Vikan


Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 12

Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 12
BIFREIÐAPRÓFU N VIKUNNAR OG FÉLAGS ÍSLENZKRA BIFREIÐA- EIGENDA. Prófunina framkvæmdi Pálmi Friðriksson bílaskoðunarmaður. Suðurpól, 9. ásúst, 1962. Kæri Björn. Ég ætlaði að minna tif; á einn hlut síðast, en gleymdi þvi. Þú ráðlagðir engum að flytj- ast til Svíþjóðar, eða svo skildist mér af svari þínu. Þú sagðir, að það væri velferðarriki og þar fengju menn skammtað það sem þeir þyrftu og ekki eyri þar framyfir. Mér þótti þetta athyglisvert, ekki vegna þess að ég vissi ekki um systemið hjá sænskum, heldur vegna þess, að ýmsir héldu að þannig væri himnarikið sjálft. Mér skilst, að hvergi séu almannatryggingar og allsherjarforsjón yfirvaldanna eins víðtæk sem þar. Það hefur meira að segja verið talað um, að fátækt væri varla til þar og það er vel af sér vikið í landi, þar sem sjö milljónir búa. Og svo kemur þú og segir: Nei, góði, ekki til Sviþjóðar. þar er ekki hægt að iifa. Þar færðu skammtað eins og yfirvöldin telja hæfilegt fyrir þig og úti- lokað er fyrir þig að næla þér í aukabita. Sem sagt: Velferðarríkið er nokkuð gott fyrir gamalmenni, fatlað fólk svo og letingja. En það er ekki fyrir duglega menn, sem vilja brjótast áfram og kæra sig ekki um, að ár- angurinn af erfiði þeirra lendi að mestu i ríkiskassanum — og fari þaðan í það að borga meira og minna verkfæru fólki ellilaun og öðrum verðlaun fyrir barneignir. Þá er ísland auðvitað betra. Hér geta bæði þú og ég haft tvöfalda vinnu; gefið upp til skatts einhvern slangur af svokallaðri aðal- vinnu, en ekkert al' öðrum tekjum, sem nema ef til vill hærri upphæð. Svo byggjum við lúx- usibúðir og kaupum okkur nýja híla og eng- inn skilur þessi ósköp, því það eru ekki bara við, sem liöfum það svona — heldur allur fjöldinn. En ríkið er svo aumt, að það getur ekki einu sinni lagt vegi þar sem þörfin er hrýnust. Vegarspottann ofan af Kjalarnesi aka að meðaltali um 1701) bílar á dag, en rikið hefur elcki efni á að hafa þennan spotta öðruvisi en nálega ófæran eins og alla aðra svokallaða vegi á þessu landi. Annars er ég á þeirri skoðun, Björn minn góður, að forsjón ríkisvaldsins sé versta for- sjón, sem til er. Þeim mun minni ríkisafskipti þvi betra. Allt sem ríkið leggur dauða hönd sína á, er dæmt til að mistakast — og mér finnst það raunar eðlilegt, þegar betur er að gáð. Því miður er það ekki guð, sem stjórnar ríkisvaldinu, heldur meira og minna ófull- komnir einstaklingar. Já, oftast fremur ófull- komnir, og það stafar af þeirri staðreynd, að dugandi menn veljast ekki til opipberra starfa. Itíkið borgar líklega lægst laun af öll- unx aðilum og l'ólkið, sem það fær til starfa er eftir því. Svo er annað: Menn hafa vart af þvi hagnaðarvon að vinna vel í opinberri þjón- ustu. Hvers vegna skyldu þeir þá vera að þvi? Ilvers vegna að mæta klukkan níu, hvers vegna ekki að gefa sér góðan tíma til þess ajð lesa blöðin, til þess að hregða sér i kaffi, til þess að fara í laxveiði þegar vel viðrar? Ég veit, að þú hefur komið á opinberar skrifstofur og séð vinnuhrögðin þar. Öllum er sania um atit. Skriffinskan er orðin vegna skriffinskunnar os afgreiðsian minnir á sat- íru á ieiksviði. En þetta er tilákaldur raun- vei'uleiki: Opinher slarfsemi með öllum þeixn dauðamerkjum, sem henni fylgja ævinlega. Mig iiryllir við því, liversu þessi rikiskrumlu seilist lengra og lengra og leggur undir sig at- hafnasvið, sem öll skynsamleg rök mæla með að einstaklingar sjái um. Eða hvað finn.st þér um það, Björn á Norðurpól? Ég vonast eftir svari í næstu viku. Vertu blessaður. — Þinn einlægur, Drandur á Suðurjxil. Séreinkenni: Iburðarlítill 4 manna, 4 dyra, framhjóladrifinn fólksbíll, heldur óásjálegur í útliti og frágangi, sérstaklega að innan. AÖ innan: Sætin eru veigalítil og fátækleg, bólstrun er engin, heldur er klæðning og fest- ing á henni svipuð og á garðstólum, en prýði- legt að sitja í þeim. Billinn er rúmgóður fyrir fjóra og fótrými ágætt í öllum sætum og út- sýni gott. Þéttingar á hurðum eru ekki nógu góðar. Hurðarhúnar að utan góðir en óþægi- legir að innan. Öryggi er á afturhurðunum, sem varnar því að börn geti opnað hurðirnar inn- an frá. Tvö sólskyggni eru í bílnum, stór og góð miðstöð og vatnssprauta á framrúðu. Gír- skiptistöngin er í mælaborðinu og er hún óþarf- lega fyrirferðamikil og skiptistangarhúnninn eins og í 10 tonna vörubíi. Farangursrýmiö er aftan við aftursætið, stórt og rúmgott. Aftan á bílnum er stór hurð fyrir það og opnast hún upp, sem er ágætt, þegar verið er að setja í eða losa farangursrýmið. Varahjólbarði er á mjög óheppilegum stað, þar sem hann er festur ncðan á gólfið aftast og er bæði örðugt að komast að honum og eins er hann þarna óvarinn fyrir aur og bleytu. Fjöörunin er snúningsfjaðrir (Torsion Bars) bæði að aftan og framan og er fjöðrunin góð. Hátt er undir bílinn, eða 18 cm, og möguleiki er að hækka hann upp í 22 cm og hentar hann því vel okkar staðháttum hvað það snertir. Aksturseiginleikar eru góðir, hann liggur vel á vegi og er stöðugur í beygjum og er fram- drifið þáttur i því. Annars er billinn ekki gerð- ur til hraðaksturs. Fóthemlabúnaöur er vökvaþrýstihemlar og eru léttar í ástigi og virka vel. Handhemill er á framhjólum og léttur í átaki. Smurningu er alveg hægt að spara sér, því að allir hreyfil- Framhald á bls. 31. 12 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.