Vikan


Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 31

Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 31
REYNSLAN SKER UR UM BEZTU KAUPIN Tire$lone tryggir gæðin Það borgar sig að kaupa hjólbarða sem veita yður: ENDINGU ÖRYGGI og eru þar að auki ódýrir Biðjið um Jircstone NYLON 500 fólksbílahjólbarða SPARIÐ PER. KM. MEÐ Tirt$(OHt Laugavegi 178 Sími 38000 RENAULT Framhald af bls. 12. hlutar undirvagnsins leika í gúmmi- fóðringum eða innsmurðum legum og engin smurvarta er í bilnum. Að- eins þarf að athuga olíu á vélinni og gírkassanum. Kælikerfið kemur innsiglað frá verksmiðjunni. Á því er vatn og glycol blanda, sem á að þola 40° frost C og á ekki að gufa upp i miklum hitum. Fyrstu bílarnir af þessari nýju gerð eru með 26 ha mótor, en allir bílar, sem framleiddir verða eftir sumarleyfi í verksmiðjunum, þ.e.a.s. eftir 1. ágúst 1962, verð af árgerð 1963 og koma með stærri vél, sams konar og er í Renault Dauphine. Tæknilegar upplýsingar: Vélin er 4 strokka, 4 gengis toppventlavél, 30 hö við 4500 sn/m, vatnskæld og stað- sett fram i bílnum. Gírkassi: 3 gírar áfram og einn aftur á bak. Aðeins 2. og 3. gír syn- croniseraðir. Rafkerfi er 12 volta. Hjólbarðastærð er 135x13 (500x 13). Breidd 1.48 og þyngd 570 kg. Verð með miðstöð og vatnssprautu á framrúðu er 109 þúsund krónur. Af þessari gerð er einnig framleidd- ur sendiferðabíll og kostar hann 88 þúsund. Umboð: Columbus h.f. Þar sem bíllinn er nýr á markað- inum, er ekki um að ræða verð á notuðum sams konar bílum. Blaðamaður frá Vikunni segir um bilinn: Þessi nýi Renault 4 L er ekki mjög ásjálegur að ytra útliti, eins konar millistig á milli smábíls og jeppa. Þó virðist hann vanta nægilegan styrkleika i innri byggingu og hurð- ir virtust ekki vera nægilega þéttar. Aftur á móti eru flestir hlutir í bílnum þannig, að fljótlegt og auð- velt er að skipta um, t.d. eru sætin þannig. Billinn fer mjög vel yfir ójöfnur og holur og liggur afbragðs- vel á beygjum og er það vafalaust framhjóladrifinu að þakka að ein- hverju leyti. Billinn vinnur miklu betur en bestafiatala vélarinnar gef- ur tilefni til að lialda. Þessi bíll hef- ur átt miklum vinsældum að fagna i Norður Noregi og Norður Finnlandi, þar sem vegir eru frekar slæmir og líklega er hann að mörgu leyti góð- ur fyrir islenzkar aðstæður. Tveir skrípaleikir Framhald af bls. 2. er ekki nema rökrétt að hinir liafi sett hálfu meir ofan fyrir sinn óum- 'deilanlega skrípaleik. Og svo kemur það furðulegasta. Nokkur vafi mun á því hvort bætt verður á að selja annan viðlíka skripaleik á svið í Þjóðleikhúsinu, þar eð slíkt þyki ekki sæmandi stofnun, sem kennd er við þjóðina. En á hinu er enginn vafi, að þess muni ekki langt að biða að for- ráðamenn þjóðarinnar endurtaki sinn skrípaleik og telji það hvorki sér né þjóðinni neina vansæmd ... Drómundur. VIKAN 31

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.