Vikan - 24.05.1962, Side 26
Verzlunin Ríma
T. v. er Ijós poplinkápa, kragalaus með stór-
um vösum. Hún kostar 985.00 kr. í miðið
er sterkrauð kápa úr efni með javavend.
Hún er með hvítum hnöppum, kragalaus og
þverskorin um mjaðmir með fjórum djúpum
lokuföllum. Hún kostar 2355.00 kr. Lengst
t. h. er þykkari kápa úr brúnyrjóttu ullar-
efni. f hliðunum eru lokuföll og á baki er
þversaumur neðarlega. Yerðið er 2285.00 kr.
<
Verzlunin Guðrún >
Grá ensk dragt er t. v. Framan á pilsinu eru
tvö lokuföll og jakkinn fylgir tízkunni, bæði
hvað sídd og vídd áhrærir. T. h. er sterkrauð
hollenzk dragt og er hún sérstaklega falleg
fyrir ungar stúlkur. Pilsið er mjög stórfellt,
vasi er upp við brjóst og dragtin brydduð með
leggingaböndum, en hnapparnir eru hvítir.
Gráa dragtin kostar 2760.00 kr., en rauða
2835.00 kr.
Verzlunin Markaðurinn
Þessi kjóll sýnir vel það nýjasta í tízkunni.
Kjóllinn er úr mosagrænu Seekerssilki og
er pilsið með svonefndu kassasniði, með
fjórum stungum og engum hliðarsaumi.
Sláin er það nýjasta frá Balmain, úr sam-
litri blúndu og laus við kjólinn. — Þessi
kjóll kostar 2.685,00 kr.
Verzlunin Eygló
Blár kvöldkjóll með lurexþræði, þ. e. a. s.
silfurþráður, sem ekki fellur á, er ofinn í
efnið. Efnið hefur prjónaáferð með lykkju-
spori. Jakki fylgir kjólnum, og nær hann
niður í mitti. Verð 2185.00 kr.
Verzlunin Guðrún
Græn regnkápa með áföstum trefli. Hún
er fóðruð með bleigelitu fóðri, sem sést
á uppslögum og trefli. f báðum hliðum
eru opnar klaufir. Verðið er 2840.00 kr.
V
26 VIKAN