Vikan


Vikan - 25.01.1962, Blaðsíða 31

Vikan - 25.01.1962, Blaðsíða 31
•UÐRON Rauðarárstíg 1 Tízkuverzlunin GuÖrún að Rarðarárstíg 1, er ein þekktasta verzlun sinnar tegundar hér í bæ, enáa hefur hún notið vaxandi vinsælda allt síðan að hún vai stofnuð 1955. Þar hefur ávallt verið á boðstólum tízkuvörur við hæfi flestra, hvort sem um er að ræða ungar stúlkur eða rosknar konur, — sem álla jafna eiga erfiðara með að fá tilbúinn klæðnað við sitt hæfi. Verzlunarstjóri fyrirtækisins og meðeigandi, Anna Borg, fyrrverandi flugfreyja, hefur sérstaklega kynnt sér rekstur slíkra verzlana erlendis og þjónustu við viðskiptavini. Fer hún utan oft á ári hverjtu til að fylgjast sem bezt með þvi, sem gerist í tízkumálum stórþjóðanna og tU innkaupa. Er það áhugamál hennar að hafa áváUt s'em nýjastar og beztar vörur. Til þess að hægt sé að endurnýja vörubirgðir verzlunarinnar að staðáldri, eru haldnar útsölur á ári hverju, og er þá verð stórlega lækkað. 1 framtiðinni er áformað að hafa ávallt góðan lager af kjólum, bæði dag- og síðdegiskjólum, svo og samkvæmiskjólum, sviss- neskum regnkápum, kápum frá Hollandi og Sviss, og pilsum frá Hollandi og Bandaríkjunum. VIlvAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.