Vikan


Vikan - 19.07.1962, Page 30

Vikan - 19.07.1962, Page 30
MMITI SEM EYÐIR RYÐI. SPARAR TÍMA OG FYRIRHÖFN. ER AUÐVELD í MEÐFÖRUM. SANDBLÁSTUR OG RYÐHREINSUN ÓÞÖRF. Eiturflaskan Framh. af bls. 9. leit ekki glóandi augunum af henni, og Nicki heyrOi þungan, stynjandi andardrátt hennar, þrátt fyrir bolla- glamrið og hávaaðnn í kaffistofunni. Og loks mælti stúlkan svo lágri röddu að Nicki varð að leggja við hlust- irnar: — Hafnaðu þessu hlutverki, Nicki. Segðu herra Wolfe að þú sért til- neydd .... — Hvað áttu við? — Hringdu tafarlaust til hans, og segðu honum að þú sért tilneydd að hafna hlutverkinu, skilurðu. Segðu að óvænt atvik hafi komið í veg fyrir að þú getir tekið það að þér. Þú verð- ir að segja honum eins og er .... snyrtivörur Frekjan, sem fólgin var i þessari uppástungu, var svo gengdarlaus að það gekk fram af Nicki. — Þetta getur ekki verið alvara þín, sagði hún loks. — Jú, mér er þetta fyllsta alvara, Nicki. Og ég hef fyllsta rétt til að koma fram með slíka uppástungu. Ég er færari um að leika þetta hlut- verk en þú, og ég hef lagt meira á mig til þess að verða það. — En ég þarf líka að vinna .... — Þú hefur ekki eins mikla Þörf fyrir það og ég. Eíkki á sama hátt, á ég við. Það getur bókstaflega ekki átt sér stað. Hún lygndi aftur aug- unum, og það var því líkast sem vindutjald hefði verið dregið fyrir glugga á logandi herbergi. Svo opn- aði hún augun aftur og hvessti Þau á Nicki, hálfu heitari og myrkari en nokkru sinni fyrr. — Ef þú hafnar ekki þessu hlut- verki, Nicki, þá skal ég myrða þig. Ég tek alla heilaga til vitnis um að þá skal ég myrða þig, heyrirðu það. Nicki varð svo hverft við að hún hratt stólnum frá borðinu eins og hún vildi flýja. — Ég myrði Þig fyrst, og síðan sjálfa mig. Og ég hef verið staðráðin í því síðan herra Wolfe sveik mig um hlutverkið, að ég skyldi myrða hverja þá, sem tekin yrði i minn stað. Hún tók allt í einu að grúska í handtöskunni sinni. Svo dró hún upp úr henni lítið, móbrúnt glas og sneri því þannig við Nicki, að hún mætti sem bezt sjá höfuðkúpuna og kross- lögðu leggina á miðanum. — Það er þýðingarlaust að reyna að ógna mér, sagði Nicki. — Ég er ekki heldur að reyna að ógna þér. Ég er einungis að segja þér frá ákvörðun minni, þvi að ég vil ekki koma óheiðarlega fram við Þig. Ef þú hringir ekki til herra Wolfe og hafnar hlutverkinu, er það dauði okkar beggja. Og ef þér kemur til hugar að gera lögreglunni viðvart — þá gerðu svo vel. Ég segi bara að þú gangir með lausa skrúfu og hlæ mig máttlausa. Að svo mæltu spratt hún úr sæt- inu, sneri sér undan eins og hún vildi ekki láta á Því bera að hún grét, greip handtöskuna sína og hanzkana og hraðaði sér á brott. NICKI stóð fast við ákvörðun sina. Hún lét ekki ógna sér. Þegar iiún kom heim og sagði herbergissystur sinni hvernig farið hafði, minntist hún ekki einu orði á Jill Yarborough. Síminn hringdi klukkan há.'ftíu morguninn eftir. Nicki brá við si.jótt og tók talnemann. — Ungfrú Nicki Porter .... þetta er Carl Wolfe .... Nicki lokaði augunum og bað fyrir sér. — Við mætum hér öll á þriðju- dagsmorguninn klukkan tíu. Getið þér ekki komiö? — Jú, auðvitað, svaraði Nicki og lét sem ekkert væri. Það tók hana nokkurn tíma að læra hlutverkið utan að, þótt það væri ekki lengra en þrjár blaðsíður, og hún gleymdi Jill Yarborough gersam- lega. Carl Wolfe reyndist skemmti- legur leikstjóri, en átti það líka til að vera kröfuharður og beitti háðinu ef í það fór. Hann átti líka sinn þátt í Því, að hún gleymdi JilL Fimmtudagskvöldið kom hún heim af æfingu klukkan hálfátta. Hún var þreytt, en engu aö síður i bezta skapi. Theresa, herbergissysth* hennar, vildi fá hana út með sér, en Nicki hafði sagt nei, þegar hún hringdi til henn- ar. Ibúð þeirra var því myrk og mannlaus þegar Nicki kom heim. Hún afklæddist, þvoði hárið, brá sér I slopp, fann sér bók til að lesa og settist á legubekkinn. Þegar dyra- bjöllunni var hringt skömmu síöar, opnaði hún tafarlaust, þvl að hún hafði gersamlega gleymt Jill Yarboro- ugh. Jill var klædd svartri kápu með kraga úr gerviskinni, sem hún ýtti að hálsinum, ósjálfrátt og snöggt. — Það ætlaði ekki að verða auð- velt að hafa uppi á heimilisfangi þinu, sagði hún. Ég var tilneydd að snúa mér til bakdyravarðarins í leikhús- inu. — Fyrir alla muni vertu nú róleg, sagði Nicki þreytulega. Nú er allt klappað og klárt. Það er gersamlega þýðingarlaust fyrir þig að vera með nokkurn ofsa, ungfrú Yarborough. — Kallaðu mig bara Jill, sagði stlúlkan. Hún svipaðist um Inni I herberginu og tók síðan að klæða sig úr kápunni, enda þótt Nicki hefði af ásettu ráði látið hjá liða að bjóða henni sæti. Sem snöggvast hugði Nicki lika að þetta mundi allt verða í lagi. Jill virtist fullkomlega róleg og hafa alla stjórn á sér. Hún lagði kápuna á stól. — Skemmtilegt herbergi, varð henni að orði. Býrðu hér ein, bætti hún við. — Nei, við búum hér tvær saman. Herbergissystir mín getur komið á hverri stundu. Jill Yarborough hló lágt. — Nei, það máttu vera viss um að hún gerir ekki. Hún hefur vitanlega 30 VIKAN .

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.