Vikan - 09.08.1962, Side 23
SJÓNVARPSTÆKI
Einu sinni rifust menn um það, livort rétt
væri að leggja talsíma uin landið. Núna getur
enginn komist af án simans. Einu sinni rifust
mcnn um það, hvort rétt væri að koma á fót
útvarpsstöð hér á landi. Nú þykir útvarpstækið
jafn sjáifsagt á hverju heimili og eldavélin. Nú
hnaklcrífast inenn um það, hvort íslenzkt sjón-
varp eigi rétt á sér. Ilvað sem rifrildinu líður,
er hitt víst, að sjónvarpsstöð verður stofnsett
hérna eins og annars staðar, áður en langt um
líður. Það fá þrongsýnisraddirnar ekki i'yrir-
byggt til lengdar.
Fyrsti og verðmætasti vinningurinn í verð-
launagetraun Vikunnar að þessu sinni er glæsi-
legt og vandað sjónvarpstæki af PHILCO-gerð
frá 0. Johnson & Kaaber. Tækið kostar kr.
18.000 í útsölu og er hin mesta hibýlaprýði.
0. Johnson & Kaaber hafa undanfarin þrjú
ár selt hundruð PHILCO-sjónvarpstækja, sem
reynzt hafa prýðilega í alla staði. Er óhætt að
fullyrða, að tæki þessi séu meðal hinna full-
komnustu, sem í notkun eru hér á landi. Þau
eru gerð fyrir að taka á rnóti efni frá banda-
riskum sjónvarpsstöðvum, eins og t. d. Kefla-
víkur-stöðinni, en með smábreytingu má ná
sendingum frá öðrum stöðvum einnig. Verk-
smiðjurnar framleiða sem sé lítið • tæki, nokk-
urs konar breyti, sem kosta mun uin 1000—1500
kr. Þegar hreytir þessi hefur verið settur í sam-
band við aðaltækið, nær það sendingum hvaðan
sem er, hvort sem um evrópska- eða bandaríska
kerfið er að ræða, ef önnur skilyrði eru fyrir
liendi. Vinsældir sjónvarpsins fara ört vaxandi
hér á landi sem annars staðar, þótt við höfum
enn sem komið er ekki um marga kosti að velja
í efnisvali. Þeim fer fjölgandi dag frá degi, sem
liorfa á Keflavíkur-sjónvarpið, og menningin
stendur sig samt eins og hetja og virðist hvergi
riða til falls af þeim sökum. Þess vegna er
Vikan þess fullviss, að sá, sem hreppir fyrsta
vinninginn i getrauninni og sezt inn í stofuna
sína eftir vinnudag og nýtur þessarar skemmti-
legu uppgötvunar tuttugustu aldarinnar, mun
ekki bíða tjón á sálu sinni, heldur hafa bæði
gagn og gaman af því, sem birtist á 23 tommu
breiðum skerminum á nýja Philco-tækinu.
VERÐLAUNAKEPPNl VIKUNNAR
FERÐ TIL
MEGINLANDSINS
Sá, sem hreppir önnur verðlaunin, á í vændum ferð til
meginlandsins, Englands og heim aftur. Farið verður með
einhverju af skipum Eimskipafélags íslands til Rotterdam. Frá
Rotterdam á vinningshafi síðan kost á að skreppa yfir til
Lundúna með hinu glæsilega hafskipi Arkadiu, sem sést hér
á myndinni á siglingu. Frá London ekur vinningsafi norður
eftir Englandi til Edinborgar í Skotlandi í nýtízku langferða-
bifreið frá Scottish Omnibus. Ökuferðin tekur tvo daga og er
þá staldrað við á ýmsum merkisstöðum. í Edinborg tekur
Eimskip vinningshafa aftur upp á arma sína og býður far
til Reykjavíkur á fyrsta farrými á glæsilegasta fleyi íslenzka
flotans, Gullfossi.
