Vikan - 24.05.1962, Page 36
„AÐ STAUTA Á GÍTAR“
Marga langar að læra einfaldar aðferðir til þess
að leika hljóma undir söng og þeir ættu að geta
bjargað sér með námi í bréfaskóla Ólafs Gauks.
Ólafur Gaukur leit inn á skrifstofu
'hlaðsins um daginn. Hann er gamall
kunningi okkar, ekki aðeins fyrir
gítarleikinn, sem flestir þekkja hann
af, heldur einnig af blaðamennsku,
því að hann vann hér á VIKUNNI
sem blaðamaður um eitt skeið.
— Blessaðir minnizt þið á gítar-
skólann i blaðinu — það er alltaf
gott að fá ókeypis auglýsingu.
— Gítarskólann — hvað er nú
J>að?
— Þið fylgizt ekki með tímanum
hér á. ritstjórninni. Lesið þið ekki
blöðin eða livað? Þetta er þjóðþrifa-
fyrirtæki hið mesta, sem stefnir að
því að kenna sem flestum lands-
mönnum okkar grip á gitar. Annars
i alvöru talað hef ég verið að vinna
við bréfaskóla í gítarleik npp á sið-
kastið. Það er nokkuð sniðug aðferð
lil að læra að stauta á gítar án
þess að þurfa að sækja kennsluna
út fyrir heimilið.
— Hvað me-ira um þessa sniðugu
aðferð?
— Hún er svo sem ckkert sér-
lega origínal, bara ósköp venjulegur
bréfaskóli. Ég sendi hverjum nem-
anda átta kennslubréf með viku
millibili, en i hverju bréfi eru þrjár
kennslustundir, sem hæfilegt á að
vera að læra á einni viku. Svo svara
ég auðvitað fyrirspurnum nemend-
anna bréflega, ef það er eitthvað,
sem þeir þurfa að fá frekari skýr-
ingar á.
— Og heldur þú að nemendurnir
læri svo eitthvað á þessu?
— Þetta er náttúrlega ekkert 1 átt
við fullkomna tónlistarkennslu —
ekki einu sinni kenndar nóturnar
nema að sáralitlu leyti. Það eru
aðeins settar fram einfaldar aðferðir
til að leika hljóma undir söng —
svona rétt til að fólk geti skemmt
sér við það sjálft eða haldið uppi
gleðskapnum í samkvæmum. Það
eru svo margir, sem gjarnan vilja
kunna nokkur grip, enda þótt það
hafi aldrei hvarflað að þeim að
ieggja út á tónlistarbrautina. Svo
verður maður að hugsa um atvinn-
una.'Ég e'r hræddur um að það yrði
lítið að gera hjá mér, ef allir nem-
endurnir mínir væru orðnir gitar-
istar.
— Og hvernig hefur fólki likað
þeíta fyrirkomulag?
— Ég hef ekki fengið neinar
kvartanir. I>að virðast allir mjög á-
nægðir, enda væri það eitthvað
skrýtið ef það gæfisl ekki vel hér,
því að þetta hefur gefið góða raun
og verið mjög vinsælt um allan heim
árum saman. Þetta er nefnilega ekk-
ert nýtt, eins og ég sagði áðan, að-
eins nýjung hér.
— Ilefur þú marga nemendur?
— Ég hef eins marga og ég kemst
yfir að anna. Það er ekki hægt að
taka ótakmarkaðan fjölda — þarf
að svara bréfum og senda kennslu-
bréfin reglulega. Það er talsvert
stúss að sjá um að þetta sé allt í
lagi. Maður er alltaf á þönum. Ég
er meira að segja á hraðri ferð núna,
ætlaði bara að líta inn og sjá hvernig
þið hefðuð það. En þú gætir kannski
minnzt eitthvað á „fyrirtækið“ í
blaðinu. Og i guðana bænum
gleymdu ekki að taka fram að gítar-
skólinn hafi pósthólf númer 806 i
Reykjavík. ★
WEST SIDE STORY.
