Vikan


Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 18

Vikan - 09.08.1962, Blaðsíða 18
Hatjdftvíitiifi SNIÐAÞJONUSTA VIKUNNAR NÍTT FOT HVAÐA STÆRÐ ÞARFTU? Númer á sniðunum ... 38 Ifi 4% 4k 46 48 Baklengd í cm Brjóstvídd . . . . Mittisvídd . . . . Mjaðmavídd 40 41 42 42 42 43 86 88 92 98 104 110 64 66 70 78 84 90 92 96 100 108 114 120 Sídd á pilsi .... 70 í öllum stærðum + 5 cm í fald. „ANGELA‘ | Sendið mér í pósti sniðinn kjól, samkvæmí mync I og lýsingu í þessu blaði. Sem trygglngu fyrir skil- I vísri greiðslu sendi ég hérmeð kr. 100.— U io Stærð........ Litur ...................... ‘S, cx g Ef sá litur kynni að vera búinn, sendið mér þá: Nafn: ........ ! Heimilisfang: Enn einu sinni brýtur Vikan upp á nýjung, sem ætla má að veki athygi og verði einhverjum til gagns. Því ti’gangurinn er einungis þjónusta við hina ágætu lesendur blaðsins. Þjónustan er fólkin i því, að Vikan gefur konum á öllum aldri kost á því að fá sniðna kjóla úr ákveðnu.efni, fyrir litið meira en efnið inyndi eitt Irosta í búð. Fjöldi kvenna sparar sjálfum sér og heimilunum stórfé með því að saurna sjálfar í stað þess að kaupa tilbúið. En oftast er meginvandamálið það, að sníða flikina. Það verður ekki aftur tekið, þegar slcakkt er sniðið. En nú er óþarft að hafa áhyggjur af því. Ef ykkur fellur vel við kjólinn. sem í hvert sinn verður sýndur, þá er ekki annað en að skrifa Sniðaþjónustu Vikunnar, senda kr. 100 > tryggingu, og þá kemur kjóllinn að vörmu spori með póstinum, niðurklipptur ásamt leiðbeininguin um saumaskopinn. Eftirstöðvarnar af verði kjólsins eru svo borgaðar, þegar póstkrafan kemur, það er áð segja m'eð kjólnum. Það er Erna Ingólfsdóttir, Álfheimum 26, sem sér um Sniðaþjónustu Vikunnar. Hún velur efnin og snið- in og Vikan sendir ljósmyndara til hennar einu sinni í viku til þess að taka mynd af nýjum kjól. Kjóllinn verður svo hafður til sýnis i Kjörgarði, festur á ginu, og þar geta þær séð hann með eigin auguin, sem hafa ástæðu og vilja þar til. Þennan bráðfallega kjól, sem þið sjáið á myndinni, getur þú auðveldlega saumað sjálf. Sníðaþjónusta Vikunnar sendir hann heim til þín ásamt saumatilsögn. — Hann kostar sniðinn 195.00 krónur, 100 krónur sendist með pöntuninni, og 95 krónur á að borga, þegar póstkrafan verður leyst út. Ef þú vilt fá rennilás, tvinna og flisilín, þá kostar það aukalega kr. 36.50. Efnið er þunnt poplín og iitirnir, sem um er að velja eru grænt, fremur ljóst, grátt og blátt. Mynztrið er rósótt og rósirnar eru örlítið „hreyfðar" eins og þær renni saman. Ef þú vilt sjá efnið, þá getur þú sent frímerkt umsiag til Sníðaþjónustu Vikunnar og þá færðu prufu af efninu senda með pósti. Það er mjög auðvelt að sauma, þegar vel er merkt fyrir ölium saumum og fölium. Kjóllinn er fieginn í bakið og blússan nær aðeins niður fyrir mitti. Piisið er með litlum fölium og stórru siaufu að aftan. Kjóilinn er í stærðunum 38, 40 og 42. Allar frekari upplýsingar verða veittar í sima 37503 milli kl. 2 og 5 á mánudögum og föstudögum. Pöntunarseðill er hér á síð- unni. Útfyllið hann, tilgreinið stærð og lit og merkið bréfið: Sniðaþjónusta Vikunnar, Skip- hoiti 33. Kjóilinn verður síð- an sendur í póstkröfu, eins og áður er sagt. ANGEIA' Náttföt á % árs: Yfirvídd 53 cm, skálmarsidd á innanverðum buxunum, 20 cm. Efni: 1,10 m af röndóttu flón- eli 70 cm breiðu. Rennilásar, 12 cm langur, sem saumaður er á v. hlið og 40 cm langur, sem saumaður er þvert yfir báðar skálmarnar, innan- verðar, til bleyjuskipta. Náttföt á 1 árs: Yfirvidd 60 crn. Skálmarsídd 23 cm. Efni: 1,40 m af 70 cm breiðu efni. Tveir rennilásar 12 og 45 cm langir. Strikið fcrninga á pappír, 5x5 cm hvern ferning, teiknið sniðin eftir skýringarmyndinni, klippið. Sniðið náttfötin með 1 cm saumfari. Ath. að þráðrétt liggi í öllum stykkjum. Saumið saman með tvöföidum saumi, fram- og bakstykki þar scm merkt er með A og hliðar- saum, merktur B. Sniðið fóður eftir efri hlutan- um, sem merkt cr fyrir með punktalínu. Saumið fóðrið við, réttu mót réttu og snúið við. Saumið vinstri hliðarsaum, E, en skiljið eftir 12 cm iangt ósaumað op fyrir rennilás. Saum- ið rennilásinn i og gangið frá fóðrinu. Saumið ianga rennilás- inn bvert yfir skálmarnar, merkt- an F. Brjótið upp skálmarnar að neðan og leggið niður við, með ósýnilegu faldspori Hnappagöt og hnappar saumað eins og á myndinni. Grænmetið, sem notað er i kalt salat, á að vera kalt og vel þurrt. Ef það er þvegið rétt áður en það er notað, þarf að láta það liggja í hreinum klút nokkra stund. Ef blöðin eru blaut, festist sósan, sem notuð er, ójafnt á blöðin. Sé salat notað sem aðairéttur, annað livort á kvöldborð, eða sem hádegismatur á heitum degi, er venjuiega haft í því kjöt eða fiskur, cn sé það með eða á undan oðrurn mat, er eingöngu grænmeti í þvi. Þar sem salat er mikið notað, er venjulega notuð sérstök skál undir það, sem ekki er notuð til annars, og gott þykir að hafa hana úr tré. Tréskálar á aldrei að þvo, en þær eru þurrkaðar með hreinum klút eftir hverja notk- un og síðan með franskbrauð- sneið, sem sýgur í sig olíuna. Þegar salat er sett i hana á ný, er hún nudduð með volgri 18 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.