Vikan


Vikan - 24.05.1962, Page 34

Vikan - 24.05.1962, Page 34
DELTA DÖMUBUXUR eru viðurkenndar fyrir: snið sem allaf situr vel, glæsilega tízkuliti og úrvals efni: Ullarefni — Tereiyn — Helenca Stretch og Phrix SBK sem er alveg nýtt gerfiefni. Heildsölubirgðir: YLUR H.F. Sími 13591. meira að segja einhver annar en hann sjálfur. Dálitla stund gerði hann sér von- ir um að ljósin loguðu i stofunni, en þar var allt slökkt, dimmt eins og i gröf. Þegar hann stakk lyklin- um í skráargatið, skalf hönd lians svo, að það æt'aði ekki að takast. Svo stóðn þau i forstofunni og hurðin hafði lokazt á bak við þau. Bara liann og hún. Honum fannst hann vera innbrotsþjófur á sinu eigin heimili. Mamma ætli að sjá mig núna, datt honum í hug og hann sá móður sína fyrir sér jafn- greinilega og hún stæði þarna i dyr- unum. I’að fór lirollur um liann. — Farðu úr jakkanum, sagði hann loðmæltur. Nei annars, það er kannski lietra að þú farir úr inni hjá mér, ef ske kynni ... — Heldurðu að þnu komi heim? Hún greáddi sér fyrir framan speg- ilinn og nú fyrst heyrðist honum rödd hennar titra svolítið. — Nei, nei, það lield ég ekki, en það er aldrei aiveg hægt að segja ... Það var einmitt það — það var aldrei hægt að vita fyrir vist! Hann hélt dauðahaldi i þessa hugsun, þvi hún hlaut að skilja það, að ef hætta væri á að foreldrar hans kæmu heim ... en hafði hann annars sagt nokknð um það, hvers vegna hann hafði tekið hana með sér heim? Alls ekki! Það ætti hó að vera hægt að hittast svona til að tala saman eða hlusta á piötur, það þurfti ekki endilega að vera til að ... Hún gekk á undan honum inn i dimma stofuna. — Kveiktu ekki, sagði hann fljót- mæltur. Við hekkium fólkið i hús- inu hér við hliðina. — .Tæja, sagði hún kuldalega. Henni fannst hann asnalegur, hann heyrði hað á henni. Henni fannst hann vera rola, sem ekkert gæti. Hann óskaði henni til fjand- ans og að hann þvrfti aldrei að sjá hana framar. Fn kannski var hann ekki eins mikill aumingi og hún hélt! — Hérna er herbergið mitt. Hann ýtti upp hurðinni og kveikti liósið. Reiðin sauð i honum oghjart- að sló þungt. Hann skellti aftur hurðinni og læsti. — Af hverju læsirðu? Nú heyrði hann greinilega að rödd hennar titraði. Það fór þá ekki meira fyrir hugrekkinu, þegar allt kom til alls! — Af hverju heldurðu? Þetta var eins og léleg kvikmynd, og hans hlutverk hefði getað verið hetra. En hún þurfti nú ekki endi- Tega að leika Rauðhettu á leið til ömmunnar. hún fór vist nærri um það, hvað úlfurinn vildi henni. Þeg- ar hann gekk að henni, hörfaði hún aftur á bak upp að veggnum og bar fyrir sig höndina eins og hún héldi að hann ætlaði að slá hana. Munn- urinn stóð opinn og það gerði hana ekki laglegri. Hann óskaði hess, að einhver kæmi og segði: Nú hættum við um stund. Takk, þetta er nóg. En þetta var ekki iéleg kvikmynd, þetta var andstyggilegur veruleiki, og enginn mundi stanza þetta, ef hann gerði það ekki sjálfur. En þvi ætti hann að vorkenna henni, hún hefði ekki þurft að koma og klíkan gæti haft eitthvað annað til að hlæja að, en hann. Það mundi strax fréttast ef hann léti hana fara — þannig frétt- ist alltaf. Hann tók um b&ða handleggi 34 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.