Vikan


Vikan - 22.02.1962, Qupperneq 18

Vikan - 22.02.1962, Qupperneq 18
\ n J|EGI var tekið að halla. Emmy sat meS prjónana sína inni í fátæklegri stofunni. Smábarna- fatnaður lá á víð og dreif og bar því Ijóst vitni að ekki hafði hin tilvonandi móðir setið með hend- ur i skauti undanfarna langa og einmanalega daga. Skyndilega fann hún það einhvern veginn á sér að óveður mundi i aðsigi. Andrúms- loftið varð þyngra, það dimmdi yf- ir og stakir stormsveipir hreyttu regndropum á rúður. Hún reis úr sæti sinu, gekk yfir að glugganum og horfði út. Mundi hún nú verða að þola þetta einu sinni enn — þessa löngu, kvíöa- þrungnu bið, þangað til Páll væri kominn heim, heill á húfi? Þessa bið, sem henni fannst að hún mundi aldrei geta vanizt eða sætt sig við. Nei, hún gat vist aldrei orðið honum sú eiginkona, sem skyldi. Hann hefði átt að velja sér konu úr fiskiþorpinu i stað þess að kvænast stúlku úr borginni. o G þó varð Emmy að and- mæla sínum eigin hugsun- um, einmitt hvað þetta snerti. Hún elskaði Pál, auðvitað vildi hún ekki fyrir nokkurn mun að hann hefði kvænzt annarri en sér, en hún hefði kosið að hann hefði aðra atvinnu. Engin kona gat afborið tii lengd- ar þessa þrotlausu bið og eftir- væntingu, þegar eiginmaðurinn var á sjónum, og þó var hún í sjálfu sér léttbær samanborið við skelf- inguna og óttann, sem lamaði mann í hvert skipti sem óveður skall á. Að minnsta kosti var Emmy þannig farið, og hún fékk aldrei skilið hvernig á þvi stóð, að hinar sjó- mannskonurnar gátu tek'íð þessu með slikri ró, sem raun bar vitni. Voru þær þá í rauninni ekki ger- samlega sviptar öllum tilfinningum, þessar þöglu, hlédrægu konur, sem henni hafði aldrei tekizt að komast í neina snertingu við þessi þrjú ár, sem hún hafði búið í þorpinu? Þeim var það jafn eðlilegt og and- ardrátturinn, að eiginmennirnir sæktu sjóinn, að þeir ættu það á hættu að hreppa storma og fár- viðri — og að sumir þeirra kæmu aldrei aftur i land . . . Emmy mundi aldrei auðnast að skilja þann hugs- unarhátt. Þær höfðu að vísu verið henni alltillegar fyrst í stað. Það var eitt af þvl sem Emmy gat aldrei fellt sig við, að það var þvi likast sem þorpsbúar skoðuðu fiskiverið sem eitt stórt heimili. Þær höfðu heim- sótt hana, konurnar, þegar hún var nýflutt i þorpið, eftir brúðkaupið, og þá höfðu þær spurt hana spjðr- unum úr, jafnvel um heimulegustu hluti. Páll hafði að vísu skilið af- stöðu hennar, en ráðlagt henni þó' að einangra sig ekki. Hún ætti að rabba við þær og reyna að semja sig að venjum þeirra og sjónar- miðum. Þeim gengi áreiðanlega ekki neitt illt til með forvitni sinni. Ef til vill hafði Páll þar lðg að mæla, en hún vildi eiga eithvað ein og út af fyrir sig. Henni gramd- ist það, að mega alltaf eiga von á þvi, hvernig sem á stóð, að einhver nágrannakonan rækist inn fyrin- varalanst, einungis til þess að fá kaffisopa og masa. Smám saman fór þessum óvæntu heimsóknum þó fækkandi. hvi Emmy hafði ekki stöð- ugt heitt á katlinum. Aftur á móti þóttist hún vita það, að þvi meira væri nú nm hana rætt yfir kaffi- bollunum i eldhúsum nágrannanna. TT iJfcARÐUR stormsveipur gaf til kynna að óveðrið væri skoll- ið á. Það var engu líkara en lág- reist húsið riðaði á grunni. Regnið og sædrifið buldi á rúðunum og 18 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.