Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 108
68 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Regína Ósk Óskarsdóttir heldur
tvenna jólatónleika um helgina. Þar
mun hún koma fram ásamt stúlkna- og
barnakór auk þess sem eiginmað-
ur hennar og dóttir munu syngja á
tónleikunum.
„Þetta eiga bara að vera skemmtilegir tónleikar
þar sem fólk getur farið í kirkju og upplifað
sanna jólastemningu,“ segir Regína Ósk
Óskarsdóttir söngkona sem heldur tvenna jóla-
tónleika um helgina. Tónleikarnir fara fram í
Lindakirkju á laugardag og í Víðistaðakirkju á
sunnudag og hefjast klukkan 17 báða dagana.
„Ég ákvað að hafa litla tónleika í Lindakirkju
og fékk til liðs við mig gamla kórstjórnandann
minn, Áslaugu Bergsteinsdóttur sem er með
stúlkna- og barnakór í Víðistaðakirkju. Þá
fannst prestinum sniðug hugmynd að hafa líka
tónleika þar, svo þetta urðu allt í einu tvennir
tónleikar,“ segir Regína. „Ég var í kór hjá
Áslaugu í tíu ár þegar ég var yngri og hún er
frábær stjórnandi,“ bætir hún við.
Auk Áslaugar og kórsins hefur Regína
fengið fjölskyldu sína til liðs við sig og ætlar
eiginmaður hennar, Svenni Þór Árnason, og
dóttir hennar, Aníta sjö ára, bæði að syngja
á tónleikunum. „Svona til að krydda þetta og
gera þetta skemmtilegra ætlum við Aníta að
syngja dúett og svo syngur hún líka ein. Hún
er búin að vera þrjár annir í Söngskóla Maríu
Bjarkar og finnst rosalega gaman að syngja.
Svenni ætlar svo að taka lagið og spila á
gítar og trommur,“ útskýrir Regína, en Pálmi
Sigurhjartarson spilar undir á píanó. Regína
viðurkennir að æfingar fyrir tónleikana fari
gjarnan fram heima. „Við fjölskyldan höfum
verið að æfa í stofunni með Pálma. Svo förum
við út í kirkjuna enda sé ég Lindakirkju út um
gluggann.“
Eini fjölskyldumeðlimurinn sem syngur
ekki á tónleikunum er Aldís María, enda
aðeins hálfs árs gömul. Hún verður þó ekki
fjarri góðu gamni því hún verður meðal tón-
leikagesta um helgina. „Bæði mamma og
barnapíurnar mínar langar svo að koma að það
getur enginn passað. Hún verður því bara með,
enda verða þetta fjölskylduvænir tónleikar
og ég vil endilega fá fullt af krökkum,“ segir
Regína.
Að sögn Regínu eru efnistökin á tónleikunum
fjölbreytt. „Þetta eru lög sem ég var að syngja
í kór þegar ég var yngri og hef gert að mínum,
í bland við klassísk jólalög sem ég hef verið
að syngja út um hvippinn og hvappinn. Við
ætlum að hafa þetta lágstemmt og þægilegt og
fylla kirkjuna af kertaljósum,“ segir Regína
sem vonast til að sjá sem flesta á tónleikunum.
Miðar verða seldir við innganginn, en frítt er
fyrir börn 12 ára og yngri. alma@frettabladid.is
FJÖLSKYLDAN SYNGUR MEÐ REGÍNU
FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR Svenni Þór, eiginmaður Regínu, og dóttir hennar, Aníta sjö ára, ætla bæði að syngja á
tónleikunum með Regínu um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Hljómsveitin Stóns heldur tvenna
tónleika um helgina. Þeir fyrri
fara fram í kvöld á Græna hatt-
inum á Akureyri og þeir seinni
annað kvöld á Sódómu í Reykja-
vík. Blaðamaður hitti þá á Þremur
frökkum og lét þá smakka kæsta
skötu. Enda ekki á hverjum degi
sem Stóns fá sér skötu.
Það eru þeir Bjarni Sigurðarson
(Keith Richards), Frosti Runólfs-
son (Charlie Watts) og Björn Stef-
ánsson (Mich Jagger), sem bíða
spenntir eftir matnum. „Þetta
er í fyrsta sinn sem við spilum á
Akureyri og í annað sinn sem við
spilum á Sódómu. Við erum þar
með búnir að brjóta þá reglu að
spila aldrei á sama stað oftar en
einu sinni,“ segir Frosti, trommu-
leikari sveitarinnar.
Þegar skatan er borin á borð
slær þögn á hópinn. Hvorki Frosti
né Bjarni hafa bragðað á þessum
þjóðarrétti Íslendinga og virðast
tregir til að smakka. Það er aðeins
Björn sem tekur strax til matar
síns enda vanur maður á ferð.
„Það er sama lykt af þessu og var
af hárinu á mér þegar ég aflitaði
það síðast. Það er einhvers konar
ammoníak-lykt af þessu,“ segir
Frosti sem smakkar einn bita.
Bjarni samsinnir þessu. „Þetta er
algjör viðbjóður. Þá kýs ég held-
ur gömlu góðu smalabökuna. Við
erum greinilega ekki nógu miklir
menn fyrir þetta.“
Þegar hér er komið sögu hefur
Björn lokið við fyrri skammtinn
og biður kurteislega um meira.
„Ég er að fíla þetta. Þetta er hollt
og hreinsar líkamann af óþverra
og svo hef ég heyrt að þetta bæti
ónæmiskerfið,“ segir hann.
Þegar blaðamaður spyr hvort
þeir telji að þeir muni einhvern
tímann bragða skötu aftur útiloka
þeir það ekki. „Þetta er gott sport.
Ég verð líka búinn að gleyma
deginum í dag á morgun,“ segir
Bjarni Tónleikarnir á Græna
hattinum hefjast 22.00 í kvöld og
tónleikarnir á Sódómu Reykja-
vík hefjast klukkan 24.00 annað
kvöld. - sm
Stónsmenn bragða
kæsta skötu
ROKKARAR BORÐA SKÖTU Piltarnir í hljómsveitinni Stóns borðuðu kæsta skötu á
veitingastaðnum Þrem frökkum og þótti þeim sitt hvað um réttinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Emma Watson er hæst launaða
leikkona áratugarins. Watson
leikur Hermione Granger í kvik-
myndunum um Harry Potter
sem hófu göngu sína 2001. Hún
er með hærri laun en leikkonur
á borð við Juliu Roberts, Halle
Berry og Cameron Diaz og er nú
komin í heimsmetabók Guinness
fyrir vikið.
Leikkonan, sem er 19 ára,
hefur leikið í sex kvikmyndum
auk þess sem hún talaði inn
á teiknimyndina The Tale of
Despereaux. Í viðtali við breska
fjölmiðla sagði Watson vinsæld-
ir Harry Potter-myndanna hafa
komið sér á óvart, en hún var
aðeins níu ára þegar hún fór í
prufu fyrir hlutverkið árið 1999.
„Ég hafði ekki hugmynd um
stærðargráðu myndanna. Ef ég
hefði vitað það hefði ég orðið
agndofa,“ segir hún.
Watson með
hæstu launin
EFNUÐ Emma Watson er hæst launaða
leikkona síðustu tíu ára, en hún er
aðeins nítján ára gömul.