Vikan - 22.02.1962, Page 31
— Ég fyrir mitt leyti, hef alltaf
álitið það skemtilegra að safna frí-
merkjum.
húsum og á vinnustað innan um
fjölda fólks. Kynni, sem takast við
þær aðstæður, verða öll önnur og
ópersónulegri en í þorpum og smá-
bæjum. Múgur og margmenni í skini
neonljósa á ekkert skylt við mann-
lega sambúð eða samfélag.
En maður má aldrei byggja til-
veru sína á umhverfinu. Margar
manneslcjur eru þannig gerðar, að
þær geta aldrei verið einar af ótta
við sjálfar sig, og sé svo, verður
viðkomandi að skapa sér tilveru inn-
anfrá en ekki utanfrá. Maður verð-
ur að skapa sér tilveru, heimili og
fjölskyldulíf, sem ekki byggist á um-
hverfinu, og ekki er háð því hvar
maður býr eða við hvaða skilyrði
maður býr, heldur blómgast og þró-
ast þrátt fyrir það. Samlif eigin-
manns og eiginkonu, samlíf þeirra og
barnanna, ailir heimilishættír —
það er þetta, sem fyrst og fremst á
að vera okkur traustur grundvöllur
alla daga og á hverju sem veltur hið
ytra, algerlega óháður þvi, hvar
maður býr eða hvort maður skiptir
um bústað og umliverfi.
Vissulega er vald vanans sterkt, og
það væri fásinna að viðurkenna ekki
þá staðreynd, að sumar manneskjur
eru þannig gerðar, að þær kunna
fyrst í stað illa við sig í nýju hús-
næði og nýju umhverfi. En yfirleitt
neyðast þær til að samlaga sig
breyttum aðstæðum — og yfirleitt
tekzt þeim það líka.
Það veit ég lika af eigin raun, að
svo fremi sem okkur tekst að sigrast
á óttanum við umbreytingarnar, eyk-
ur það okkur oft og tiðum þroska
að miklum mun. Það er þroslcandi að
kynnast nýjum viðhorfum, maður
öðlast skarpari sjón á sjálfan sig og
umhverfið. Það getur valdið manni
nokkrum sársauka á me-ðan breyt-
ingin stendur yfir, en reynslan ger-
ir mann sterkari og öruggari eftir á.
Sá sem er sjálfum sér nógur og
hefur náð jafnvægi í tilveru sinni,
óttast ekki að breyta um heimkynni
eða dvalarstað. Hann veit að hann
unir sér jafnvel í litlu þorpi og stór-
borg, og það breytir þar ekki neinu
um, hvert hann flytur eða fer. Það
byggist á öðru djúplægara, en þó
einföldu og auðskildu, — að reyna
að öðlast innra jafnvægi og sam-
ræmi. Þá er manni auðvelt að lifa
í sátt og samlyndi við aðra og um-
heiminn.
Sindrastóll gerð H-5
'Fæst hjá húsgagnaverzlunum víða um iand
$in4rAsmiðjfln h.f.
Hverfisgötu 42 — Sími 240G4.
VIKAN 31