Vikan


Vikan - 22.02.1962, Qupperneq 46

Vikan - 22.02.1962, Qupperneq 46
A G-5-2 y G-7 4 Á-D-9-8-7 * D-9-3 A u-9'7 ff D-6 4, K-10-6-5 ^ G-8-4-2 N V A S A V ♦ * 8-6 10-8-5-4-3 G-4-3-2 7-5 ^ Á-K-10-4-3 y Á-K-9-2 4 ckkert ^ Á-K-10-6 Suður gefur, A-V eru á hættu. Spilið i dag kom fyrir í lands- inóti Belgíumanna í tvímennings- keppni. Það er óvenjulegt að jiví leyti, að vestur er endaspilaður áð- ur cn hann spilar út. Sex spaðar virðast ekki ósann- gjarn samningur á N-S spilin, og séu þeir spilaðir i suðri standa þeir, því vestur verður að gefa tólfta slaginn á útkomunni. Flestir varn- arspitararnir i vestur spiluðu út tígli og voru mjög vonsviknir þeg- ar suður svínaði og fékk þar með tólfta slaginn. Þau pör, sem spiluðu Neopolitan Club sagnkerfið guldu mikið af- hroð, því að hjá þeim gengur sagn- ir, 1 lauf í suður og 1 spaði í norð- ur og þar með var spaðaslemman komin í norður. Austur spilar nú út hjarta og eðtilegt er að spihð tap- ist. Norður getur samt unnið spilið, en það er erfitt fyrir hann að sjá vinninginn. Hann verður að spila tveimur hæstu í hjarta og þriðja hjarta. Ef vestur trompar ekki, trompar sagnhafni og tekur stðan þrisvar tromp og vestur er enda- spilaður á trompdrottninguna. Ef vestur trompar með drottningunni og trompar til baka, þá trompar sagnhafi fjórða hjartað með spaða- gosa og fær þannig tólf slagi. Tveir sagnhafar töpuðu spilinu eftir tígulútspil frá vestri. Þeir svin- uðu tiglinum, köstuðu laufi og hjarta i há tiglana og spiluðu sið- an spaðagosa úr borði. Vestur drap með drottningu og spilaði meiri tígli. Suður trompaði en þegar hann reyndi að trompa hjartað, þá tromp- aði vestur yfir borðinu og spilið var einn niður. Það ct mjög vanhugsað af suðri að spila spaðagosanum úr borði, þar eð hann getur séð hættuna á yfir- trompun. Vilji hann endilega svina spaðanum verður hann að spila lágu úr borðinu og svína tiunni. Það er augljóst að hann þolir ekki að taka fyrst annan hæsta i trompi, þvi liggi drottningin þriðja á eftir eins og hún gerir, getur vestur tromp- að út i þriðja sinn og þar með fyr- irbyggt að suður geti trompað hjartað. Með lausa skrúfu. Framhald af bls. 24. Rn Soffía var setzt við símann. Blað- aði í símaskránni. — Soffia . . . hvað stendur eigin- lega til? — Halló, sagði Soffía þegar hún hafði valið númer. Hvenær fer næsta áætlunarflugvél til Hiami . . . Tvö sæti, þakka yður fyrir . . . Tony leit á úrið sitt. Tíu að kvöldi. Það var tími til kominn að hann legði af stað út á flugvöllinn til móts við Mario bróður sinn og konu hans. En fyrst varð hann eiginlega að tala við Shirl, og þvi kveið hann mest. Ef þau kæmust að því, að hann hefði hana búandi hjá sér . . . Og samt langaði hann hálft I hvoru að taka hana með sér. Einungis til þess að sjá svipinn á andliti þeirra. En hafði ekki efni á að leyfa sér slik- an munað. Ekki fyrr enn hann og Jerry voru búnir að reisa gistihúsið mikla. En þá skyldi hann líka . . . Eftir að símskeytið sem tilkynnti komu þeirra hjóna barst þeim feðg- um í hendur, var Ally stöðugt á þön- 46 VIKA2V um við að reyna að koma öliu í sem bezt horf. Einkennilegt hve drengur- inn hafði mikiar áhyggjur af öllum sköpuðum hlutum. Tony barði að dyrum á herbergi Shirl og gekk siðan inn. Hún sat við snyrtiborðið, klædd stuttum, gagn- sæjum náttkjól og engu öðru. Hann hallaði sér að henni; beit hana laust í hálsinn. —- Farðu, sagði hún. Eg er að lakka á mér neglurnar. — Hlustaðu nú á mig, Shlrl. Eg get ekki farið út með þér eða verið með þér i kvöld. Eg var að fá sim- skeyti. Bróðir minn og konan hans eru á leiðinni hingað. Eg verð að sækja þau út á flugvöllinn. — Ég kem með þér, sagði hún. Við förum bæði að sækja þau. — Ertu að reyna að vera fyndin? — Hvað er að? Vita þau ekki að þú ert orðinn nógu gamall til að vera með kvenfólki. Hann laut að henni. Neri nefbrodd- inum við brjóst hennar, en hún hratt honum frá sér. — Ég er nógu góð til að sofa hjá þér, en ekki til þess að þú getir látið sjá þig með mér. Ég er orðin þreytt og leið á öllum þess- um feiuleik. Ég skammast min ekkert fyrir að vera með bér, og ef ég er ekki nógu góð . . . þá vertu sæll og hallelúja. — Hlustaðu nú á