Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 96
56 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 18. desember 2009
➜ Tónleikar
21.00 Systurnar Ingibjörg, Þórunn og
Dísella Lárusdætur verða með jóla-
tónleika í Salnum við Hamraborg í
Kópavogi.
21.00 Seabear og múm halda tón-
leika í Iðnó við Vonarstræti.
21.00 X-mas tónleikar X-ins verða
haldnir á Sódómu Reykjavík við Tryggva-
götu. Meðal þeirra sem fram koma eru
Ourlives, Dikta, Agent Fresco og Mamm-
út. Húsið verður opnað kl. 20.
21.00 Camerarcica heldur tónleika í
Hafnarfjarðarkirkju við Strandgötu. Á
efnisskránni verður tónlist eftir W.A.
Mozart, þar á meðal „Eine kleine
Nachtmusk“.
21.00 Raftónleikar í Cafe Amsterdam
við Hafnarstræti. Meðal þeirra sem fram
koma eru Gjöll, Evil Madness, Stillupp-
steypa, Amfj, Stereo Hypnosis, Biogen
og Franz Pomassl. Húsið verður opnað
kl. 21.
22.00 Hljómsveitin Stóns flytur lög
Rolling Stones á tónleikum á Græna
Hattinum við Hafnarstræti á Akureyri.
Húsið verður opnað kl. 21.
23.00 Kór Langholtskirkju við Sól-
heima heldur sína árlegu Jólasöngva-
tónleika. Einsöng með kórnum syngja
Eivør Pálsdóttir og Ólöf Kolbrún
Harðardóttir.
23.30 Hljómsveitin HEK verður á
bar 46 við Hverfisgötu 46. Enginn
aðgangseyrir.
➜ Jólaglögg
17.00 Árlegt jólaglögg
UNIFEM verður haldið
í húsnæði félagsins að
Laugavegi 42. Þórdís
Elva Þorvaldsdóttir og Páll
Valsson lesa úr bókum sínum
og hljómsveitin Pascal Pinon flytur
tónlist. Allir velkomnir.
➜ Sýningar
Anna Gunnlaugsdóttir hefur opnað
sýningu í Gallerí Horninu að Hafnar-
stræti 16. Opið alla daga kl. 11-12.
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir hefur opnað
sýninguna „Í gegnum tíðina“ í sýn-
ingarrýminu Boganum í Gerðubergi
(Gerðubergi 3-5). Opið virka daga kl.
11-17 og um helgar kl. 13-16.
➜ Markaðir
Bændamarkaður með líf-
rænar afurðir hefur verið
opnaður að Nethyl 2c
(hjá Græna Hlekknum).
Garðyrkju-, mjólkur-
afurðir o.fl. Það eru
Garðyrkjustöðin Akur,
Engi, Móðir Jörð, Villi-
mey og Bióbú sem standa
að markaðnum. Opið fös.-lau.
kl. 12-18 og mán.-mið. kl. 12-18.
➜ Uppistand
20.00 Iceland Christmas
Comedy Festival, aþjóð-
leg grínhátíð á ensku og
íslensku. Í kvöld verður
uppstand á Café Cultura
við Hverfisgötu 18 þar
sem fram koma Helga
Braga, Rökkvi Vésteins
og Svavar Knútur.
Nánari upplýsingar á
www.uppistand.is.
➜ Dansleikir
Hljómsveitin Rokk verður á Players við
Bæjarlind í Kópavogi.
Boogienights á skemmtistaðnum Spot
við Bæjarlind í Kópavogi. Dj. Fox þeytir
skífum.
➜ Ljósmyndasýningar
Í Skotinu, sýningarými Ljósmyndasafns
Reykjavíkur við Tryggvagötu (6. hæð),
hefur verið opnuð sýning á ljósmyndum
Laurent Friob. Opið virka daga kl. 12-19,
og helgar kl. 13-17.
