Vikan - 19.07.1962, Page 10
Andri iiggur á grúfu ofan á fjársjóðnum eins og
ormur á gulli.
Það er spennandi að fejá hvað leynist í peninga-
hrúgunni — og gaman að gramsa!
Kafarinn, Andri Heiðberg, er hér fyrir
ofan í froskmannsúlpunni. A myndinni
til vinstri sést hann vera að stökkva
ofan í gjána, og heldur um grímun^
svo hún fari ekki úr skorðum þegar
hann skellur í vatnið. Svona hendir
hann sér ávallt niður, — en notar
ekki stiga. — Myndin til hœgri sýnir
að hann þarf ekki að óttast kuldann,
jjótt vatnið sé kalt. Ósviknar föður-
landsbrækur utan yfir allar hinar!
Neðsta myndin er tekin niðri í gjánni,
niðri við botn. Það glitrar alls staðar
á gullið og á steininum er forláta
kaleikur úr aluminíum og dýrindis
„silfurteskeið" úr blikki.
10 VIKAN