Vikan - 24.05.1962, Síða 21
Hver ekur á honum
i sumar
Fylgizt með frá byrjun
Eitt af þvi, scm taliö hefur verið
Volkswagen til ágætis — og það er
meðal annars ástæðan fyrir því, að
við völdum þann bíl fyrir vinning
í þessa keppni — er frábærlega góð
varahlutaþjónusta. Enginn þarf að
bíða eftir varahlut i margar vikur,
sem Volkswagen á, vegna þess, að
allir hlutir i þessa bíla eru ævin-
lega fyrirliggjandi. Það er ómetan-
legur kostur eins og allir bíleigend-
ur vita.
Vélin í Volkswagen er meistarastykki út af fyrir sig. Hún er mjög
fyrirferðarlítil og lítur nánast út eins og saumamaskína aftur í bílnum.
Einn höfuðkostur heri'nar er sá, að hún er loftkæld. Enginn þarf að
hafa áhyggjur af því, að kælivatn frjósi og enginn þarf að hafa neitt
með frostlög að gera, sem á Volkswagen. Vélin er fjögurra sylindra
og þeir liggja á hliðinni. Það lækkar þyngdarpunkt bílsins og' minnkar
fyrirferðina. Vélin er úr aluminium og magnesium og svo ódýr, að það
borgar sig jafnvel betur að setja nýja vél í bílinn eftir nokkurra ára
akstur, heldur en að gera hana upp.
Enda þótt vélin í Volkswagen sé létt og fyrirferðarlítil er hún 40
hestöfl. Þar af leiðir að bíllinn vinnur mjög vel og á mjög hægt með
bröttustu brekkur, enda þótt hann sé fullhlaðinn.
I Sími