➜ Leiðsögn
12.00 Í Listasafni Íslands við Fríkirkju-
veg mun Halldór Björn Runólfsson lesa
upp úr bókinni „Iceland Art Today“ og
Sigríður Melrós Ólafsdóttir verður með
leiðsögn um sýningu á verkum Svavars
Guðnason. Allir velkomnir.
Upplýsingar um viðburði
sendist á
hvar@frettabladid.is.
Bókmenntir ★★
Í fótspor afa míns
Finnbogi Hermannsson
Sögur af Njálsgötunni
Finnbogi Hermannsson útvarpsmaður heldur áfram að rekja minningar
sínar og sinna í þessari stuttu myndskreyttu bók og á bókarbaki er heitið
þriðja bindinu. Sögusviðið er sem í fyrstu bókinni heimur fjölskyldu og vina
á árunum eftir stríð í Reykjavík en hér er ekki farið af sömu nákvæmni yfir
sögusviðið og í fyrri bókinni. Stuttir kaflar verða fyrir bragðið ærið skissu-
kenndir og hefði Finnbogi að ósekju mátt grafast aðeins dýpra á bak við
þann aragrúa persóna sem hann nefnir til sögu, oft með viðurnefninu einu,
því sannast sagna hefur hann svo gott forskot á við marga aðra um þennan
liðna heim að hér var gott tækifæri látið ónotað til að skýra hann betur og
dýpka drættina.
Finnbogi hefur afar þægilegan og notalegan samtalsstíl á bókinni, hann
leiðist víða út í almennar hugleiðingar um tíðarandann, einkum hið pólitíska
umhverfi og hversdagslífið sem okkur sem stöndum nálægt honum í aldri
er forvitnileg upprifjun. Reykjavík eftirstríðsáranna kann fáum að þykja heill-
andi heimur en Finnbogi skilar honum ljóslifandi þótt hratt sé víða skautað.
Síðasti hluti bókarinnar er svo frásögn af dvöl í sveit og þá er sögumaðurinn
tekinn að þroskast og taka við nýjum gildum og skilja hið stærra samhengi,
þótt alltaf sé horft í baksýnisspegil.
Nema hvað – Finnbogi er þar staddur í vitund og menntun að hann er
gagntekinn af bíla- og vélaveröldinni og þó sá gluggi sé galopinn er ekki
tekið neitt tillit til þeirra sem eru alveg fákunnandi á því sviði. En það er
gaman að sjá þangað inn.
Og svo lýstur heimunum saman: tveir ungir menn standa í verslunar-
rekstri á Njálsgötunni í Hilmarsbúð og keyra vörur til kúnna á kvöldin – allt
vestur á Hjarðarhaga og birtast þar brattir undir kvöldmat: Hilmar er ljós í
minningunni, brosmildur maður og að því leyti merkilegri en aðrir að hann
var að læra að fljúga. Og svo fór hann að fljúga með rekstri búðarinnar. Og
einn daginn gerist það í senn á Njálsgötu og Hjarðarhaga að heimilisfólkið
er slegið: Hilmar ferst í flugslysi. Hann var fyrsti maðurinn í mínu minni sem
dó. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Merkilegar Reykjavíkurminningar sem máttu vera ýtarlegri og
dýpri.
Bókmenntir ★★★★
Hjá brúnni
Kristín Ómarsdóttir
Barið á
margar dyr
Kristín Ómarsdóttir hefur
í skáldsögum sínum farið
eigin leiðir. Hún setur
söguefni sitt í líf okkar
nútímamanna, setur okkur
niður í nálægum samtíma
álfunnar og segir sögur
sem á yfirborðinu eru
hversdagslegar og kátlegar.
Hennar alvitri sögumaður
á til að bregða á leik í
málinu, setur upp samtöl
sem gætu hæglegast átt
heima í kvikmynd, jafnvel
á sviði, tekur útúrdúra og
leggst í hugleiðingar og
stríðir bæði persónum og
leikendum. Á bestu köflum
hugsanaflökts höfundarins
verður hún spök að viti
og innsæi um samskipti
fólks, sjálfsmynd karlkyns
og kvenkyns og afhjúpar
mannsins eðli af glettnislegu miskunnarleysi.