Framhald af bls. 19.
boröið og um leið fleygði hann sér
ofan á hana. Hún fann lærvöðva sina
slrengjast ósjálfrátt þegar hann tók
að dynta sér aö kviði hennar um leið
og hann tók að fletta hana klæðum
rneð þeirri hendinni, sem honum var
iaus.
„Láttu hana fá það, sem hún þarf
með,“ hrópaði Diesiilinn eggjandi.
„Sýndu henni hvernig Kanarnir sitja
inerhryssi. Hún getur þá sagt Chino
það ....“
„Taktu þessu með ró, skepnan þín,“
sagði Arabinn og barði hana. „Þér
verður nauðgað hvort eð er, svo Þú
ættir bara að taka því með ró og
reyna að hafa eitthvert gaman af
athöfninni ....“
Þá íann Arabinn gripið i sig aftan
frá. Það var Diesillinn. „Lyfsalinn er
að koma,“ mælti hann lágt.
Þótt Arabanum væri það ekki ljúft,
reis hann á fætur og lét Anítu lausa.
Hún fann lyfsalann stara á sig opn-
um munni, siðan heyrði hún hann
hella skammaryrðunum yfir þá félaga
og ógna þeirn með því, að þeir yrðu
latnir gjalda gerða sinna.
„E'rtu ómeidd?" spurði hann Anítu.
Hún beit á jaxlinn og reyndi að
lagiæra riíin föt sin. „Bernardo hafði
á réttu að standa," mælti hún og
reyndi að verjast gráti. „Og ef ég sæi
annanhvorn ykkar eða báða liggjandi
dauða og blóðuga á götunni, mundi
ég skyrpa á ykkur .... “
„Þú ættir að halda heim,“ mælti
lyi'salinn og reyndi að róa hana.
„Nei, láttu hana ekki sleppa," hróp-
aði Arabinn. „Hún segir Chino að
Tony ....“ Arabinn hljóp i veginn
íyrir hana og varnaði henni út-
göngu.
Aníta réðist á þá. „Ég skal segja
ykkur skilaboðin, svo þið getið komið
þeim til félaga ykkar,“ hrópaði hún.
„Segið þeim morðingja, að hann sjái
Maríu aldrei framar." Hún hló, hátt
og storkandi. ,,Þið skuluð segja hon-
um að Chino hafi komizt að öllu
saman og að hann hafi .... skotið
hana til bana.“
Hún skellti liurð að stöfum á hæla
sér. Lyfsalinn studdist við afgreiðslu-
borðið. „Guð minn góður — ég' verð
að segja honum það,“ stundi hann.
Svo sneri hann sér að þeim félögum
og hrópaði: „Komið ykkur út tafar-
laust. Reynið að komast einhvers stað-
ar í kirkju, svo þið haldið þó grið-
um .... “
„Við skulum koma.“ Diesillinn gaf
Arabanum bendingu um að fylgja
sér.
„Hvert?"
„Þú getur sjálfur ráðið því,“ svar-
aði Diesillinn um leið og þeir hurfu
á brott. „Suður, norður, austur eða
vestur .... sama er mér .... “
TlUNDI KAFLI.
, Tony hljóp eins hratt og fætur tog-
uðu, án þess hann vissi sjálfur hvert.
Hún var horfin, hann mundi aldrei
sjá hana framar. Sekt hans var meiri
en svo, að hann fengi risið undir
henni. Og þessu var ekki lokið enn.
Chino hafði enn verk að vinna.
Hann vissi ekki hvað Chino hafði
í hyggju, en hann vissi hvað hann
hafði sjálfur i huga. Hann ætlaði
að hafa uppi á Chino, og Chino skyldi
ekki komast hjá þvi að drepa hann
líka.
Það var eina leiðin til að binda
endi á það, sem orðiö var. Og Tony
vildi fá þessu lokið sem fyrst, þvi að
hann gat ekki afborið það að lifa
lengur.