Með „Fossunum" frá Reykjavlk til Hollands og frá Skotlandi
til íslands á vegum Eimskipafélags íslands og ineð Arkadíu
frá Rotterdam til London á vegum Ferðaskrifstofunnar Sunnu,
sem einnig sér um ökuferðina frá London til Edinborgar:
Býður nokkur betur?
22 VIKAN
HUSQVARNA SAUMAVÉL
Enginl vafi leikur á þvi, að sænsku Husqvarna saumavélarnar eru meðal vin-
sælustutheimilistækja sinnar tegundar liér á landi, enda er það engin tilviljun.
Hundruo húsmæðra um allt land hafa sannprófað gæðin og komizt að raun um,
að það vandamál í saumaskap er vart til, sem Husqvarna-vélin er ekki fær um
að leysa.
Þriðji vinningurinn er vönduð Husqvarna Automatic saumavél, eina vélin á
markaðinum með innbyggðri hraðaskiptingu. Vélinni fylgir sterk og smekkleg taska
með geymsluhólfuin fyrir framlengingarplötu, gangstilli og fylgihluti. Gunnar Ás-
geirsson h.f. hefur einkaumboð fyrir Husqvarna hér á landi.
Skemtilegur vinningur fyrir herrann, sem ætlar að
fylgjast með hausttízkunni: Hattur, hanzkar og regn-
hlíf frá P&Ó herradeild, Austurstræti 14. Nauðsyn-
legir hlutir fyrir hvern þann karlmann, sem vill vera
vel til fara. Verzlunarmennirnir hjá P&ó aðstoða
vinnandann við að velja smekklega samstæðu, t. d.
enskan hatt og regnhlif og ítalska hanzka. Vinning-
urinn gildir jafnt fyrir hvaða karlmann sem er,
kvæntan, heitbundinn eða ólofaðan.
Á myndinni sjáum við skrautmuni frá Skarti h.f.,
sem sérstaklega eru smíðaðir fyrir verðlaunagetraun
Vikunnar. Skyrtuhnappa- og bindisnælusett úr 925
sterling silfri fyrir herrann og gullfallegur gullhring-
ur með „Alexandrite“-steini fyrir dömuna.
Vikan öfundar þann karlmann, sem festir fyrst
hnappana í skyrtuna sína og næluna i bindið sitt og
dregur síðan glitrandi djásnið á fingur eiginkonu
sinnar, kærustu eða bara vinstúlku.
Hinn vinsæli skemmtistaður „við sundin blá“,
Klúbburinn við Lækjarteig, býður tveimur gest-
um upp á allar þær veitingar, sem staðurinn
getur framreitt og með góðu móti má njóta á
einu kvöldi. Það þarf áreiðanlega enginn að
fara óánægður út eftir slíka kvöldstund. Við
notum tækifærið og óskum tilvonandi vinnings-
hafa góðrar skemmtunar, því að við vitum af
eigin raun, að það er alveg óhætt.
GETRAUNIN:
HVAÐ
HEITIR
FJALLIÐ?
-— ^— --Klinnið hár-
Bláfell, Arnarfell ið inikla, Hrútfell, Eiríksjökull, Herðubreið, Torfajökull, Hekla?
GETRAUNARSEÐILL NR. 4.
Fjallið á myndinni er ekki alveg á næstu grösum við okkur Sunnlendinga — en það getur nú verði gott fyrir
því. Það stendur uppi á hálendinu, sem er yfirleitt merkilega mishæðalaust. Þess vegna gnæfir þetta myndar-
lega fjall langt yfir allar ómerkilegar hæðir; blasir við úr langri fjarlægð og horfir yfir hraunið, sem útilegu-
menn höfðu sérstakt dálæti á. Þetta fjall er mjög reglulegt í lögun, hvar sern á það er litið: Lág trjóna í miðju,
sem líklega er gamall og útbrunninn gígur, hamrabelti efst en síðan skriður á allar hliðar. Myndin er tekin
við lindir nokkrar, seni einmitt eru kenndar við fjallið. Hvað heitir fjallið?
I FJALLIÐ HEITIR
I
H NAFN ...........
«<U
£ HEIMILI ........
s
g SÍMI ...........
VIKAN 23