Fréttablaðið - 18.12.2009, Síða 120
80 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
FÓTBOLTI Heiðar Geir Júlíusson
er þessa dagana til reynslu
hjá sænska B-deildarfélaginu
Jönköping. Fyrr í vikunni var
hann hjá Ängelholm sem leikur
í sömu deild. Þjálfara þess liðs,
Roar Hansen, fannst mikið til
hans koma.
„Hann býr greinilega yfir mikl-
um hæfileikum þó að hann sé
aðeins 22 ára gamall. Hann hefur
þegar spilað í sænsku úrvalsdeild-
inni með Hammarby og fleiri
tímabil í efstu deild á Íslandi,“
sagði Hansen. Heiðar Geir var
hjá Hammarby árið 2007 en hefur
verið á mála hjá Fram. Hann er nú
samningslaus.
„Ég hef verið að skoða mig um
hér og þar en ég er nú búsettur í
Kaupmannahöfn þar sem kærast-
an er í skóla,“ sagði Heiðar Geir
við Fréttablaðið í gær. „Sumir
kannast vissulega við mig hér
síðan ég var hjá Hammarby en ég
hef vonandi þroskast eitthvað sem
leikmaður síðan þá.“
Hann segir framtíðina óráðna
eins og er en hann hefur verið
duglegur að æfa, bæði sjálfur og
með hinum ýmsu liðum í haust.
„Landslagið er mjög erfitt þessa
dagana vegna þessarar fjárhags-
krísu og því hefur þetta geng-
ið mjög hægt. Mér stendur þó
til boða að fara til reynslu hjá
félögum í Svíþjóð og Danmörku
og þetta verður bara að fá að taka
sinn tíma,“ sagði Heiðar.
„En ég er opinn fyrir öllu.
Maður hefur auðvitað alltaf stefnt
að því að spila erlendis en það
getur svo bara vel verið að þetta
endi með því að maður spili heima
næsta sumar.“
Ängelholm varð í sjöunda sæti
sænsku B-deildarinnar á síðasta
tímabili og Jönköping í því tíunda.
Heiðar Geir lék á sínum tíma ell-
efu leiki í sænsku úrvalsdeildinni
með Hammarby og skoraði í þeim
eitt mark. Hammarby féll reyndar
úr deildinni í haust og leikur því í
Superettan á næsta ári. - esá
Heiðar Geir Júlíusson til reynslu hjá félögum í Svíþjóð og Danmörku:
Æfir með sænskum félögum
HEIÐAR GEIR Hér í leik með Fram í
Pepsi-deildinni í sumar. Hann skoraði
fjögur mörk í 21 leik í deildinni í sumar.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÖRFUBOLTI Það verður Íslendinga-
toppslagur í sænsku úrvalsdeild-
inni í kvöld þegar liðið í þriðja
sæti, Sundsvall, tekur á móti lið-
inu í öðru sæti, Solna. Helgi Már
Magnússon og félagar í Solna voru
búnir að vinna tíu leiki í röð þegar
þeir töpuðu naumlega á móti topp-
liði Norrköping á dögunum og því
mega þeir ekki við tapi á móti
Jakobi og félögum í Sundsvall ef
þeir ætla ekki að missa Norrköping
of langt frá sér.
„Við erum í fínum málum. Við
viljum alls ekki tapa þessum leik
því þá er Norrköping eitt á toppn-
um. Þeir eru núna tveimur stig-
um á undan okkur. Ef við ætlum
að vinna deildarmeistaratitilinn
væri gott að hanga áfram í Norrk-
öping,“ segir Helgi Már en auk
Solna og Sundsvall eru Norrköp-
ing og Plannja Basket í hópi efstu
liðanna.
„Ég er mjög ánægður með stöð-
una á liðinu og hvað við erum
ofarlega miðað við það sem liðið
er búið að ganga í gegnum. Siggi
fór þarna í byrjun tímabils og við
skiptum báðum útlendingunum út
og fengum nýja í staðinn. Það er
búið að vera mikið um breytingar
hjá okkur,“ segir Helgi en Solna
er búið að vinna 16 af 19 leikjum
sínum á tímabilinu.
Helgi Már segir Solna-liðið
munu hafa sérstakar gætur á Jak-
obi í kvöld. „Þeir eru þarna tveir,
Jakob og Mats Levin. Það eru
þessir tveir leikmenn sem þarf að
stoppa því hinir þrífast á þeim,“
segir Helgi Már. Hann og Jakob
urðu Íslandsmeistarar saman með
KR í fyrra, spiluðu saman upp alla
yngri flokkana með KR á sínum
tíma og hafa spilað fjölmarga
landsleiki saman.
„Ég hafði aldrei spilað við Kobba
áður og ég held að þetta sé í fyrsta
skiptið sem ég spila við einhvern
af mínum æskuvinum. Maður er
búinn að æfa með honum síðan
hann var þrettán ára þannig að
þetta verður pínulítið sérstakt,“
segir Helgi Már.
