Vikan


Vikan - 24.05.1962, Page 33

Vikan - 24.05.1962, Page 33
MISSKILNIN GUR. ^bíósætunum? skaut Rune inn i og f~allir hlógu. Framhald af bls. 9. Alltaf varð hann að vera að leita að einhverju sérstöku, sem ekki var til. Stelpur voru ekkert sérstakar eða merkilegar og Maríanna ekki frekar en aðrar. Þær ætluðust ekki til hess, að komið væri fram við ]iær eins og ævintýraprinsessur. Hann gekk til hennar og leiddi liana af stað. — Þú situr hjá mér, er það ekki? spurði hann og þrýsti liandiegg hennar. Hún leit snöggt á liann og kinkaði kolli án nokkurra svip- brigða. í myrkrinu í kvikmyndahúsinu tók hann um hönd hennar og hún veitti ekkert viðnám. f kvöld skyldi það verða hún, sem hann kyssti í portinu. Það hafði hann þegar dreg- ið alltof lengi. Hann hafði ekki mikinn áhuga fyrir myndinni. Það var þetta venjulega, þeir riðu, skutu og kysstu, án þess að gera sér það ómak að hoppa af hestinum. Það virtist svo fjári auðvelt. Hann öfundaði þá, en fyrir þessa manntegund var það sjálfsagt ekkert vandamál hvenær og hvern maður ætti að kyssa. Hann hafði nú aldrei gengið lengra en það að kyssa. Eins og af tilviljun lagði hann höndina á hné lienni. Ilún hreyfði sig ekki. 1 gegnum pilsið fann hann ylinn frá húð hennar. Hjarta hans barðist um. Hann sneri sér hægt við og leit á hana. Hún sat og beit á vörina. Eftir það hugsaði hann ekki meira um myndina. Hann hugsaði um það, að það var áreiðanlega i kvöld, sem þau gömlu heima fóru að spila hjá Óskarssons fólkinu. Þau voru vön að koma seint heim. Það voru að minnsta kosti tveir tímar, sem þau gætu verið ein og ótrufluð. í kvöld! Það skyldi verða i kvöld. Allt í einu fannst honum, að þetta kvöld mundu öll hans vandamál leysast. Enginn órói lengur, engin spenna, engin heilabrot. Það var furðulegt að lausnin hafði verið svona nærtæk og að hann hafði ekki komið auga á hana. Ljósin voru kveikt, forhengið slóst saman eins og tveir stórir vængir og bekkirnir tæmdust smátt og smátt. í hópnum, sem streymdi út, kom hann auga á hvítgult hárið á Jane og nýja jakkann hans Eke og þarna var Rulii og vingsaði glað- lega doppóttum trefli. Hin voru þegar komin út. — Heyrðu, hvíslaði Sune lágt, við stingum af, hvað segirðu um það? Röddin var óvenju ráin, þótt hann reyndi að hvisla. Augu Maríönnu voru einkennilega stór og gljáandi, eins og hún hefði ekki enn stillt þau af kvikmyndinni yfir á veruleikann. Hún kinkaði kolli. Hann hélt enn um hönd henn- ar og fingurnir voru iskaldir við brennheita hönd hans. Klíkan stóð þarna eins og straum- brjótur í fólksstraumnum og fram- hjá var ekki hægt að komast óséð- ur. Þá var eins gott að ganga beint til verks. — Voruð þið að hugsa um að sitja á næstu sýningu? spurði Eke háðslega. Hann horfði á samflétt- aða fingur þeirra. Einu sinni var það Eke, sem hélt um hönd henn- ar, Eke, sem lcyssti hana, en það var nú búið að vera. — Eruð þið mcð fasta áskrift að — Auðvitað. Ársáskrift. Hvað hélduð þið? Hann varð að taka á öllu til að sýnast rólegur eins og venjulega. Hann reyndi að hlæja, en hláturinn stóð í honum og varð eins og hósti. Hann þoldi ekki að þau horfðu öll á hann og sleppti hendi Mariönnu. — Jæja, við erum að fara, sagði bann hraðmæltur, og það var eins og orðin héngu lengi vandræðaleg í lausu lofti. —■ Fara? Hvað er á seyði? — Hafið þið heyrt það, ha? Þau eru að fara. Hvenær kviknaði þetta eiginlega? — Eina stundina hefur maður ekki minnstu luigmynd um neitt, og þá næstu eru þau bara hérumbil trú- lofuð! — Látið ekki ímyndunaraflið blaupa með ykkur í gönur, væri það e!<ki betra? Þetta var það fyrsta, sem Mari- anna sagði. Hún liafði dregið upp greiðu og spegil. Ilún slóð þarna skökk til að reyna að halda tösk- unni á mjöðminni, og einblíndi inn i spegilinn. Skyndilega sá hann eftir öllu saman. Þessi hlátur og allar þessar glósur. Meira að segja Marianna var framandi og ógeðsleg. Þau voru öll eins og af öðrum kynflokki, eins og Marzbúar. Ekkert nema augu og munnur, leitandi og gleypandi. Þetta var andstyggilegt. — Komdu, sagði liann snöggt og dró hana með sér áður en hún gæti lokað töskunni. Það var um að gera að komast burt frá þeim, hann heyrði í þeim liláturinn langar leiðir. — Æ, þú meiðir mig! Ég get ekki gengið svona bratt á þessum hæl- um, Sune! Hann æddi fyrir liornið og stanz- aði þar. Andardráttur hans var hraður og þungur, hjartað sló eins og hann hefði hlaupið óravegi. Hann losaði takið á handlegg hennar. — Af hverju varztu svona illur? spurði hún lágt. Hann leið niður. Ekki gat hann sagt henni að hann gæti ekki þolað þau, hvorki hana né öll hin. — Það var ekkert, sagði hann kuldalega. Mér fannst bara að við þyrftum ekki að vera þarna leng- ur. Ég er bara ekki i þannig skapi. — Þá er kannski bezt að ég fari? Hann gaut til hennar augunum. Það vantaði nú bara að hún færi aftur til þeirra og segði þeim alla sólarsöguna — hún mundi heldur betur verða krydduð með hlátra- sköllum. Nei, það gat alveg eins orðið hún eins og einhver önnur, og i kvöld hafði hann tækifærið. — Nei, því ættirðu að gera það? sagði hann hlæjandi, við erum þeg- ar lögð af stað, er það ekki? Þá smeygði hún handleggnum i handarkrika hans. — Jæja, allt í lagi. Hugsanir hans voru allar á ring- ulreið. Hann var á leið heim með stelpu í mannlaust húsið. Hvernig yrði framliaidið? Hann óskaði þess að hún segði eitthvað til að rjúfa þögnina, kannski mundi hann þá heyra það á henni hvernig henni væri innanbrjósts. Hún var allt of örugg, það hefði verið skemmtilegra að vera sjálfur sá sterkari. í fyrsta sinn — hann gat ekki ímyndað sér hvernig það yrði — hann óskaði þess heitt að það væri annar dag- ur, annað ár, önnur stúlka og Aukið fcgurð augnanna- Veljið hvern þann (nýja) litblæ af Kurlash Mascara kremi sem þér óskið, og sjáið hversu auðveldlega það gefur augnhárum yðar þann fagra blæ sem þér hafið alltaf óskað eftir. Kurlash augnsnyrtivörur fást í næstu snyrti- vöruverzlun. Heildsölubirgðir: H. A. Tulinius VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.