Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 28
REX— HÁLFMATT
er eina lakkiö sinnar tegundar
á markaðinum. Málarar segja: Einmitt
það sem okkur hefur vantað.
Létt í meðferö, — létt að þrífa.
Þornar á 3 — 4 tímum.
■ ('siöfrp
i
*
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerlciö (21. apr.—20. apr.): Þetta verður
óvenjuleg vika í alla staði, einkum hvað öll hjart-
ans mál snertir. Þú verður mikið úti við og gefst
mikill timi til tómstundaiðju, og skaltu reyna að
nota bennan tima vel, af Því að innan skamms
muntu eiga mjög annríkt. Vinur þinn kemur með skemmti-
lega uppástungu, sem þú skalt hugsa vandlega um.
Nautsmerkið (21. apr.—21. mai): Þetta verður
vika mjög frábrugðin vikunni sem leið — ef
fyrri vika hefur verið skemmtileg, er því miður
hætta á því að vikan núna verði hundleiðinleg.
Þó gæti svo farið að skipti mjög snöggt um á
þriðjudag. Þú færð gest í heimsókn 1 vikunni, sem þér sem-
ur ekki allskostar við, en endalok þess verða þó hin
skemmtilegustu. Heillatala 13.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þetta verður
mjög ánægjuleg vika, einkum fyrir þig og fjöl-
skyldu þína. Þú munt sjá óvenjulítið af kunn-
ingjum þínum í vikunni, enda hefurðu nóg að
gera heima við. Líklega ert þú orðinn full-
heimtufrekur gagnvart einum í fjölskyldunni, og þótt hann
telji enn fæst eftir sér, máttu samt ekki ganga á lagið.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí): Einn hæfi-
leiki þinn fær duglega að njóta sín í vikunni.
Það er leiðinlegt að vita til þess hversu lítið þessi
hæfileiki hefur fengið að njóta sin, en nú gefst
þér tækifæri til Þess að svo megi verða í fram-
tíðinni. Fimmtudagurinn er dálítið undarlegur, þvi þann dag
gerist dálítið, sem þú skilur ekki allskostar og veldur þér
einhverjum áhyggjum.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þú munt um-
gangast félaga þína óvenjumikið í vikunni. Lík-
lega verjið þið tómstundum ykkar á allt of ein-
hliðan hátt, og gætir þú einmitt orðið til þess I
vikunni að þið breyttuð til og fengjuð meiri fyll-
ingu út úr þessum tómstundum. Þú skalt fara varlega með
peningana í vikunni. Heillatala 4.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Þú hefur ver-
ið með hugann fullan af einhverju undanfarið, en
nú verður eitthvað til þess að áhugi þinn á þessu
máli dvínar svo um munar. Um helgina gerist
ýmislegt, sem óvenjulegt mætti teljast, ekki slzt
ef Amor er með í spilinu. Þú ferð líklega að heiman I svo-
sem tvo daga í vikunni og kynnist þá skemmtilegri persónu.
Vogarmerkiö (23. sept.—23. okt.): Þetta er tvi-
mælalaust vika kvenþjóðarinnar. Fyrir kven-
fólkinu virðist allt ætla að leika I lyndi — marg-
ar gamlar óskir rætast nú mjög óvænt. Karlmenn
Þurfa reyndar engu að kviða, þótt vikan verði
ekki beint skemmtileg fyrir þá. Mánudagurinn virðist vera
langmikilvægasti dagur vikunnar.
DrekamerkiÖ (24. okt,—22. nóv.): Þú færð mjög
Þægilega sendingu I vikunni, líklega fyrir helgi.
Vinur þinn hverfur af sjónarsviðinu, Hklega um
um stuttan tlma, en það kemur sér þó afar Illa
fyrir þig, einmitt núna. A vinnustað rikir leiðin-
legur andi þessa dagana, og líklega getur þú fátt gert til
þess að bæta úr því.
Bogmannsmerkiö (23. nóv.—21. des.): Félagslífið
verður mjög fjörugt I vikunni, og yfirleitt verður
þú hrókur alls fagnaðar, hvar sem þú kemur.
Það er samt eins og þú sért að gera þér upp
skringilega lifnaðarhætti þessar vikurnar, en
Þetta er allt annað en aðlaðandi og gæti jafhvel orðið til
þess að menn fara að líta þig óhýru auga.
Geitarmerkiö (22. des—20. jan.): Þér hafði verið
lofað einhverju I vikunni sem leið, eða vikunnl
Þar áður, en nú verður þetta svikið herfilega, og
getur þú ekkert við þvi gert. Varastu að treysta
þessum aðila enn einu sinni — hann á ekki trún-
aðartraust þitt skilið. Þú hefur vanrækt vin þinn einn
undanfarið, en það skyldi aldrei verða.
Vatnsberamerkið (21. jan,—19. feb.): Þú dettur
aldeilis I lukkupottinn undir helgina. Líklega
stígur þetta lán þér til höfuðs, svo að þú ferð að
gerast jafnvel fífldjarfur og tefla á tvær hættur,
og gæti Þetta oröið til þess að eyðileggja eitthvað
fyrir þér. Vinur þinn, sem þú hefur ekki séð lengi, kemur
nú allmikið við sögu. Heillatala 9.
F‘iskamerkið (20. feb.—20. marz): Það virðist
eitthvert ólán elta þig fram að helgi, svo að þú
skalt ekki leggja út í nein stórræði. Þú kemur
heldur illa fram við yfirboðara þinn, og verður
Það til þess að þú missir af gullnu tækifæri. Þú
skalt samt ekki gráta það, því að innan skammst býðst þér
annað og girnilegra tækifæri. Heillatala 6.
á'+*A