Vikan - 24.05.1962, Side 27
Verzlunin Markaðurinn A
Grá flanneldragt, typisk Channeldragt og sígild flík, bæði
að efni og sniði. Grátt flannel hefur verið mikið í tízku
undanfarið, en aldrei meira en núna. Bryddingarnar eru
núna svolítið inn á boðungnum, en hafa verið undanfarið
á kantinum. Stundum eru þær hafðar tvær eða brjár í röð.
Þetta er rétta síddin á jökkunum núna og pilsið er með loku-
fellingum til að gefa rétta vídd. Hún kostar 2895.00 kr.
< Verzlunin Markaðurinn
Dragt úr ekta silki í sterkrauða tízkulitnum, en blússan og
fóðrið í jakkanum, sem er líka úr ekta silki, er í enn nýrri
tízkulitum, sem sé appelsínurauðum litbrigðum, og segir
verzlunarstjórinn að það sé það nýjasta, hvort sem það
nái fótfestu hér eða ekki. Þessi dragt, eins og önnur föt
verzlunarinnar, nýtur sín vel í glæsilegum húsakynnum
hennar. „I mínum augum er það beinlínis menningaratriði,
að í Reykjavík séu til verzlanir, sem standa jafnfætis því
bezta erlendis, livað húsakynni og annan aðbúnað snertir,“
sagði Ragnar Þórðarson forstjóri. Dragtin kostar kr. 3600.00.
Verzlunin Ríma >
T. v. stuttur rúskinnsjakki, dökkbrúnn og einfaldur í sniði,
en t. h. er síð, dökkbrún rúskinnskápa. Hún er skorin í
sundur á mjöðmum og ganga vasar niður í saumana. Jakk-
inn kostar 1975.00 kr. og kápan 3485.00 kr.
Fyrirsæturnar:
Markaðurlnn:
Verzl. Guðrún:
Verzl Rkna:
Verzl. Eygló:
Guðrún Bjamadóttir
Svanhildur Jakobsdóttir
Rannveig Ölafsdóttir
Sunna Borg
Guðrún Ölafsdóttir
Jóhanna Guðjónsdóttir
Sigrún Guðmundsdóttir
Hrafnhildur Gunnarsdóttir
Bryndís Guðjónsdóttir
Sigrún Ragnarsdóttir
VIKAN 27