Það var margt manna á götunum.
Hann æddi framhjá þeim; heyrði þá
ræða um einskisverða hluti. Lög-
reglubill nálgaðist og hann skauzt
inn i undirgöng á meðan hann þaut
framhjá. Hann leit inn i veitinga-
stofu, en Chino var þar hvergi sjáan-
legur, og nú varð honum ljóst, að
hann mundi aldrei hafa uppi á hon-
um, ef hann leitaði hans úti á göt-
unni — hann yrði að fara inn i garð-
ana að baki sambyggingunum, þar
sem Porteríkanarnir bjuggu, niður í
kjallarana, kannski líka upp á þökin.
Hann varð að sjá svo um að Chino
bærist það til eyrna, að Tony væri
ekki að flýja hann, heldur að leita
hans.
„Chino!" hrópaði hann hárri röddu,
þegar hann kom inn í garðinn, inn á
valdasvæði þeirra, Hákarlanna. Svo
dró hann djúpt andann og hrópaði
enn eins og hann mátti: „Komdu,
Chino .... Komdu, ég bið þín
hérna .... “
Hann heyrði einhverja hreyfingu,
teygði út armana og sneri barmi að,
svo skotið gæti ekki misst marks. En
það var ekki rödd Chinos, sem nefndi
nafn hans i myrkrinu. Þar var Allra-
skjáta komin, hún hafði bersýnilega
verið i njósnaferð. „Ertu snarbrjál-
aður,“ hvíslaði hún. „Veiztu ekki að
þút ert kominn inn á yfirráðasvæði
þeirra."
„Farðu frá . ... “ Hann hratt henni
til hliðar. Og svo kallaði hann enn
sem fyrr. „Chino .... komdu! Komdu
— ég bíð .... “
AUraskjáta greip um arm honum
og reyndi að toga hann með sér inn
í undirgang. „Þeir ....“
„Gættu þin,“ hrópaði hann og sló
hana flölum lófa í andlitið. Hann sá
ijós kveikt í nokkrum gluggum.
„Chino ....“ kallaði hann. „Hvar í
fjandanum heldurðu þig eiginlega.
Ég bíð .... Fljótur nú .... “
Kúlan hæfði hann í brjóstið. Hann
hneig niður og fann heitt blóðið
streyma úr vitum sér. Og honum þótti
sem hann sæi hvitklædda veru koma
hlaupandi í áttina til sín og kalla á
sig með nafni.
María kraup á kné við lík hans
og tár hennar runnu niður á ásjónu
þess, sem starði brostnum augum upp
í myrkan næturhimininn. Tony
V/yzek, sem hafði látið lif sitt áður
en sagt varð með sanni að hann hefði
lifað lífi sínu. Svo reis hún seinlega
á fætur. Hún sá Allraskjátu koma
fram úr skugganum, og hún bauð
henni að nema staðar.
„Og stattu líka kyrr þar sem þú
ert kominn," mælti hún við Chino.
„Og fáðu mér skammbyssuna .... “
Hún snart harðan, fágaðan og kald-
an málminn og fann hve skeftið fór
vel í hendi. „Hvernig er skotið af
henni?" spurði hún Chino. ,,Þarf mað-
ur ekki annars við en þrýsta á þennan
litla gikk?“
Hún sá Chino lúta við, þegar hún
beindi að honum byssuhlaupinu.
„Hvað eru mörg skot eftir, Chino?“
spurði hún ögrandi. „Kúla handa þér
.... og kúla handa mér? Og þér
lika?“ Hún beindi hlaupinu að
Allraskjátu, sem stóð í skugganum
undir sambyggingunni. „Því að við
vorum öll um að drepa hann. Við
bróðir minn og ég .... Chino var
ekki einn um Það .... “
Hún miðaði á hann skammbyssunni.
„Get ég drepið þig, Chino? Og loks
sjálfa mig .... “
1 sömu svifum var hönd lögð á öxl
henni og hún heyrði talað til sín,
36 VIKAN