyrir tón-
list sína síðustu mánuði og komu
meðal annars fram á Iceland Air-
waves við góðan róm og fögnuð
áhorfenda.
Hypno er listamannsnafn hins
unga Kára, en hann spilar raftón-
list bruggaða úr hinu lævísa bili
milli dubstep og house-tónlistar.
Þremenningarnir Áki, Guðmund-
ur og Þráinn munu síðan leika sér
með ýmis hljóðfæri og hljóðgjafa
auk þess sem heyrst hefur að þeir
muni leyfa áhorfendum að taka
þátt óski þeir þess.
Að vanda er frítt inn á tónleik-
ana, en þeir hefjast um klukkan
níu og standa til miðnættis.
- pbb
Grasrótin mæti í kvöld
NOLO Ívar björnsson og Baldur Lorange. FRETTABLAÐIÐ/ANTON
Létt Bylgjan kemur
þér í jólaskap
Bragi Guðmundsson og Jóhann Örn Ólafsson
spila uppáhalds jólalögin þín, alla virka daga frá 8 - 18
> Ekki missa af
menningarveislu í Gallerí Ágúst
milli 17 og 19 í dag. Rithöfund-
arnir Oddný Eir Ævarsdóttir
(Heim til míns hjarta) og Jón
Karl Helgason (Mynd af Ragnari í
Smára) munu koma og lesa fyrir
gesti úr verkum sínum. Í kjölfarið
koma tónlistarmennirnir Jón
Tryggvi og Uni til þess að spila
fyrir gesti ljúfa og notalega tón-
list. Þau eru bæði að senda frá
sér nýjar hljómplötur um þessar
mundir. Veigar og veitingar verða
í boði og því tilvalið að koma við
í galleríinu og styrkja sig áður en
haldið er í jólarölt um bæinn,
en verslanir í miðbænum verða
opnar fram á kvöld.
Ath. kl. 14 á morgun
Hjördís Frímann málari býður gest-
um á opna vinnustofu sína á morg-
un í Aðalstræti 16 á Akureyri, sem
er næsta hús við „gamla spítalann“.
Hjördís Frímann er fædd á Akureyri
1954. Hún lauk námi frá The School
Of The Museum Of Fine Arts í Bos-
ton 1986 og hefur málað síðan. Á sýn-
ingunni eru bæði eldri verk og glæný
beint af málartrönunum og sýningin
teygir sig um veggi hússins, sem jafn-
framt er heimili listamannsins.
Uppselt er á þrenna Jólatónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands
í dag og á morgun og nú hefur verið bætt við þeim fjórðu
vegna fjölda áskorana. Aukatónleikarnir verða í kvöld kl. 19.
Jólatónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar eru löngu orðinn fast-
ur liður í jólaundirbúningnum. Að þessu sinni verður leikið
fallega ævintýrið um snjókarlinn eftir Raymond Biggs með
tónlist eftir Howard Blake og Páll Óskar mun bæði segja
söguna og syngja af sinni einstöku list.
Tveir ungir og efnilegir fiðluleikarar, þær Rannveig Marta
Sarc og Sólveig Steinþórsdóttir leika þátt úr hinum
gullfallega konserti fyrir tvær fiðlur eftir Bach og síðan
sér Gradualekór Langholtskirkju um að koma öllum í rétt
skap með jólalögum undir styrkri stjórn Jóns Stefánssonar
en hljómsveitinni stjórnar Bernharður Wilkinson. Þá er á
efnisskránni að auki Jólaforleikur eftir bandaríska tónskáld-
ið Leroy Anderson.
TÓNLIST Páll Óskar kemur fram með sinfóní-
unni í dag og á morgun.
Nú standa yfir æfingar á
sviðsetningu Vesturports
og Leikfélags Reykjavíkur
í Borgarleikhúsi á Faust.
Leikmyndina fyrir sýn-
inguna gerir Axel Hallkell
Jóhannesson en hún er afar
sérstök og mótar í raun
þessa aldagömlu arfsögn
vestrænnar menningar
alveg upp á nýtt. Sá Faust
sem leikhúsgestir munu sjá
frá frumsýningunni þann
15. janúar verður allt allt
öðruvísi en leikhúsgestir
hafa til þessa séð og þótt
víðar væri leitað.
