Vikan - 22.02.1962, Blaðsíða 11
SíSustu árin hefur færzt mikið fjör í
reykvisk veitingahús; það kemur nálega
eitt nýtt á ári hverju og þau bjóða öll
uppá skemmtileg sérkenni.
Það má segja, að stofnun Nausts fyrir
nokkrum árum hafi hrundið þessari öldu
af stað. Mestan þátt í því átti Halldór
Gröndal, sem stýrir þeim stað enn þann
dag í dag af raunsn og glæsimennsku.
Það þarf varla að kynna Naustið fyrir
landsmönnum. Nálega allir vita, að inn-
réttingin minnir á gamalt skip, að það er
hægt að velja um meira en 50 rétti og
þar hefur verið lögð áherzla á allskonar
sjórétti. Þá vita Reykvikingar að minnsta
kosti, að Naustið byrjaði á skemmtiiegri
nýbreytni fyrir nokkrum árum; gaf mönn-
um kost á fyrsta flokks þorramat á þorr-
anum.
Halldór Gröndal er fæddur á Ránar-
götunni 1927 og hefur alltaf verið Vestur-
hæingur og RR-ingur að þvi er hann segir.
Faðir hans er Sigurður Gröndal, sem rek-
ið hefur veitingar í Valhöll á Þingvöllum.
Halldór fór i Verzlunarskólann og lauk
stúdentsprófi þaðan 1949. Hann hefur lik-
lega haft áhuga fyrir veitingamennsku í
blóðinu, þvi hann var farinn að hugsa
um þau mál á skólaárunum og vann fyrst
á Hótel Borg og síðar á Hressingarskál-
anum á námsárunum.
Halldór fór fyrst til Evrópu og kynnti
sér hótel og veitingahús þar og síðan fór
hann til náms i Cornell háskóla í íþöku
Framhald á bls. 43.
UNGT
FÓLK
Á UPPLEIÐ
Halldór Gröndal
veitingamaður
í Nausti
VIKAN 11