Jakob hefur verið í aðalhlutverki
hjá Sundsvall í vetur og er sjöundi
stigahæsti leikmaður deildarinn-
ar. Helgi Már er fjölhæfur leik-
maður og það sem hann leggur
til liðsins sést oft ekki í tölfræð-
inni. „Hann er búinn að spila svo
vel hérna að mann langar að taka
aðeins á honum. Ég ætla aðeins að
negla hann,“ segir Helgi Már í létt-
um tón en hann er með 9,1 stig og
4,4 fráköst að meðaltali á 19,0 mín-
útum með Solna í vetur.
„Ég hef verið að koma inn af
bekknum í síðustu leikjum og er
sjötti maðurinn. Það var eftir að
við fengum nýjan leikmann sem
hefur verið að spilað í Evrópu.
Hann er 22 ára og mjög hæfileika-
ríkur leikmaður sem allir héldu að
væri að fara í NBA fyrst,“ segir
Helgi Már um bakvörðinn Rudy
Mbemba sem kom inn í liðið í tólf-
tu umferð. „Hann tók mitt sæti í
byrjunarliðinu. Svona menn eru
ekki að fara að sitja á bekknum
og ég vissi það alveg þegar hann
kom,“ segir Helgi en það er gengi
liðsins sem skiptir hann mestu
máli.
„Maður er í þessu til að keppa
um titlana. Mér líður vel hérna og
það er gaman að því að það er fullt
af leikjum. Við erum að spila fjöru-
tíu leiki fyrir úrslitakeppni. Ég hef
aldrei spilað svona þétt á ferlinum.
Það eru tveir og stundum þrír leik-
ir í viku. Fyrir leikmann er þetta
alveg æðislega gaman, sérstaklega
þegar maður er að vinna. Ég veit
ekki hvernig þetta er þegar maður
er að tapa en það er örugglega
ekkert gaman,“ segir Helgi.
Fram undan er jafn og spenn-
andi leikur og það verður gaman
að sjá hvor vinanna hefur betur
í þetta skiptið, Helgi Már eða
Jakob.
„Síðasta leik unnum við með
þremur stigum þar sem þeir
klikkuðu á þristi á lokasekúndun-
um. Þetta verður hörkuleikur því
þeir eru með mjög gott lið og verða
örugglega erfiðir viðureignar.“
ooj@frettabladid.is
Ég ætla aðeins að negla hann
Helgi Már Magnússon og Jakob Örn Sigurðarson mætast í kvöld með liðum sínum í sannkölluðum topp-
slag í sænsku úrvalsdeildinni. Lið Helga, Solna, vann fyrsta leik liðanna með tveimur stigum en nú eru
Jakob og félagar í Sundsvall á heimavelli. Fréttablaðið heyrði í Helga Má fyrir leik kvöldsins.
MEÐ KR Í FYRRA Helgi Már Magnússon sést hér skora í leik með KR-ingum í fyrra-
vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Fernando Torres skoraði
sitt 61. mark fyrir Liverpool í 2-
1 sigri á Wigan á miðvikudags-
kvöldið en þetta var hans hundr-
aðasti leikur fyrir félagið.
Aðeins þrír aðrir leikmenn
hafa skorað fleiri mörk í fyrstu
100 leikjum sínum fyrir Liver-
pool. Roger Hunt (68), Sam Ray-
bould (68) og Jack Parkinson (64)
skoruðu fleiri mörk en Spánverj-
inn en John Aldridge og Albert
Stubbins skoruðu jafnmikið.
Torres skoraði hins vegar
fimm mörkum meira en Ian
Rush, sem skoraði sex mörkum
færra í sínum fyrstu 100 leikjum
sínum fyrir Liverpool. - óój
Markaskorara-saga Liverpool:
Torres skorar
meira en Rush
35 MÖRK Í 37 LEIKJUM Fernando Torres
raðar inn mörkum á Anfield. MYND/AFP
KÖRFUBOLTI Íslandsmeistaralið
Hauka í kvennakörfunni hefur
tapað fjórum leikjum í Iceland
Express deildinni á sárgrætileg-
an hátt. Haukaliðið hefur tapað
þrisvar sinnum með aðeins einu
stigi og síðan einum leik í fram-
lengingu eftir að hafa verið 12
stigum yfir í lokaleikhhlutanum.
Haukar töpuðu 64-65 fyrir
Hamri á Ásvöllum á miðvikudags-
kvöldið þar sem Heather Ezell,
frábær bandarískur leikmaður
liðsins, klikkaði á tveimur af
þremur vítum sínum í blálok
leiksins. Haukar töpuðu líka fyrri
leiknum við Hamar með einu
stigi.