mig, endurtók Tony. Þetta verður bara í nokkra daga, rétt á meðan þau eru hérna. Á eftir verður allt eins og var okkar á milli. Hún rak honum utan undir. Hann stóð og glápti á hana. — Hvað gengur eiginlega að þér? spurði hann. — Þú verður að hafa hraðann á, sagði hún og hratt honum úr dyr- unum. Rödd hennar var ísköid. Svo skellti hún hurð að stöfum. Hanm barði nokkrum sinnum, kallaði á hana, en hún svaraði ekki. Svo hélt hann niður stigann. — Gott þú kemur, sagði Ally. Þú ert að verða of seinn. Ef þú tefst í umferðinni .... -— Þú ert að, nöldrarinn þinn, svar- aði Tony og tók sér sæti á stól úti á veröndinni. Ally rak stöðugt á eftir honum og vitnaði í umferðina, en Tony sat sem fastast. Hann heyr'li lykli skellt harkalega á borðið I af- greiðsluherberginu og leit um öxl. Það var Shirl, sem hafði skilað lyklinum sínum. Hún bar litla ferða- tösku í annarri hendinni en bongo- trumbu í hinni og ferðaviðtækið I bandi um hálsinn. Allt sem hún átti. Tony reis á fætur og gekk til móts við hana. — Hvað gengur að þér? spurði hann. Hún reyndi að komast framhjá hon- um, en hann greip um arm henni og stöðvaSl hana. — Ég er farin, sagBi hún. — Hlustaðu nú á mig, Shirl. HvaS hef ég gert þér. Komdu — viS skul- um koma út að aka . . .“ Hann lagði arminn um bak henni, en hún Þrjózk- aðist við. ,,Þú hefur ekki skoðað nýja bílinn minn ennþá. Við skulum skreppa í smáökuferð. Svo getum við rætt málin nánar“. Hún virti hann fyrir sér andartak. Lét tilleiðast. Þau stigu inn í bílinn. Tony 6k af stað, síðan gegnum borgina og loks þangað sem enn var auður sandurinn. Þau töluðust ekki við. Lág og við- kvæm tónlist barst úr útvarpsviðtæk- inu. Hann hpmlaði, þegar bíllinn var kominn nibur I flæðarmálið. Kyssti hana á ennið, en hún renndi sér út úr bílnum, tók að dansa um sandinn. Hann varaðist að líta á hana, horfði í allt aðra átt. Þegar honum varð lit- ið út á sandinn, var hún horfin. Hann svipaðist um, sá hvar hún synti frá landi. Hann fann baðkápu í tösku hennar, gekk með hana niður að sjónum og beið þess að hún kæmi að landi. Þess var ekki langt að biða; hún vildi þð ekki skýla nekt sinni með baðkáp- unni, heldur lagðist á hana á sand- inum; gætti þess bersýnilega af ásettu ráði að liggja þannig að likami hennar yrði honum sem ómótstæðilegastur. Og hann starði á hana, unz hann varð gripinn ofsa og stóðst ekki leng- ur mátið. Þá lagðist hann að henni, hún opnaði varirnar, stundi og dró hann að sér. Framhald í næsta blaði. Blóm á heimilinu: Umpouun eftir Paul Y. Michelsen. Eftir vetrarhvíldina vaknatlþetta með því aS slá piöntuna úr plönturnar til nýs lífs, er þærí fpottinum. Það er bezt að gera hafa safnað kröftum hina rólegu þegar plantan ér mitt á miili vetrarmánuði, og sólin og birtan þess að vera þurr og blaut, eða fá þær til að iifna við. þannig að ekki hrynji i sundur. Nú, þegar vorhugur er kominn Takið annari hendi um yfirborð i allt og alla, er bezt að athuga pottsins og snúið plöntunni við, hvort plönturnar þurfa ekki að sláið svo rönd pottsins við fasta fá stærri pott, hvcrt ræturnar eTu borðrönd og losnar þá potturinn ekki búnar að fylla pottinn, svo ■ frá og þér haldið á rótarklump- allt sé að springa af þrengslum. inum í hendinni. Losið pottbrot- ið neðan úr klumþinum (það er oft hulið gömlum rótum) og leggið það með kúptu hliðina upp, yfir gatið á nýjum og stærri potti, sem áður hefur iegið í vatni í 15—20 mínútur. Stráið svo dálitlu af góðri moldar- blöndu neðst i pottinn, látið síð- an plöntuna i hann og fyllið ut- an með klumpinum allt um kring með moldinni og þrýstið vel að. Stundum er nauðsynlegt að skera neðan af rótunum og hreinsa nokkuð af gömlu mold- inni burt að ofan. Það myndast þá betri rætur í staðinn, í nýju moldinni sem bætt var í pottinn. En vökvið plöntuna vel á eftir og lofið henni svo að standa í ró og næði, og njóta hins nýja á pottinum, þvi þá koma ræt- og stærri potts. Athugið að urnar niður um gatið á pottinum vökva ekki með áburðarvatni og að ofan er allt orðið fullt af fyrstu 2—3 vikurnar eftir um- rótum. Annars er auðvelt að sjá pottun. ★ Þetta er oft hægt að sjá utan

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.