Fréttablaðið - 18.12.2009, Síða 126
86 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. skíðaíþrótt, 6. frá, 8. forsögn, 9. pili,
11. fyrir hönd, 12. rusl, 14. veldis, 16.
tveir eins, 17. einatt, 18. í viðbót, 20.
tvíhljóði, 21. gefa frá sér reiðihljóð.
LÓÐRÉTT
1. lengdareining, 3. í röð, 4. skynja, 5.
lík, 7. sviptur veruleikaskyni, 10. mán-
uður, 13. sjáðu, 15. högg, 16. þvottur,
19. íþróttafélag.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. brun, 6. af, 8. spá, 9. rim,
11. pr, 12. drasl, 14. ríkis, 16. tt, 17.
oft, 18. auk, 20. au, 21. urra.
LÓÐRÉTT: 1. yard, 3. rs, 4. upplifa,
5. nár, 7. firrtur, 10. maí, 13. sko, 15.
stuð, 16. tau, 19. kr.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Meiri hamingja.
2 Breiðabliks.
3 Halldór Halldórsson.
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Þessa dagana er ég mjög hrif-
inn af Kryddlegnum hjörtum á
Skúlagötunni. Ég fæ mér yfirleitt
sjávarrétta- eða kjötsúpu og
salat, en stundum löngu eða
hlýra í tandoori.“
Sölvi Tryggvason sjónvarpsmaður.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra var á dögunum valin
ein af hetjum ársins af tímaritinu
Mandate, sem fjallar um málefni
samkynhneigðra. Þetta er í 14.
skipti sem tímaritið setur listann
saman, en valdar eru hetjur og
skúrkar sem voru að einhverju leyti
áberandi í baráttu samkynhneigðra
á árinu. Jóhanna er í góðum
félagsskap á listanum, en á meðal
hetja eru söngkonurnar
Lady Gaga og Mariah
Carey ásamt Adam
Lambert, sem kom
út úr skápnum í kjöl-
farið á því að hafa
lent í öðru sæti
í bandaríska
Idolinu.
Danska bókaforlagið Torgard hefur
keypt réttinn á bókinni Síðustu
dagar móður minnar, eftir Sölva
Björn Sigurðsson og áætlar að
gefa hana út á næsta ári. Bókinni
hefur verið vel tekið hér á landi og
var til dæmis á lista
bóksala yfir bestu
bækur ársins. Torg-
ard kann greini-
lega vel að meta
verk Íslendinga þar
sem forlagið gefur
einnig út verk Þórar-
ins Leifssonar
og Huldars
Breiðfjörð.
Talandi um bækur, þá vakti frétt
Fréttablaðsins í gær, um Egil
„þykka“ Einarsson og Karl Ágúst
Úlfsson, nokkra athygli. Þeir eru
óvæntu pennarnir á topplistunum,
en bækur þeirra hafa selst vel
undanfarið. Einnig þykir
athyglisvert að á met-
sölulista Hagkaupa
hefur sjaldan verið
meiri vöðvamassi.
Þar er vöðvatröllið
Jói Fel á toppnum og
Egill „þykki“
aðeins
neðar.
- afb
FÓLK Í FRÉTTUM
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
„Þetta breytir engu fyrir mig, ég
mun rappa og rífa kjaft ef ég er
í þeim gírnum. Menn munu bara
sjá framan í mig þegar ég byrja,“
segir Bubbi Morthens. Stöð 2 sýnir
beint frá Þorláksmessutónleikum
hans en þetta verður í 25. sinn sem
Bubbi spilar á þessum tíma. Tón-
leikarnir eru í Háskólabíói en Rás
2 útvarpaði þeim um árabil. Því
var hins vegar hætt þegar stjórn-
endum í Efstaleitinu þótti tónlist-
armaðurinn fara yfir strikið í töl-
uðu máli. Pálmi Guðmundsson,
framkvæmdastjóri dagskrársviðs
hjá 365 miðlum, segir hlutverk
stöðvarinnar eingöngu að sjón-
varpa tónleikunum beint. „Tón-
listarval og efnisval verður alfar-
ið í höndunum og á ábyrgð Bubba
Morthens,“ segir Pálmi.
Kóngurinn hefur reyndar farið
mikinn á öldum ljósvakans að und-
anförnu og nýverið var greint frá
því að honum hefðu borist kurt-
eisleg tilmæli frá dagskrárstjóra
Ríkisútvarpsins, dr. Sigrúnu Stef-
ánsdóttur, að láta meira fara fyrir
tónlist í þætti sínum Færibandinu
sem útvarpað er á mánudagskvöld-
um, en minna fyrir töluðu máli.
„Auðvitað veltur þetta allt á því í
hvernig stuði ég verð. Ég hef spil-
að á þessum tónleikum án þess að
segja orð. En eins og þetta ár hefur
verið finnst mér það nú ekki lík-
legt að ég muni þegja. Ég hef alltaf
sagt mínar skoðanir umbúðalaust
og það hefur stundum farið fyrir
brjóstið á fólki og stundum ekki.“
Hann bætir því við að auðvitað sé
þetta líka spurning um framsetn-
ingu. „Maður getur gagnrýnt fólk
án þess að vera andstyggilegur.“
En Bubbi kemur við sögu á fleiri
stöðum hjá Stöð 2 því hann frum-
flytur nýtt lag í þætti Loga Berg-
manns í kvöld. Bubbi er á árinu
búinn að semja þjóðhátíðarlag,
Eurovision-lag og nú er komið
að jólalagi, því fyrsta á löngum
ferli. „Ég byrjaði að juða í Bubba
strax fyrir fyrsta þátt, hvort
hann ætti ekki jólalag og ætlaði
ekki að gera jólaplötu og svona,“
segir Logi, sem verður að teljast
ábyrgur fyrir þessari uppákomu.
