Vikan - 07.06.1962, Síða 21
>
Árni Einarsson í enskum frakka frá
Wetherlux, London. Frakkinn er úr
ensku alullarefni, mjög léttur og fæst
í Herradeild P&Ó. Efnið er regnvarið,
en að innan er hann fóðraður með
lausu fóðri, sem hægt er að taka úr
með einu handtaki. Verð kr. 2.530,00.
Hatturinn er enskur frá Lees. Hann
er mjög brezkur að gerð, léttur og
mjúkur. Takið eftir börðunum, sem
rúllast að kollinum. Hanzkarnir eru
úr svínaskinni.
<
Bjarni Árnason sýnir stakan jakka
frá Þýzkalandi, sem kostar kr.
895,00. Jakkinn er með ítölsku sniði
og algjör nýjung hér; mjög stuttur,
þversniðinn að neðan og hnepptur
á fjórar tölur.
>
Árni Einarsson sýnir peysu úr mjög
grófprjónaðri, íslenzkri ull, hentuga
fyrir hverskonar sport og ferðalög.
Kraginn er samkvæmt nýjustu tizku
og hálsklúturinn er nýjung, notaður
við sportskyrtur opnar f hálsinn.
Húfur af þessari gerð hafa orðið
mjög vinsælar í Evrópu að undan-
förnu. Buxurnar eru úr terrylene
og kosta kr. 785,00, peysan kostar
kr. 460,00 og húfan kr. 325,00.
>
Þráinn í Ijósum sumarfötum frá Herra-
deild P&Ó eins og allur þessi fatnaður.
Fötin eru úr þýzku ullarefni og kosta
kr. 2.545,00. Við þessi föt hefur hann
vesti úr sama efni, sem mjög er í tízku
núna. Bindið er úr ull og terrelene.
<
Hér er Örn Hauksson í þýzkum
frakka úr þykku tveed. Frakkinn er
með raglan ermasniði og fremur stutt-
ur. Spællinn er látinn liggja laus. Verð
kr. 1.690,00. Hatturinn er þýzkur, svarr-
blár og kostar kr. 298,00. Skórnir eru
frá Skósölunni, Laugavegil.
Hér sjáið þið Örn Hauksson í ullar-
peysu af nýjustu gerð. Hálsmál og
vasar eru bryddaðir með leðri. Þetta
er hentug skólapeysa og til daglegrar
notkunar fyrir unga pilta. Skyrtan
er með prjóni í gegnum flibbann,
sem mjög er í tízku núna. Verðið
á peysunni er kr. 495,00 en skyrtan
kostar kr. 386,00. >
Bjarni Árnason í enskum terrylene-
frakka, dökkbláum. Frakkinn er fis-
léttur og vatnsheldur, vasarnir þver-
sniðnir með vasalokum. Auk þeirra er
Iítill vasi, hentugur fyrir smámynt og
þessháttar. Verð kr. 2.530,00. Hatturinn
er þýzkur, nýjasta tízka og kostar kr.
298,00. Regnhlífin kostar kr. 395,00.
ftAmoyn/vift,
IAMjDu
1962