Vikan


Vikan - 24.05.1962, Page 11

Vikan - 24.05.1962, Page 11
Tþróttir: DAGUR HEFNDARINNAR Það var Allan Lawrence, sem olli mestum vonbrigðum. Bæði sjálfum sér og öðrum. Hann hafði unnið bandariska meistaratitilinn í víðavangshlaupi. Hann hafði setl heimsmet i tveggja og jn'iggja mílu hlaupi innanhúss. Hann hafði sett bandarískt met í 10 km hlaupi, er hann keppti sem fulltrúi fyrir háskóla sinn þar — og a’la þeirra sigra hafði hann unnið í þeirri von, að hann yrði valinn í ástralska landsliðið til keppni á Ólympíuleikunum. Því að Allan Lawrence var Ástralíumaður, Jjótt liann stundaði háskólanám i Bandaríkjun- um. Og hann var valinn í Ólympíuliðið. Það var þar, sem hann olii mestum vonbrigð- um. Hann tók þátt í fimm og tíu kílómetra hlaupi og maraþonhlaupi. í fimm kilómetra lilaupinu komst hann ekki einu sinni í úrslil. Náði ekki nógu góðum tíma. Hann gafst upp í tíu kílómetra hlaupinu. í maraþonhlaupinu gekk hann síðustu tvo kíló- metrana. Hafði hlaupið sig uppgefinn. Þegar hann hélt aflur til Bandaríkjanna og hóf námið við háskólann á nýjan leik, bar öll- um saman um að liann hefði ekVi átl neiti erindi á Óiympíuleikana. Hann stóðst keppi- nautum sínum liar ekki snúning. Þrir af þeim keppinautum hans tóku þáít í þessu hlaupi. Þrír Bandaríkjamenn, sein allir hcfðu náð betri árangri í Róm en hann — og mátti þar fyrstan frægan telja Marx Truxa, lágvaxinn, hnellinn og þrekm'iinn hlaupara. Ekki óttaðist Lawrence hann jió mest í keppn- inni. Sá hættulegasti í keppninni var alls ekki bandariskur. Það var Bretinn, Fred Norris, 39 ára að aldri, sem unnið liafði í ko'anámu í Lancashire þangað lil fyrir misseri, en stund- aði nú háskóianám í Bandaríkjunum. Háskólarnir Iiafa alltaf þörf fyrir góða íþrótta- menn. Þá gerir minna til um aldurinn eða menntunina. Þessi Fred Norris var furðulegur ásýndum. Hann var kallaður „hlaupandi líkið“, og það var ekki að ástæðulausu. En „lik“ það gat svo sannarlega spretl úr spori. Að minnsta kosti mátti telja Norris líklegastan sigurvegara í þessu hlaupi — keppninni um bandaríska meist- aratitilinn í víðavangshlaupi. Framhald á bls. 42. BerHiy Goodman. Goodman í Evrópuferð. Klarinetleikarinn Benny Good- man hefur sett saman hljóm- sveit, sem. hann fer með í hljómleikajerð um Evrópu nú í sumar og mun hljómsveitin i-i. a. leiká í Rússlandi. Good- man hefur í rnörg ár haft áhuga fyrir að fara í hljómleikaferð til Rússlanjls en loks nú hafa Rússar viljað Goodman. Hljóm- plötur hanS eru nokkuð út- breiddar i Rússlandi og fáir amerískir jazzteikarar kunnari meðal Rússa en einmitt Benny Goodman. Goodman er af rúss- neskum ættum, þvi foreldrar hans voru rússneskir Gyðing- ar, sem settust að í Bandaríkj- unum. Að lokum má geta Þess -að Goodman hefur aflað sér leyfis hjá enska hljómsveitarstjóran- um Kenny Ball til að leika lag- ið Nótt i Moskvu í sömu út- setningu og Kenny Ball notaði á hljómplötu sinni, sem gerði þetta fallega lag heimsfrægt. Nýjar hljómplötur. The Shadows: Wonderful land og Stars fell on Stockton. Fyrra lagið hefur um alllangt skeið verið efst á vinsælda- listanum í Englandi, en jjað er leikið af fjögurra manna hljómsveit, sem skipuð er gít- ar, gítar, rafmagnsbassa og trommum og er vinsælasta hljómsveit Englands. Þetta er rokkhljómsveit og mun betri en margar ameriskar smá- hljómsveitir, sem leika sams- konar músík. Wonderful land er mild melódía, sem ég efast þó um að eigi eftir að verða vinsæl hér á landi, en lagið er skínandi vel leikið og upptak- an alveg frábær, enda fáir fremri Englendingum í hljóm- plötuupptöku. Strengjahljóð- færi eru notuð með og gefur jjað laginu áferðarfallegri blæ. Stars fell er mjög hratt lag og þar er strengjahljóðfærun- um sleppt, Shadows eru einir, njóta reyndar aðstoðar þriggja eða fjögurra aðila sem flauta smákafla í laginu (nema þeir geri það sjálfir?). Þetta er reglulega skemmtilegt lag, og eins og með fyrra lagið, þá er upptakan hrein snilld. Jet Harris aðalgítarleikari Shad- ows er nú hættur með þeim og hyggst koma fram einn á Framhald á bls. 47. The Shadows. Gamla myndin. % Mynd þessi er af hljomsveitinni, sem lék að Uppsöhim ísafirði fyrir um það bil tíu árum. Frá vinstri: Finnbjörn Finnbjörnsson, píanó (fæst lítið við hljóðfæraleik nú orðið), Jón Jónsspn frá Hvanná, harmonika (fæst ekki lengur við hljóðfæraleik), Erik Hubner, trommur (hefur uin árabil verið fyrir hljóm- sveit, sem leikið hefur á skemmtistöðum á Keflavíkurflugvelli) og Vliberg Vilbergsson, saxófónn og harmonika (Vilberg er starfandi rakari á ísafirði, og leikur nú orðið lítið op- inberlega). VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.