„Ég hélt áfram að juða í honum í
fyrra en það gekk ekkert heldur.
Svo hélt ég bara áfram juðinu núna
og það virðist hafa skilað árangri
því hann ætlar að spila jólalagið í
kvöld,“ segir Logi, sem hefur ekki
hugmynd um hvað lagið heitir. „Ég
hringdi í hann á þriðjudaginn og
spurði hvernig gengi en þá var
hann ekki einu sinni byrjaður á
laginu. Sagðist bara ætla að semja
það á föstudagsmorguninn og var
alveg svalur.“ freyrgigja@frettabladid.is
drgunni@frettabladid.is
BUBBI MORTHENS: BREYTIR ENGU FYRIR MIG
Þorláksmessutónleikar
Bubba í beinni á Stöð 2
GEFUR EKKERT EFTIR Þorláksmessutónleikar Bubba Morthens verða í beinni útsend-
ingu á Stöð 2. Kóngurinn hefur einnig samið jólalag sem verður frumflutt í þætti
Loga Bergmanns í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við höfum gert þetta undanfarin
þrjú ár í samvinnu við yfirstjórn
fangelsisins og þetta hefur alltaf
mælst mjög vel fyrir hjá föngun-
um,“ segir Kristján Bjarki Jónas-
son, formaður Félags bókaútgef-
anda. Í dag fer fríður hópur frá
félaginu með yfir þrjú hundruð
bækur á Litla-Hraun. Stærstum
hluta þeirra verður varið í jóla-
gjafir handa fjölskyldum fang-
anna því eins og gefur að skilja
eiga þeir erfitt með að kaupa jóla-
gjafir handa sínum nánustu.
„Margrét Frímansdóttir, fang-
elsisstjóri á Litla-Hrauni, hefur
sagt okkur að jólin séu mjög erfið-
ur tími fyrir fangana og þeir fyll-
ist oft kvíða þegar þau nálgast, ein-
mitt vegna þessarar staðreyndar,
að geta ekki keypt jóla-
gjöf. Okkur finnst því
bara gott að geta lagt
þeim aðeins lið,“ segir
Kristján og bætir við
að einhver hluti bók-
anna rati einnig á
bókasafn fangels-
isins. Og án þess
að vilja upplýsa
of mikið segir
Kristján að
fjórar
bækur
standi
upp
úr
hvað vinsældir varðar á óskalist-
um fanganna. „Já, Svörtuloft eftir
Arnald Indriðason var mjög ofar-
lega og svo ævisögur Gylfa Ægis-
sonar og Vilhjálms Vilhjálms-
sonar.“ Kristján bætir því við að
Heimsmetabók Guinness sé einnig
vinsæl gjöf sem og Stóra stráka-
bókin en þar er kennt hvernig eigi
að hnýta sígilda hnúta og byggja
trjákofa. - fgg
Fangar gefa Svörtuloft og Gylfa Ægis
JÓLAGJAFIR FYRIR FANGA Fangar eiga
erfitt með að kaupa jólagjafir handa
sínum nánustu en Félag bókaútgefenda
leggur þeim lið og gefur þrjú hundruð
bækur. Kristján B. Jónasson segir
Svörtuloft og ævisögu Gylfa Ægis vera
vinsælastar.
Nú er víða verið að gera upp ára-
tuginn sem er að líða. Þegar plöt-
ur áratugarins eru teknar saman
er nánast öruggt að einhver plata
með Sigur Rós ratar á listann. Þótt
Ágætis byrjun hafi komið út árið
1999 og tilheyri því síðustu öld í
íslenskum annálum kom hún út
árið 2000 á alþjóðamarkaði. Síðan
komu ( ), Takk og Með suð í eyrum
við spilum endalaust, auk ýmissa
aukaplatna.
Það nýjasta í sigurgöngu Sigur
Rósar á listunum er í öðru sæti á
lista Metacritic yfir þá listamenn
sem hæst skor fá á áratugnum.
Metacritic safnar saman á einn
stað dómum víðs vegar að og er
Sigur Rós með meðaleinkunnina
83,5 af 100 mögulegum fyrir fjór-
ar plötur. Aðeins kanadíska hljóm-
sveitin Spoon er með hærra skor.
Sigur Rósar-strákarnir eru minnst
að spá í þetta.
„Nei, maður er nú ekkert að leita
þetta uppi, en ef maður sér eitt-
hvað um þetta í Fréttablaðinu er
það bara frábært og gaman,“ segir
Georg bassaleikari. „Við pælum
satt að segja ekkert í þessu.“
Georg segir Sigur Rós í barn-
eignarfríi. „Stelpan hans Kjartans
er orðin eins árs, ég var að eign-
ast mitt þriðja barn fyrir tveim-
ur mánuðum og Orri á von á einu
í næsta mánuði. Við erum bara
rólegir og Jónsi er á fullu í sínu
dóti. Það er bara að leyfa honum
að klára það. Við njótum bara lífs-
ins með börnunum á meðan.“ - drg
Ekkert að spá í sigurgönguna
DÆMI UM ÁRANGUR SIGUR RÓSAR
■ Ágætis byrjun (29. sæti) og ( ) (76. sæti) á lista Rolling Stone
■ Ágætis byrjun (8. sæti) á lista Pitchfork
■ Ágætis byrjun (13. sæti) á lista Emusic
■ Ágætis byrjun (97. sæti) á lista NME
■ Með suð í eyrum við spilum endalaust (25. sæti) á lista Paste
Í BARNEIGNARFRÍI Sigur Rósar-strákarnir
slappa nú af með börnunum, nema
Jónsi sem verður á fullu á næstunni
með sólóplötuna Go.