Í nýju sögunni sinni setur hún atburðina
sem eru margir og virðast lengst af vera
algerlega óskyldir, bæði furðulegir og hvers-
dagslegir, í borg. Þetta er einhver Evrópa, aldin
og bundin í borgarlíf sem er yfirsögulegt þótt
margt sé þar kunnuglegt. Það minnir um margt
á flandur sögumannsins Thors á fyrri hluta ferils
hans þótt stílbrögðin séu allt önnur.
Lesturinn á sögunni er lengi framan af pirr-
andi því þaulsetinn lesandi er í þeim stellingum
að heimta þráð, þrælbundinn í báða skó af
venju og skikk. Ég fór ekki að ná áttum fyrr
en í öðrum hluta verksins en þá var hugurinn
kominn á vald textanum og reikaði áfram uns
hin óvæntu endalok sögunnar tóku að myndast
og leshugurinn var kraminn af algeru miskunnarleysi.
Kristín er firnafær höfundur. Hún gefur ekkert eftir, hugmyndarík í stóru
og smáu og gerir ríkulegar kröfur til lesanda. Verkið Yfir brúna verður fyrir
bragðið ein þeirra skáldsagna sem lesandinn er alveg viss um að taka aftur
til gagngerrar endurskoðunar, lesa aftur svo hann fatti hvernig öll drög eru
lögð snemma að þeim heildaráhrifum sem sagan býður upp á. Páll Baldvin
Baldvinsson
Niðurstaða: Slungin og krefjandi skáldsaga sem skilur lesandann eftir magn-
þrota.
Tónlist ★★★★
Flóttinn mikli
Morðingjarnir
Glaðir morðingjar
Flóttinn mikli er þriðja plata Morðingjanna, en hinar tvær fyrri, Í götunni
minni og Áfram Ísland voru báðar skemmtilegar pönkkeyrsluplötur. Sú fyrri
einföld og frumstæð, sú seinni fjölbreyttari og þéttari. Á Flóttanum mikla
heldur sveitin áfram að spila hratt, hrátt og melódískt pönk að stærstum
hluta, en nú er tónlistin samt orðin aðeins poppaðri og yfirbragðið léttara.
Á plötunni er meira að segja eitt sólskinspopplag, Sunnudagsmorgunn í
Reykjavík. Fínt lag og bara jákvætt að pönkarar spili popp.
Eins og fyrr má heyra áhrif frá gömlum pönksveitum í tónlist Morðingjanna,
en samt finnst mér áhrifin ekki jafn öskrandi augljós eins og á síðustu plötu.
Hvað sem því líður þá er Flóttinn fullur af skemmtilegum lögum og svo eru
textarnir sem eru á íslensku líka stór plús. Það er að verða algjör undan-
tekning að íslenskar rokkhljómsveitir syngi á móðurmálinu og maður kemst
að því hvað maður saknar þess þegar maður heyrir plötu eins og þessa. Það
er slatti af grípandi lögum hér sem ættu að fá greiða leið í útvarpsspilun t.d.
Flóttinn mikli, Hlakka til að hitta þig, Sunnudagsmorgunn í Reykjavík, Leti-
ljóð og hin frábæra Manvísa sem Katrína Mogensen syngur á móti Hauki.
Það er líka bara einhver ódrepandi gleði og stuð í Morðingjunum á þessari
plötu. Meira að segja sjálfsmorðslagið Hlakka til að hitta þig er djollí
syngdu-með smellur. Á heildina litið stórskemmtileg íslensk rokkplata.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Grípandi pönk og popp með fínum íslenskum textum.
allt hitt dótið.
Sigríður Klingenberg
Ve m
Sm óla.
jólaspá...
Auglýsingasími
– Mest lesið