Vikan


Vikan - 08.11.1962, Blaðsíða 37

Vikan - 08.11.1962, Blaðsíða 37
hann kallar:“ Hann játar því. Kall spurði hvört hann vildi heldur éta með sér eða hundinum. Hann sagð- ist með hundinum éta vilja. Kall sagði að ef öðrum hvörjum þætti þá sá skyldi drepa þann sem reiddist og þessu játar Asmundur og tekur nú við fénu. Hundurinn hristi sig um dögun og gelti um dagsetur. Ásmundur þekkti þar fé föður síns. Fyrsta kvöldið þegar hann kom heim þá hafði hann skammtað hon- um og hundinum fullt trog af graut og keti. Hann fer nú að éta og er hann hafði lítið matazt heyrði hann einhvörsstaðar óp mikið. Kall mælti: „Nú gólar sveinninn og verður þú að vitja hans.“ Hann fer nú og leitar hvarvetna og finn [ur] ekki og er hann kemur inn aftur er hund- urinn að sleikja innan trogið. Þetta gengur nú þrjú kvöld, en fjórða kvöldið mælti hann við kall að hann þyldi þetta ekki. Kall spurði hvört honum þætti það. „Og því ætli mér þyki það ekki? [svaraði Ásmundur]. Kall drepur hann þegar. Nú víkur sögunni til bónda að honum lengir eft [ir] syni sínum og líður nú veturinn og sumarið so ekki spyrst til ferða Ásmundar. Bóndi heldur hann nú dauðan. Um haust- ið vantar bónda hálfu fleiri sauði en hið fyrri haustið. Þá mælti Jón við föður sinn að hann vill leita sauðanna. Hann kvað það ekki ráð- legt, en Jón kveðst fara vilja. Og það verður að hann fer á brott með slíkt er hann þurfti; og er það fljót- legast að segja að hann varð fyrir því sama og bróðir hans og drap Kall hann líka. Bónda þykir nú verr en áður og telur nú Jón dauðan. Hið þriðja haust vantar bónda sauði og fleiri en áður. Þórsteinn hristir sig nú upp úr öskunni, geng- ur fram fyrir föður sinn og bað um nesti og skó og kvaðst vilja leita að sauðunum og bræðrum sínum. Bóndi bað hann fara og aldrei aftur koma og sagði þá dauða er meiri voru. Hann fór nú burtu og fékk lítinn fararbeina. Hann gengur nú á fjöllin slíkt er af tekur. Nú fer að drífa og versna veðrið. ekki er getið hvörsu lengi hann gekk þar til hann kemur í dalinn sama og bræð- ur hans. Sér hann bæ og gengur þangað og er hann kemur heim er Bragðakall úti. Þórsteinn heilsar honum og spyr að heiti; hann kvaðst Bragðakall heita. Þórsteinn mælti: „Þá muntu vera brögðóttur.“ Kall spyr hann að heiti; Hann segist [Hvekkur] heita. Kall mælti: „Þá muntu vera hvekkjóttur." Tekur nú Þórsteinn sömu kosti og bræður hans höfðu fyrri; passar nú féð hinn fyrsta dag. En er hann kemur heim fer hann að éta og hundurinn með honum. Nú heyrir hann óp einhvörs- staðar. Kall mælti: „Nú gólar sveinninn Kvöldkokkur og verður þú að vitja hans.“ Hinn fer og leitar, finnur ekki og er hann kem- ur er hundurinn búinn. Þetta geng- ur nú nokkur kvöld. Það þykir sauðamanni illt; tekur nú það ráð að hann hnýtir þveng um hálsinn á hundinum, og étur hann minna, hristir sig seinna á morgna [na] og geltir fyrr á kvöldin. Þórsteinn smá- herðir á spottanum. Einn morgun hristir rakkinn sig ekki. Líður nú fram á dag og fer Þórsteinn ekki á fætur. Kall spyr hann því hann liggi. Þórsteinn sagði að hundurinn hefði ekki hrist sig. Kall þreifar nú á hundinum og finnur að hann er Tbni heimapermanent gerir hár yóar mjúkt, gljáandi og meðfærilegt Með Toni fáið pér fallegasta og varanlegasta permanentið. Vegna þess að “leyniefni” Toni heldur lagningunni og gerir hárið svo meðfærilegt, að þér þurfið aðeins að bregða greiðunni í hárið, til þess að laga það. Ekkert annað permanent hefir “leyniefni”. það er eingöngu í Toni. Toni er framleitt i þremur styrkleikum REGULAR fyrir venjulegt hár SUPER fyrir mjög fínt hár GENTLE fyrir gróft hár, skolað og litað hár Emn þeirra er einmitt fyrir yður. Toniframleiðsla tryggir fegursta hárió VIKAN 37

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.