Vikan


Vikan - 22.02.1962, Blaðsíða 4

Vikan - 22.02.1962, Blaðsíða 4
þad 30 aura pr. i vihunni Hjálpsöm eiginkona... Kæra Vika! Vandræði mín eru seniiega af óvenjulegum rótum runnin, en engu að síSur er þau að gera út af við mig. ÞaS er konan mín og næsta ótrúleg umhyggja hennar fyrir ná- grannanum, sem eiga sök á öllu saman. Á afmælisdegi konunnar minnar í maí-mánuði s). gaf ég henni sjálf- virka þvottavél, sem hún hafði lengi óskað sér. Setti hún hana upp í eld- húsinu. Sem sé siðan í maí-mánuði 1961 hefur eldhúsið verið útúrfullt af konum úr nágrenninu, gömlum-ung- um, mjóum-feitum, og guð einn veit hvaðan þær allar koma, þvi að fæst- ar þeirra hafði ég séS fyrir komu þvottavélarinnar. Þegar ég set út á þetta eilifa þvottavélarlán við konuna mína, fæ ég slíkt ásökunaraugnaráð, að ég hef á tilfinningunni, að ég sé heimsins mesti nöldurseggur. Ilvað á ég til bragðs að taka? — Erlingur. Ég er sammála konunni yðar, þér eruð hreint ótrúlegur nöldursegg- ur. Ég sting upp á því, að þér gefið nágrannakonunum sitt- hvora þvottavélina —• ja, eða eina stóra saman. Hvað skeður ekki í strætó... Kæri Póstur! Maðurinn minn gengur með þá grillu, að eitt af skyldustörfum hvers borgara sé að vera frjálslegur og alúðlegur við nágrannann. Þessi grilla hans fær aðallega útrás i strætó, þar sem hann sleppir varla manni framhjá sér án þess að segja einhvern smábrandara eða athuga- semd við hann. Ég skammast min alveg niður i tær, þar sem ég sé, að viðkomendur verða alltaf hálf- skömmustulegir og hrosa „nervöst“ að honum. Mér finnst hann verða sér algerlega til athlægis. Hvað finnst jjér? — Ein skömmustuleg. Ertu nú alveg viss um, að þú ýkir ekki eilítið, hvern einasta mann í strætó, segirðu? Mér finnst, að þú ættir að prísa þig sæla fyrir að eiga mann, sem er svo dásam- lega laus við að vera drumbur — ég veit um margar, sem mundu gjarna þiggja hann. Sorgarrendur Kæra Vika! Ég er með yndislegum strák, sem er hugulsamur, góður, fallegur og allt nema hann er alltaf svo óhreinn undir nöglunum. Ég þori ekki að tala um þetta við hann. Hvernig get ég vanið hann af þessu? — Lovísa. Gefðu honum naglasköfu í leður- hylki í afmælisgjöf. Kæra Vika! Mér þykir sárt að sjá hve margir unglingar þurfa að leita til Vikunn- ar með vandamál sín, i ástum, og öðru sem ungu hjarta finnst þung- bært, öfund, slúður, ekki réttar lín- ur, og allt mögulegt. Fyrst þetta unga fólk á ekki foreldra eða aðra nána vini, sem það getur rætt þetta við, þá fyndist mér mikil þörf á að barnaverndunarráð eða einhver önnur góð stofnun hefði til viðtals ráðunaut, bréflega, símlega, og svo augliti til auglits fyrir þá hug- rökku, sálfræðing, sem leiðbeindi þessum stóru börnum, „því langt þykir þeim sem búinn biður“, að biða í 3—4 vikur eftir svari í vikuriti. Getur illa farið á skemmri tima fyrir veikgeðja ungmennum. Hvað finnst þér kæri Póstur? Þú segir kannski bara: „Ja, margt getur konum komið i hug, ef þær eru einar heima á kvöldin“. Satt er það góði. Blessaður sértu. S. Sigfúss. Þessi umræddu bréf, sem birtast í Póstinum og fjölmörg önnur sem við birtum ekki af ýmsum ástæðum, sýna og sanna að mikið og merkilegt er hlutverk skrifta- föðurins. Það er sagt að ýmsir sálrænir kvillar séu sjaldgæfari meðal kaþólskra, sem alltaf geta leitað til skriftaföður. Hugmyndin um eins konar ráðunaut á vegum Barnavernd- arnefndar eða Æskulýðsráðs, finnst mér hreint ekki vitlaus og kem henni hér með á fram- færi. Af einhverjum ástæðum virðast unglingar að minnsta kosti ekki trúa foreldrum sínum fyrir þessum vandamálum. Kæri Póstur! Ég hef að undanförnu fylgzt með þáttum þínum, og haft gaman af. En satt að segja hef ég aldrei skilið, að menn skuli skrifa einhverjum þáttum til að fá vandamál sin leyst. Nú, þegar ég stend í sporum þessa fólks skil ég það. Skai ég nú segja þér, hver vandi mér er á höndum. Núna, ekki alls fyrir löngu, upp- götvaði ég mér til skelfingar, að ég virðist vera alvarlega hrifin af ein- um kennara minna, ef ekki blátt á- fram ástfangin. Að vísu hef ég alltaf dáð hann mjög sem kennara, en nú er ér hrædd um að eitthvað alvar- legra sé á ferðinni. Þessi umræddi maður er kvæntur og fjölskyldufað- ir, auk þess sem hann er mörgum árum eldri en ég. Ég er alltaf vön að vera a. m. k. hrifin af einhverjum jafnaldra minna (ég er í gagnfræðaskóla), en síðan ég hreifst af þessum manni, hef ég ekki litið við skólabræðrum mínum. Mér líður hræðilega illa, þvi mér finnst ég vera að drýgja glæp, með því að elska kvæntan mann. Því skrifa ég þér nú Póstur sæll, leita ráða hjá þér, því ég þori engum að segja frá þessu, ég skammast mín svo mikið. En, hvernig á ég að snúa mér í þessu? Svo vil ég þakka þér fyrirfram, í trausti þess að fá eitt- hvert heillaráð frá þér. Gagnfræðaskólastúlka, sem telur sig í vandræðum stadda. Þetta er ævagamalt vandamál, að ungar skólastúlkur verði ást- fangnar af kennurum sfnum og um það hafa verið skrifaðar sög- ur og jafnvel bækur. 4 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.