Vikan


Vikan - 22.02.1962, Blaðsíða 7

Vikan - 22.02.1962, Blaðsíða 7
1 tilefni af þeim aukningar-áfanga, sem nú hefur verið náð, vill Vikan gefa lesendum sínum örlitla mynd af þvi, hvernig svona blatS er sett saman, hversu mikinn tima það tekur og hve margir koma þar viS sögu. Þá er bezt að byrja á byrjuninni: Vikan er skipulögð um þaS bil sex vikum áSur en hún kemur út. ÞaS er nauSsynlegt að vinna blaðið þetta langt fyrirfram til þess aS vinnslan verði hagkvæm. Margt af efni blaðsins er þó unnið lengra fram i tímann, allt upp i átta vikur. BlaSiS stendur i sambandi við fyrirtæki i Stokkhólmi og kaupir þaðan sögur, ýmsa smáþætti og myndasögurnar. Margir halda, að myndasögurnar séu teknar upp úr dönsku blöðunum. Það er mesti misskilningur; dönsku blöðin kaupa bara myndasögur frá sama fyrirtækinu, Bulls Prasstjenst. Auk ritstjórans starfa tveir blaðamenn við Vikuna. Ritstjórinn ákveður efnið, safnar þvi sam- an og teiknar upp útlit blaðsins. Einn blaðamaður vinnur að innlendu efni og myndatökiun, en blaðakona Vikunnar er um þessar mundir á blaðamannaskóla í Þýzkalandi og kemur vænt- anlega aftur til blaðsins næsta haust. Þegar efnið liggur fyrir, er það látið ásamt skissu af útlitinu i hendur manns, sem gerir ná- kvæma vinnuteikningu fyrir prentsmiðjuna. Þegar þvi er lokið er liðin rúm vika frá þvi byrjað var á blaðinu. Prófarkalesarinn tekur nú öll handrit og fer yfir þau; samræmir merkja- setningp og leiðréttir villur, síðan fara handritin í setningu. Setning á öllu efni i Vikuna tekur um það bil viku. Þá er lesmálið „þrykkt af“ eins og það er kallað og síðan eru lesnar prófarkir. AS því loknu hefst umbrot, það er að segja siðunum er raðað saman eftir teikningunni. Þá er búið að gera myndamót, en þau eru gerð i mynda- mótavél Rafgraf h.f., sem er af fullkomnustu gerð sinnar tegundar. — Það tekur eina viku að raða efninu saman og þá koma auglýsingarnar til skjalanna; þær hafa verið settar nokkru áður, en nú koma myndamótin inn ásamt textum. Framhald á bls. 44. 1 hverri viku eru haldnir fundir, þar sem rætt er um efni blaðsins, auglýsingar, prentun og vinnslu. Hér eru talið frá vinstri: Guðmundur Karlsson, blaða- maður og Ijósmyndari Vikunnar, Davíð Áskelsson, prófarkalesari, Jóhannes Jörundsson, auglýsinga- stjóri, Gfsli Sigurðsson, ritstjóri, Hilmar A. Krist- jánsson, framkvæmdastjóri Hilmis h.f., Helga Finnsdóttir, blaðakona, sem nú er við nám á blaöamannaskóla i Þýzkalandi, Guðrún Leósdóttir, aðstoðarstúlka hjá auglýsingastjóra og næst á mynd- inni Runólfur Elentínusson, sem gerir vinnuteikn- íngar af blaðinu fyrir prentsmiðjuna. ;X; .-ý;: VIKAN 7

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.