Vikan


Vikan - 07.06.1962, Blaðsíða 16

Vikan - 07.06.1962, Blaðsíða 16
Sálkreppur og sálgreining UPP- SPRETTA OTTANS Brosleg hræðsla. Átta saumaklúbhsyinkonur sitja við glaðvært mas i vistiegri stofu. Áhyggjuleysi og jjæginclakennd markar viðmót þeirra. Grá mús jíýtur yfir gólf- teppið, og í sömu andrá víkur glaðvært áhyggju- leysi kvennanna fyrir skelfingu. Þeim finnst stof- an eins og fangaklefi, sem loki jjær inni hjá hætt- unni, og hver og ein reynir að forða sér. Þær finna til andþrengsla, eins og brjóst og háls herp- ist saman. Hvað oili skelfingu þeirra? F.ngum þykir mús hættulegt dýr í alvöru, likt og ljón eða eiturslanga. Hún er í flestra augum meinlaust, hreinlegt og fallegt dýr. Skelfingin, sem fólk verður gripið í návist músar, er í raun ekki hræðsla við músina, heldur eðlisgeigur mannsins sjálfs, sem hann reynir að réttlæta með tilvist meinlauss dýrsins. Við getum greint milli hræðslu og ótta. Hræðsla vaknar gagnvart ákveðinni ógnun. Við vitum, hvað við hræðumst. Hræðsla barns við grimman lnind og reiðan mann er trúverðug. Óttinn aftur á móti sprettur ekki af jæirri ytri orsök, sem upp er gefin, heldur af dulvituðum geig djúpt í sálarlifi okkar. Við finnum honum tylliorsök til þess að réttlæta hann. „Óttinn ferðast ailtaf undir dulnefni,“ eins og Lersch orðar það hnyttilega. Annars kynni hann að verða broslegur, jafnvel í augum hins óttaslegna sjálfs. Og vcrður jjað ó- neitanlega. Settleg frú, sem stekkur æpandi upp á stól vegna ímyndaðrar eða raunverulegrar músar, segir með vorkunnháðsku brosi frá þessari heimskulegu hræðslu sinni, sem þjáir hana síðan hún man fyrst eftir sér. Það er eins og hana gruni, að óttinn eigi sér alvarlegri uppsprettu en mein- lausa músina. Ótti af þessu tagi, sem við kennum daglega við einhverja gervi-orsök, j)jáir margan mann. Fræði- menn greina hana í ýmsar tegundir og kalla fóbíur. Margar tilraunir hafa einnig verið gerðar til djúp- 16 VIKAN færari skýringa. Ótti fylgir jafnan taugavciklun, og sumir kalla hann eitt öruggasta auðkenni henn- ar. Sú hugmynd virðist þvi nærtæk, að bæði eigi sér sömu uppsprettu: Röskun innra samræmis í sálarlifinu. Sú röskun gerist að miklu leyti I dul- vitund okkar, svo að einstaklingurinn megnar ekki að skýra hana fyrir sér hjálparlaust. Þess vegna leitum við að tylliorsök óttans. Músin, köngulóin, ánamaðkurinn, myrkrið verður skýring á óræðum geig, sem rótfestist djúpt í eðli minu, e. t. v. i frum- bernsku. Kynþrá og angist. Höfundur sálgreiningarinnnr, Sigmund Freud, sem drýgstan skerf lagði fram til að skýra tauga- veiklun, reyndi einnig að grafast fyrir rætur ótt- ans. Að lians dómi er óttinn sálrænt ástand, sem myndast á bernskuskeiði, oft jafnvel i frumbernsku. „Fyrsta angistin, sem gagntekur barn:ð, sprettur af aðskilnaði þess frá móðurinni. Fyrsta stig að- skilnaðarins er fæðingin. Hún veldur barninu sárs- auka — stundum jafnvel s'ysum — og ])ó að það sleppi við köfnunaraðkenningu í fæðingu, finnur það til hennar um leið og nærandi blóðstraumur móðurlíkamans er rofinn og öndunarfæri þess taka sitt fyrsta viðbragð, til þess að fullnægja súr- efnisþörf líkamans. Geðlæknar þekkja ótalin dæmi um sálræn áföll, sem börn urðu fyrir i fæðingu (Geburlstrauma) og síðar leiddu til torskilins ótta og taugaveiklunar. Hvítvoðungurinn er þó ekki að ful'u skilinn við likama móðurinnar, Hann fær næringu sína úr brjóstum herinar, en um leið veita þau honum likamsnautn, sem fróar kyneðli hans. Þvi að barn- ið er kynvera og lifir sinu sérstaka kynlifi alla tið frá fæðingu. En jafnskjótt sem siðakröfur sam- fé agsins síjast inn í vitund barnsins, tekur það að bæ.a niður kynþrá sína til foreldrisins, en bæði Framhaid á hls. 38. Prjónakjóll Hér kemur uppskrift af óvenju- fallegum kjól. Stærð: 42. Efni: 1300 gr. af grófu ullargarni, það grófu að 14 I. prjónaðar á prjóna nr. 7, mæli 10 cm. Fóður i pilsið og renr.ilás. Brydding á jakkann eins og mynd- in sýnir, til greina koma satin, ullar og heklaðar bryddingar. Kjóllinn er prjónaður með sléttu prjóni, sem er prjónað slétt frá réttu og brugðið frá röngu. Nauðsynlegt er, að grófleiki garns- ins fylgi nákvæmlega áður uppgefnu stærðarhlutfalli og sniðið sé athugað jafnóðum og prjónað er. Bakstykki (jakkinn): Fitjið upp 70 1. og prjónið 70 prjóna án út- aukningar. Takið úr fyrir ermum báðum megin, 3, 2 og 1 1. i byrjun prjóns frá réttu. Prjónið áfram 32 prjóna. Fellið af fyrir öxlum: 2x7 1. og 1x6 1. Lykkjurnar sem eftir eru (18), eru felldar af í cinni um- ferð. Hægra framstykki: Fitjið upp 38 r I. og prj. 70 prjóna eins og á aftur- stykki. Fellið þá af fyrir ermum, 3, 2 og 1 1. Prjónið áfram 20 prj. og fellið þá af fyrir hálsmáli: 6, 2, 2, 1 Framh. á bls. 34.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.