Vikan


Vikan - 07.06.1962, Blaðsíða 22

Vikan - 07.06.1962, Blaðsíða 22
 Þetta er verðlaunabíllinn VOIKSWAGEN * tat Að verðmæti kr. 120,000,00 sem VIKAN veitir einum lesenda sinna í verðlaun að endaðri getrauninni Nú gerum við drauminn um eigin bil að veruleika fyrir þann sem happið hlýtur. Enda þótt okkur virðist nokkuð margir bílar á götunum, þá eru hinir fleiri, sem verða að ferð- ast á tveim jafnfljótum, með rútubilum eða strætó. Af skiljanlegum ástæðum á flestallt það fóik þann draum sameiginlegan að eignast bil. Þessi ósk verður aldrei áleitnari en einmitt Þegar sumarið fer i hönd. Þá langar fólk til þess að bregða undir sig betri fæt- inum, kynnast landinu og svo er blessað sumarleyfið framundan. Og um það leyti verður dregið úr réttum lausnum í þessari getraun og einn lesenda Vikunnar verður svo ham- ingjusamur að fara í sumarleyfið á splunkunýjum Volksvvagen. Þar kemst ekki eitt rykkorn inn Þegar Volkswagen var nýr og óþekktur bill, var sögð sú saga af honum og þótti ótrúleg, að einn slíkur bíll hefði dottið út af skipi og flotið, þegar liann Ienti í sjóinn. Þetta þótti nú ekki sennilegt í þá daga, því menn áttu eftir að sannreyna, hversu ólrúlega þéttur Volkswagen er. Þegar hurð er ske.llt aftur, verður helzt að skrúfa niður rúðu. Þetta er stór kostur og hvergi betri en hér á íslandi, þar sem vegirnir eru eins og raun her vitni. Allir vita livílík óhollusta það er og ógeð að l'erðast í bíl, sem fyllist af ryki. En á Volkswagen kemur það ekki til greina; ekki eitt einasta rykkorn kemst inn í hann, séu allar rúður vel skrúfaðar upp. Fólksvagninn minn og ég Brynjólfur Karlsson bruna- vörður er búinn að eiga svo marga bíla um dagana, að það er vafasamt að hann muni þá alla. Frá því að hann fór fyrst að aka bíl, hefur hann „verið á kafi“ í bílum, stórum bílum og litlum bílum, göml- mn og nýjum bilum, og lik- lega hafa þeir allir átt það sameiginlegt, að þeir hafa farið frá honum betri en þeg- ar þeir komu. Nú er Brynjólf- ur búinn að næla sér í Volks- wagen og nú er hann hættur að leita að betri bil. Hann er búinn að finna hann. Kannski ekki þennan Volkswagen, sem hann á núna, en þá bara einhvern annan Volkswagen. Nú er hann hættur að tala um „bíla“. Hann talar bara um Volkswagen. — Hvað er það eiginlega, sem þér finnst svona gott við þessa tegund, Brynjólfur? „Hvað ...? Það er bara allt! Og ekki nóg með það, heldur athugaðu bara þjónustuna og viðhaldskostnaðinn, maður! Ég skal segja þér til dæmis. Gangbrettin hjá mér voru dálítið beygluð og ég fékk mann til að rétta þau fyrir mig. Þegar hann sá brettin, sagði hann að ég skyldi skreppa niður í Heklu og athuga með ný gangbretti. Ég gerði það — og keypti ný á staðnum. Ég held að þau liafi bæði kostað um 190 krónur ...“ 22 VIKAN VERÐLAUNAGETRAUN VIKUNNAR er hálfnuð Nú hafið þið fengið í hendúr fimm blöð með þessari getraun og þar með er hún hálfnuð. Þið hafið vonandi klippt getraunaseðlana út og fundið öll þrjú atriðin í hvert sinn. Það get- ur víst varla talizt mikil fyrirhofn, þegar svo dýrlegur hlutur er annars vegar eins og nýr Volkswagen, 120 þúsund króna virði. Enginn veit, hvenær heppnin ber að dyrum hjá ein- hverjum þeim, sem sent hefur réttar lausnir til Vikunnar. Og nú eru aðeins fimm blöð eftir þar til getrauninni er Iökið. Munið að strika hring utan um þau þrjú atriði á neðri myndinni, sem breytt hefur verið.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.