Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 106

Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 106
66 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR Hljómsveitin Dikta er á miklu flugi þessa dagana. Nýja platan, Get It together, er uppseld frá útgefanda en nýtt upplag er vænt- anlegt í dag. Hljómsveitin smekk- fyllti Vídalínskirkju í Garðabæ á dögunum og spilaði þar með Ourlives og Pétri Ben. Í kvöld spilar Dikta á Xmas-tónleikum Xins á Sódómu og heldur svo útgáfutónleika á Græna hattinum á Akureyri annað kvöld. Dikta á flugi DIKTA Fyrsta upplag uppselt. Tónlist ★★★★ Á langri leið Jóhann G. Jóhannsson Vellíðunarpopp popp- meistarans Þrátt fyrir að vera einn af helstu lagasmiðum íslenska poppsins og hafandi verið að í meira en fjörutíu og fimm ár, er platan Á langri leið ekki nema fjórða sólóplata Jóhanns G. Ef tilraunaverkið Þrír pýramídar er undanskilið, var Jóhann síðast á ferðinni árið 1988 á sólóplötunni Myndræn áhrif. Á áttunda áratugnum hóf hin stórgóða plata Langspil sólóferil Jóhanns með trukki. Þar var einmitt „Don‘t try to fool me“, sem menn bundnu lengi vonir við að myndu gera Jóhann að alþjóð- legri stórstjörnu. Sólóplatan Mannlíf kom þar á eftir og svo var Jóhann allt í öllu í hinni Meatloaf- ísku Íslensku kjötsúpu. Svo ekki sé nú minnst á snilldartímabilið sem hann átti með Óðmönnum. Þeirra tvöfalda albúm er svo rosalega gott að menn eru enn að slefa yfir því víðsvegar um heim. Aðal Jóhanns hefur lengi verið að semja lög sem aðrir flytja. Nægir að nefna Eina ósk, Fiskurinn hennar Stínu, Traustur vinur og Hjálpum þeim, sem dæmi um lög eftir hann, sem allir þekkja. Það er sem sé alveg á tæru að Jóhann kann að semja lög sem hitta í mark. Á langri leið safnar hann saman áður útgefnum lögum frá ferlinum, eins og nafnið gefur til kynna. Þarna eru nokkur lög sem ættu með réttu að rata í „best of“ pakka framtíðar. Vellíðunarsálarpopp- ið „Taktu þér tíma“, „Ástin“ í Paul Simon-legum fílingi og hið ólgandi hvítsálarpopp „Von um betri veröld“ eru mjög góð lög. Annað framúrskarandi er skilnaðarsálmurinn „Kveðjuorð“, sem minnir á strengjaknúnar ballöður Pauls McCartney, kannski engin furða því Liverpool spilar hlutverk í hnyttnum textanum. Svona dælist eðalpoppið áfram yfir hinn þakkláta hlustanda og varla kusk að sjá, nema ef vera skyldi blúslumman „Góðan blús“, sem er öfugu megin við blöðru. Jóhann syngur af öryggi og vanir menn undir stjórn Péturs Hjalte- sted sjá um undirleik. Þrátt fyrir að innihalda einungis óútkomið efni lítur veglegur bæklingurinn út eins og við safn- plötu, með myndum frá ferlinum og sögulegu yfir- liti eftir Jónatan Garðarsson. Í heildina litið kemur lítið á óvart við þessa plötu, enda er Jóhann löngu búinn að finna upp hjólið. Þetta er góð plata og stendur undir öllum þeim væntingum sem maður gerir til hins 62 ára poppmeistara. Dr. Gunni Rapparinn P. Diddy fór um víðan völl í nýlegu viðtali við tímaritið Playboy. Þar segist hann hafa misst sveindóminn þrettán ára og að hann hafi verið heltekinn af stúlkum og kynlífi á þeim aldri. Í viðtalinu viðurkennir hann einn- ig að hafa átt í ástarsambandi við fræga leikkonu en neitar að segja hver hún er. „Hún er fræg. Ég var mjög hrifinn af henni og var tilbúinn til að gera hvað sem er fyrir hana. Ég eltist lengi við hana og loks fórum við að hittast en við vorum fangar frægðarinn- ar. Við gátum ekki sést saman á almannafæri, en við fórum einu sinni út að borða saman. Hún hætti svo með mér og bauð mér far heim á hótelið mitt,“ sagði rapparinn. Margir vilja meina að leikkonan sé engin önnur en Cameron Diaz því orðrómur þess eðlis var á kreiki fyrir nokkru. Hrifinn af leikkonu HRIFINN AF LEIKKONU P. Diddy segist hafa verið hrifinn af frægri leikkonu í nýlegu viðtali við Playboy. FORMA MÓTORKROSSSTÍGVÉL Full búð af nýjum og vönduðum vörum! ALLT Í MÓTORSPORTIÐ GARÐABÆ - Sími 563 5411 Útivist og sport Opið 10 til 22 til jóla MICHELIN OG MAXXIS MÓTORKROSSDEKK DRIFREIMAR, TVÍGENGISOLÍA OG AÐRIR AUKAHLUTIR MÓTORSPORT OG BRETTA- FATNAÐUR MÓTORSPORT FATNAÐUR MIKIÐ ÚRVAL AF HJÁLMUM SIXSIXONE ÖRYGGISFATNAÐUR Peaches Geldof, dóttir tónlistar- mannsins Bob Geldof, var á leið til Disneylands ásamt vinum sínum þegar þau lentu í hörðum árekstri. Bíllinn skemmdist illa en vinahópur- inn slapp þó með skrekkinn og eftir að hafa skoðað skemmdirn- ar tóku þau til Twitt- ersins og deildu reynsl- unni með umheiminum. „Ég trúi ekki að við skulum enn vera á lífi. Bíll- inn er skemmd- ur en við höldum ferðinni áfram til Disneylands,“ ritaði stúlkan. Keyrði á KEYRÐI Á Peaches Geldof lenti í harkalegum árekstri. Niðurstaða: Veglegur skammtur af eðalpoppi frá einum helsta lagahöfundi þjóðarinnar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.