Haukaliðið er nú í 6. sæti deild-
arinnar en ef liðið hefði klárað
þessa fjóra leiki væri liðið fjórum
sætum ofar og næsta lið á eftir
KR. Það hefur því svo sannarlega
vantað alla meistaraheppni í
Haukaliðið í vetur. - óój
Kvennalið Hauka í körfunni:
Engin meistara-
heppni í vetur
ÖFLUG Heather Ezell hefur haldið
Haukaliðinu uppi í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Iceland Express karla
Breiðablik-Stjarnan 74-89 (34-41)
Stig Breiðabliks: Jonathan Schmidt 25, Jeremy
Caldwell 15, Þorsteinn Gunnlaugsson 13,
Aðalsteinn Pálsson 8, Hjalti Friðriksson 6, Daníel
Guðmundsson 3, Gylfi Már Geirsson 2, Sæmund-
ur Oddsson 2.
Stig Stjörnunnar: Justin Shouse 25, Jovan
Zdravevski 25, Fannar Freyr Helgason 10, Magnús
Helgason 10, Birkir Guðlaugsson 8, Kjartan
Kjartansson 7, Birgir Björn Pétursson 2, Ólafur
Aron Ingvason 2.
Njarðvík-FSu 99-47 (59-25)
Stigahæstir: Guðmundur Jónsson 17, Jóhann
Árni Ólafsson 16, Magnús Þór Gunnarsson 16
(9 stoðs.), Hjörtur Hrafn Einarsson 13, Kristján
Sigurðsson 8 - Kjartan Kárason 13, Dominic
Baker 11, Aleksas Zimnickas 9, Dominik Peter 8.
Tindastóll-Fjölnir 90-75 (39-41)
Stigahæstir: Svavar Birgisson 22, Helgi Rafn
Viggósson 20 (9 fráköst), Amani Bin Daanish 19
(9 fráköst), Axel Kárason 6, Michael Giovacchini
5 (10 stoðsendingar) - Christopher Smith 20 (13
fráköst), Tómas Heiðar Tómasson 16, Ægir Þór
Steinarsson 15 (10 stoðsendingar, 8 fráköst),
Magni Hafsteinsson 11, Arnþór Freyr Guðmunds-
son 7.
ÚRSLITIN Í GÆR
KÖRFUBOLTI Stjarnan og Njarðvík
unnu bæði sína leiki í Iceland
Express-deild karla í gærkvöldi
og komust því bæði upp fyrir
Íslandsmeistara KR sem höfðu
komist í toppsætið með sigri á
Snæfelli á þriðjudagskvöldið.
Öll þrjú liðin eru jöfn að stig-
um en Stjörnumenn sitja í topp-
sætinu yfir jólin þar sem Garð-
bæingar unnu innbyrðisleiki
sína við bæði Njarðvík og KR.
Stjörnumenn hafa auk þess unnið
alla fjóra leiki sína á móti liðun-
um í 2. til 5. sæti deildarinnar.
Blikar héldu í við Stjörnumenn
í fyrsta leikhluta og staðan var
20-20 eftir hann. Stjörnumenn
voru komnir með sjö stiga forskot
í hálfleik, 34-41, og stungu síðan
af í upphafi seinni hálfleiks.
Blikar náðu að koma aðeins til
baka og minnkuðu muninn í níu
stig, 55-64, fyrir lokaleikhlutann.
Þeir komust þó ekki mikið nær
Stjörnuliðinu sem vann á endan-
um með fimmtán stigum.
Stjörnumenn unnu þarna sinn
fjórða leik í röð eftir að hafa
tapað tveimur leikjum í röð um
miðjan nóvembermánuð. Justin
Shouse og Jovan Zdravevski fóru
að vanda fyrir liðinu en þeir voru
báðir með 25 stig í gær.
Sigurinn í gær kórónar frá-
bært ár Stjörnumanna undir
stjórn Teits Örlygssonar en liðið
vann fyrstu tvo titla sína undir
hans stjórn á þessu ári, bikarinn
í febrúar og meistarakeppni KKÍ
fyrir tímabilið.
Tindastóll komst upp að
hlið Hamars í 8. sæti Iceland
Express-deildar karla eftir 90-
75 sigur á Fjölni á Sauðárkróki.
Fjölnismenn áttu ágæta spretti
en Tindastólsmenn tóku völdin
í þriðja leikhlutanum og unnu
að lokum fimmtán stiga sigur.
Amani Bin Daanish lék þarna
sinn síðasta leik með Stólun-
um en Tindastóll hefur ákveðið
að láta hann fara alveg eins og
Grindavík gerði í októbermánuði
síðastliðnum.
FSu skoraði aðeins 47 stig á
móti Njarðvík í Ljónagryfjunni
og tapaði því öllum ellefu leikj-
um sínum í fyrri umferðinni.
Njarðvíkingar hafa unnið alla
sex heimaleiki vetrarins í deild
og bikar og það sem meira er
hafa þeir haldið andstæðingum
sínum undir 70 stigum í síðustu
fjórum deildarleikjum sínum í
Njarðvík. - óój
Stjarnan og Njarðvík unnu bæði í gær og sendu KR niður í 3. sætið í Iceland Express-deildinni:
Stjörnumenn sitja á toppnum um jólin
25 STIG Í GÆR Stjörnumaðurinn Jovan
Zdravevski hefur spilað mjög vel fyrir
Garðbæinga á þessu tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM