Vikan


Vikan - 08.11.1962, Blaðsíða 36

Vikan - 08.11.1962, Blaðsíða 36
Hárið verður fyrst fallegt með SHAMPOO WHITF. RAIN gerir hár yðar gullfallegt. Hínn silkimjúki lögur gefur hárinu þægilegan ilm og gljáandi blæfegurð— laðar fram hinn dulda endisþokka Af White Rain eru framleiddar þrjár tegundir, sem fegra allar hárgerðir— ein þeirra er einmitt fyrir yður. PERLUHVÍTT fyrir venjulegt hár FÖLBLÁTT fyrir þurrt hár BLEIKFÖLT fyrir feitt hár Toni framleiðsla tryggir fegursta hárið ÞjóÐsacja VTKUNN5R HAGAA AF BKA^ÐA- KALLI Það var einu sinni hjón á bæ. Þau áttu þrjá sonu; einn hét Ás- mundur, annar Jón, þriðji Þórsteinn. Þeir voru efnilegir nema Þórsteinn; hann lá oftast í öskustónni og var hafður útundan. Það var eitt haust er þeir voru orðnir fullvaxnir bræður að bónda var vant sauða. Nú voru gengnar fjallgöngur og fundust eigi sauðir bónda og þótti bónda illt að verða við skaðanum og heitir á Ásmund son sinn að leita sauðanna. Hann býst nú til ferða og kveður föður og móður og bræður, en þau báðu hann vel fara. Hann gengur nú á fjöll inn og er hann hefur gengið fjögur dægur þá fer að drífa og ekki finnur hann sauðina. Versnar nú óðum veðrið og er hann nú kom- inn svo langt að hann veit ei hvört fara skal og lætur nú fyrirberast um nóttina; og um morguninn er sama veður. Hann gengur nú þenn- an dag allan og er veðrið alltaf að versna svo hann býst nú ekki við öðru en dauða sínum, gengur nú lengi þar til honum finnst fara að halla undan fæti, og nú fer veðrið að skána so haxm sér að hann er nú kominn í dalverpi. Hann gengur nú ofan eftir dalnum og er hann dýpri eftir því sem hann gengur lengra og er snjólaus að kalla. Sér hann nú bæ og stefnir þangað. Er hann kemur heim er maður úti gamall og illilegur. Ásmundur heils- ar honum og spyr að heiti, en hinn sagðist heita Bragðakall. Kall spyr hvað hann heiti. Hann sagði sem var. Heimamaður spyr hvört hann væri að fara, en hann segist leita sauða. Kall kvað þá eigi liggja á lausu þó eitthvað væri þar nema hann vildi þar vera og gjöra það sem hann segði honum. Hinn kvaðst það gjöra mundu. Kall mælti. „Þú skalt passa féð og hafa hund þann er ég er vanur að brúka. Þú skalt fara með féð á morgnana þegar rakkinn hristir sig og heim þegar hann geltir á kvöldin. Þú skalt og gegna sveininum Kvöldkokk þegar 36 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.