Vikan


Vikan - 08.11.1962, Blaðsíða 18

Vikan - 08.11.1962, Blaðsíða 18
APPELSÍNUTERTA. 150 gr (2Vi dl) hveiti, 100 gr smjör- líki, 50 gr (IV2 dl) sykur, V2 egg. Fylling: 2 appelsínur, IV2 dl sýróp, 3 msk. brauðmylsna. Hveitið er sáldrað, sykrinum bland- að saman við og smjörlíkið múlið í með linif. Vætt i með egginu. Hnoðað fljótt saman. Kælt. Bezt er að mótið sé með lausum botni. Helmingur deigs- ins gt flattur út og látið í botn og barma mótsins. Appe^sinurnar eru flysjaðar og skornar í þunnar sneiðar, lagðar yfir deigið í mótinu. Sýrópið er hitað, brauðmylsnunni blandað saman við og hellt yfir appelsínurnar. Það sem er eftir af deiginu er flatt út, skorið í strimla og fléttað yfir. Að síðustu er ein lengja lögð á samskeyt- in við barm mólsins. Bakað við um það bil 200 gráður í 30 mín. eða þar til kakan er gegnum- bökuð. Látin kólna nokkra stund áður en hún er tekin úr mótinu. Bezt nýbökuð. Gott er að bafa þeyttan rjóma með kökunni; er hann þá borinn með í skál eða sprautað 1 kring um hana. (Sjá mynd). SÚKKULAÐIKAKA. 150 gr smjör'íki, 250 gr sykur (3dl), 2 egg, 175 gr liveiti (3 dl), 1 tesk. lyftiduft, 1 tesk. vaniljusykur, 4 msk. kakaó, % dl mjólk, % dl sjóðandi vatn. Smjörlíkið er hrært með sykrinum og van- iljusykrinum ])ar til það er létt og ljóst. Eggin eru þeytt vel saman og brærð smátt og smátt út í. Hveitið er sáldrað með lyftidufti og kakaói, hært samna við ásamt mjólkinni og að síðustu sjóðandi vatninu. Látið í vel smurt mót og bakað við hægan hita um það bil eina klst. (Sé hitastillir á ofninum er hann stilltur á 175 gráður). RÚLLUTERTA MEÐ SÚKKU- LAÐIKÓKOSKREMI. 3 egg, 125 gr (1 V2 dl) sykur, 1 msk. vatn, 50 gr hveiti (5 msk.), 50 gr kartöflumjöl (4 msk.), V2 tesk. hjartarsalt. Kremið: 00 gr smjörlíki, 100 gr (IV2 dl) flórsykur, 3 msk. kakaó, 1 msk. kaffi eða vatn, 40 gr (1 dl) kókosmjöl. Eggin eru þeytt með sykrinum og vatninu þar til þau eru létt og Ijós. Hveiti og hjartar- salti sáldrað samna við og hrært varlega i. Lát- ið í vel smurða smjörpappírsskúffu. (Stærð um það bil 30 cm breidd og 40 cm lengd). Bakað við 225 gráður, þar til kakan hefur lyft sér og er gulbrún á litinn. (Bökunartími er 5—7 mín.). Kökunni er þá hvolft á sykristráðan pappír og ofnskúffu hvolft yfir. Kremið: Smjörlíkið er hrærl með sáldruðum f'órsykrinum og kakaóinu. Því næst er kókos- mjölinu og köldu kaffinu hrært saman við. Þegar kakan er vel köld er kreminu smurt jafnt yfir og hún siðan vafin upp. FYLLTAR KÖKUR (Linsur). 150 gr hveiti (2Vt dl), 100 gr smjörlíki, 50 gr (Vt dl) sykur, Vt egg. Fylling: 75 gr smjörliki, 150 gr sykur (1% dl), Vu dl rjómi, 50 gr. saxaðar linetur eða möndlur (1 dl), 50 gr saxaðar rúsínur (1 dl), söxuð kirsuber (cocktailber). Hveitið er sáldrað, sykrinum blandað saman við, smjörlíkið skorið í með hnif. Hnoðað fljótt saman. Kælt. Flatt út meðalþykkt, skorið und- an glasi eða kringlóttu móti, þannig að stærðin sé( hæfileg fyrir mótin sem baka á í. í hvert mót er síðan látin kaka sem á að hylja botn og barma mótsins. (Úr uppskriftinni fást um það bil 20 kökur). Fyllingin er soðin saman í potti og skipt í mótin. Bakað við góðan liita (200 gráður) í um það bil 10 mínútur. LITLAR MÓTKÖKUR MEÐ APPELSÍNUBRAGÐI. Ca. 18 stk. 150 gr smjörlíki, 150 gr sykur, 3 egg, 3 msk. appelsínusafi, 150 gr liveiti, V2 tesk. lyftiduft. Smjörlíkið er lirært með sykrinum þar til það er létt og' ljóst. Eggin hrærð saman við eitt og eitt. Hveitið er sáldrað með lyftiduft- inu og blandað saman við ásamt appelsinu- safanum. Skipt i vel smurð lítil mót (linsumót). Ath. að hafa mótin ekki nema hálffull. Bakað 10—15 mín. við um það bil 200 gráðu hita. Þegar kökurnar eru bakaðar, eru þær kældar og síðan hjúpaðar með sykurbráð, sem búin er til á eftirfarandi hátt: 125 gr af flórsykri er lirært með 2—3 msk. af appelsínusafa þar til það er jafnt. Kökurnar eru hjúpaðar og skreyttar með appelsínubitum, rauðum berjum eða valhnetum. FLJÓTLEG SANDKAKA MEÐ APPELSÍNUBRAGÐI OG SÚKKULAÐIBITUM. 175 gr smjörlíki, 175 gr sykur, 3 egg, 150 gr liveiti, 75 gr kartöflumjöl, V2 tesk. lyfti- duft, rifið hýði og safi úr hálfri appelsínu, %—V2 plata súkkulaði. Kakan er hrærð á sama háttt og litlu mót- kökurnar. Kartöflumjölið er sáldrað með hveit- inu og lyftiduftinu. Súkkulaðið er skorið í frem- ur smáa bita og blandað i siðast. Því má sleppa 18 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.