Vikan - 07.06.1962, Blaðsíða 4
Brottför frá Reykjavík: Þriðjudagur 24. júlí.
Lengd ferðar: 15 dagar.
Verð kr. 6650,00 (miðað við þátttöku fjögurra).
Einstaklingsferð, án fararstjóra.
VW-FERÐ
UM
NORÐURLÖND
FYRIR FJÖLSKYLDUR OG FÁMENNA HÚPA
Réttlát reiði ...
Kæra Vika.
Það er margt undarlegt í henni
veröld, t. d. þetta mál, sem ég skrifa
um. Ég er „krakki“, eins og kallað
er. Allt frá því ég man fyrst eftir
mér, var verið að brýna fyrir mér
að bera virðingu fyrir fullorðna
tólkinu. Ég býst við, að fleiri hafi
svona sögu að segja. Við eigum að
vera kurteis (út á það hef ég ekk-
ert að setja), þéra það og vera auð-
mjúk, þegar við biðjum um eitthvað.
En „það“ þarf ekkert að gæta
kurteisi við okkur. Nei, nei, það má
skamma okkur, jafnvel leggja hend-
ur á okkur, ef því býður svo við
að horfa. Hvernig á maður að geta
borið virðingu fyrir svona mann-
skap, getur þú sagt mér það? Mér
finnst það ákaflega súrt í broti, þeg-
ar ég geri mér far um að vera kurt-
eis og þéra það og fá svo ekkert
nema óforskömmugheit i staðinn.
Þótt maður reyni að láta það ekki
sjást, að manni mislíki, þá hlýtur
maður að finna til réttlátrar reiði,
og það getur enginn láð manni það,
eða hvað finnst þér? Einhvern tíma
hafa þessar skrítnu manneskjur
verið ungar og i'undið til sömu
kennda — þvi ekki að vera skiln-
íngsrikur og iíta i eigin barm?
Skólastúlka.
—-------Gamalt og gott máltæki
segir okkur, að „enginn verði
obarinn biskup" — og meðan við
höfum enn ekki nægilegan þroska
tii þess að komast áfram í þess-
um heimi, verðum við að sætta
okkur við handleiðslu reyndari
manna. Þú mátt fyrir alla muni
ekki halda, að allt það sem þér
mislíkar í fari fullorðna fólksins
sé sprottið af eintómri illkvittni
— oftast er allt „tuskið“ vel
meint. En jafnvel þessum lífs-
reyndu uppaldendum getur aug-
sýnilega orðið ýmislegt á, og skil
ég mætavel að þér þyki það súrt
að fá ekki annað en „ófor-
skömmugheit“ fyrir alla kurteis-
ina. — Ég er eiginlega farinn að
sáröfunda tilvonandi börn þín af
því uppeldi, sem þau hljóta að fá.
Þér fáið spánýjan Volkswagen bíl
til afnota í 15 daga og getið ferðazt að vild.
Ferðaskrifstofan
LÖND & LEIÐIR
Tjarnargötu 4. — Sími 20800.
Rithöfundur
af lífi og sál ...
Heiðraði Póstur.
Ég lief, frá þvi ég var drengur
innán við fermingu, gengið með
þann leiða löst að verja öllum mín-
um tómstundum i að skrifa. Skrifa
sögur, ljóð o. fl. En þar sem ég er
fremur hlédrægur maður, hafa engir
aðrir en konan mín, foreldrar og
örfáir aðrir séð jiessar ritsmíðar.
Þetta fólk hefur sagt, að þetta væri
allt gott, sæmilegt og sumt ágætt.
Auðvitað legg ég lítið upp úr þeim
dómum, eins og skiljanlegt er.
Nú er svo komið, að þessar rit-
grillur mínar eru allt að því farnar
að tefja eða réttara sagt glepja mig
við mín daglegu störf. Ég sé því
ekki annað ráð vænna en reyna að
fara að koma einhverjum ritsmtð-
anna fyrir almennings sjónir og vita,
hvort þær eru þess virði að eytt sé
tíma i að semja þær, og hvort þær
séu takandi i blöð og timarit. Ef
svo er ekki, þá get ég með góðri,
en að sjálfsögðu dapurri samvizku,
hætt öllum mínum ritórum og reynt
að láta þá hverfa í djúp anna ókom-
inna ára.
Eftir þennan formála koma svo
nokkrar spurningar varðandi þetta
efni, sem ég vonast eftir að fá sem
gleggst svör við:
a) Eru ekki einhver tímarit hér á
landi, sem eingöngu eru helguð
byrjendum ritlistarinnar?
b) Ef svo er, hver eru þau og hvar
staðsett á landinu?
c) Tekur Vikan sögur eða ljóð til
birtingar, sem lienni berast og
hæf þykja til prentunar?
d) Greiðir hún (þ. e. Vikan) eða
önnur timarit einhverja þóknun
til höfunda birtingarhæfra rit-
smíða?
Með fyrirfram kærri þökk,
Þórir haustmyrkur.
--------Ef þessar ritgrillur þín-
ar eru, eins og þú segir, „leiður
löstur“ held ég þú ættir að leggja
þetta á hilluna. En við skulum
samt vona, að svo sé ekki, og
finnst mér sorglegt til þess að
vita að þú hrúgir upp ritverkum,
sem enginn fær að sjá, nema þínir
allra nánustu. Hér á landi þrífast
engin tímarit, sem einvörðungu
eru helguð byrjendum, enda
varla von. Hins vegar eru fjöl-
mörg tímarit, sem þiggja til birt-
ingar ritsmíðar, sem eitthvað er
í spunnið — og greiða m. a. s.
þóknun fyrir — og er Vikan eng-
in undantekning. Veldu nú úr
einhverja beztu ritsmíð þína —
t. d. stutta smásögu — og sendu
okkur. Við lofum engu um það,
hvort hún verður birt, en þú ger-
ir ekki' meira en að reyna. Mér
finnst þú ættir að senda fleiri
tímaritum ritsmfðar þínar, ef
þær eru eins góðar og þínir nán-
ustu vilja vera láta. f versta til-
falli færð þú þær í hausinn aftur.
Það er allt betra en að sitja með
sveittan skallan og skrifa og
skrifa einungis fyrir ruslakörf-
una.
Miðnætti í Moskvu ...
Kæri Póstur.
Mér datt svona í hug að setja sam-
an nokkrar ljóðlínur við þetta vin-
4 VIKAN