Faust er kunnastur í gerð Goethes
hins þýska sem samdi verkið í
löngum bálki sem sjaldan sést. Þá
hafa óperuhöfundar leitað í sög-
una um fræðimanninn aldna sem
selur sál sína djöflinum og þiggur
æskuna fyrir. Marlowe vann einn-
ig eina útgáfu verksins fyrir svið,
samtímamaður Shakespeares.
Þegar hópurinn tók að skoða sög-
una ákváðu menn að semja sína
eigin útgáfu og eru þau Björn
Hlynur, Gísli Örn, Nína Dögg og
Víkingur skráð höfundar verks-
ins.
Sagan gerist bæði á jörðu og eins
og leikmyndin er – á himni: „Þau
voru með einhverja hugmynd
um að nota net, þegar ég kom
að þessu,“ segir Axel. Og í sam-
vinnu þeirra Gísla, sem leikstýrir
sýningunni, varð það úr að leitað
var að almennilegu sirkusneti og
það fannst í Kanada hjá aðila sem
framleiðir net fyrir fjölleikahús
og reyndar fleiri aðila.
Það trúir því enginn nema hann
sjái það – en yfir aðalsal Borgar-
leikhússins og vel inn á svið er nú
strengt net, fest í bakhlið salar-
ins og langt inn í sviðið. Það er
strengt á vírum og þurfti að leita
að burðarpunktum í húsinu með
aðstoð verkfræðinga, festa allt
víraverkið upp með sérstökum
burðarbitum á sérpantaða strekkj-
ara með öryggislokum því netið
fer undir brunatjaldið og verður
að vera mögulegt að fella það á
augabragði ef þörf krefur.
Á netinu rétt eins og framsvið-
inu fer atburðarás sýningarinnar
fram. Axel er ekki margmáll um
hvað gerist á netinu sjálfu en af
aðstæðum má ljóst vera að leik-
hópurinn hefur í þessari sýningu
möguleika á að koma áhorfendum
sínum heldur betur á óvart.
Axel segir að síðustu vikunnar
hafi hann lagt nótt við dag: hann
er líka að vinna leikmynd á sama
tíma fyrir fjórða ár Listaháskól-
ans á nýju verki Sigtryggs Magna-
sonar eftir nokkurt hlé: „Þau vilja
koma í kippum verkefnin,“ segir
hann. „Ég veit varla hvað ég heiti
lengur. Það var svo mörgu ósvar-
að þegar hugmyndin tók að þró-
ast, en núna er þetta farið að sýna
sig.“
Það er ekki fyrir lofthrædda
leikara að vinna í þessari leik-
mynd og verður gaman að sjá þá
fóta sig. Leikarar í sýningunni
eru Björn Hlynur Haraldsson,
Þorsteinn Gunnarsson, Hilmir
Snær Guðnason, Unnur Ösp Stef-
ánsdóttir, Nína Dögg Filippus-
dóttir, Hanna María Karlsdóttir,
Rúnar Freyr Gíslason, Víkingur
Kristjánsson og Jóhannes Níels
Sigurðsson. Þórður Orri Péturs-
son fær það spennandi verkefni
að lýsa sýninguna en Filippía Elís-
dóttir gerir búninga og Sigríður
Rósa Bjarnadóttir gervi. Tónlistin
er eftir þá Nick Cave og Warren
Ellis, en Frank Þórir Hall er tón-
listarstjóri og Thorbjørn Knudsen
hannar hljóðheim verksins.
Frumsýning er eftir rétt mánuð,
þann 15. janúar og mun vekja
mikla athygli þegar himinn og
helvíti takast á um sálirnar.
pbb@frettabladid.is
Milli himins og jarðar
LEIKLIST Axel Hallkell Jóhannesson á útjaðri netsins yfir sviðsbrún Stóra sviðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Uppselt á þrenna tónleika