Vikan


Vikan - 24.05.1962, Side 7

Vikan - 24.05.1962, Side 7
SMÁSAGA eftir ungan höfund sem kallar sig ÓSKAR JÓNSSON Hann þagnaði legi, það stóðu svitadropar á enni hans og hendurnar hertust að stýrinu. „Hvað svo?“ spurði ég lóks. „Hvað svo? Nú lífið leið sem áður, ég hef vist farið að finna til iðrunar. Mér fundust illir andar stöðugt ásækja mig og loks var ég sendur á Klepp. Svo batnaði þetta og nú er ég hér. Fólki finnst ég skrýtinn. Það getur verið, en hvað scm um það er, þá iðrast ég einskis." Sólargeislarnir færðust sifellt ofar i fjallshlíðina á móti. Rökkrið færðist yfir. Hann leit allt i einu á mig, augnaráðið var tryllingslegt. „Nei, iðrast einskis, atdrei“, öskraði hann og snarsnéri stýr- inu svo bíllinn rann út af veginum niður á slétta eyri sem lá að ánni. Ég brá við og ætlaði að stíga á hemlana, en hann hratt mér frá, þá sneri ég að hurðinni, lauk upp og þeyttisl út. Sem betur fór lenti ég i skafli og meiddist lítið. Ég heyrði þyt ]>egar þungur bíllinn þaut yfir ísinn, síðan háan skeil. Þegar ég stóð upp var ekkert að sjá utan nokkrar loftbólur sem fiutu niður ána, sem rann til sjávar, blásvört og síraumhörð sem fyrr. ★ VIKAN 7

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.