Vikan


Vikan - 29.11.1962, Síða 4

Vikan - 29.11.1962, Síða 4
AIIDVELDARA BÓKHALD HED TAYLORIX Vér erum umboðsmenn á Islandi fyrir Taylorix Organisation í Þýzkalandi, en það fyrirtæki er leiðandi þar í landi í skipulagn- ingu bókhalds o. þ. h. Taylorix gefur út um 200 mismunandi „standard“ bókhaldseyðublöð og bendir á þau tæki, sem hæfa hverri bókhaldsaðferð, en að sjálfsögðu verður hvert fyrirtæki að sníða sér stakk eftir vexti, er það velur sér bókhaldsaðferð og þau tæki, sem við hana eiga. Taylorix hefir á boðstólnum alls konar bókhaldstæki — allt frá handskriftartækj- um til fullkomnustu bókhaldsvéla. Bókhaldssérfræðingur vor mun fúslega leiðbeina stofnunum og einstaklingum við að skipuleggja bókhaldið og velja þær vél • ar og tæki, sem við eiga hverju sinni. Leitið nánari upplýsinga. VÉLADEILD S.Í.S. Kæri Póstur! Ég er einn þeirra, sem lásu Mynd sálugu á hverjum degi, og þótti skarð fyrir skildi, þegar hún hætti að koma út. Ég heyrði um daginn ágæta vísu um Myndina, og hún er svona: Enn sem fyrr er öldin blind á allt sem góðu lofar. Það veit drottinn, það var synd, þetta hvernig fór með Mynd, hún sem var þó öllum flokkum ofar. En mér þykir leitt að sjá, að þau hin sömu blöð og ýmist þögðu Mynd í hel eða lögðu illt til hennar, hafa nú lagzt á hræið og tileinkað sér margt af því, sem Mynd var með nýtt. Mánudagsblaðið tók upp sjón- varpsdagskrána, sem pólitísku blöð- in þora ekki að vera með, Tíminn tók að staðmerkja og dagsetja allar sínar fréttir, líka þær, sem skrif- aðar eru í Reykjavík, og sama blað hefur nú tekið að birta auglýsingar upp með forsíðuhausnum! Getur enginn fengið að eiga neitt í friði, jafnvel ekki eftir dauðann? íþróttir og kallast íþróttamenn, að það er tvennt ólíkt, íþróttamaður eða íþróttamaður. Það er ekki nóg að hafa atgervi íþróttamanns, það verður líka að hafa anda hins sanna íþróttamanns til að geta kallazt íþróttamaður. Eitt það, sem verður að krefjast af þeim mönnum, sem vilja teljast íþróttamenn, er að þeir kunni að bíða lægra hlut. Ef dæma má af blöðunum, þá er þessum íþróttaköppum ýmislegt ábótavant í þeim efnum. Ég skal auðvitað ekki segja, hvort það eru blöðin, sem skortir íþróttaanda — mig langar einungis til að uppræta þetta mein hvar sem það er að finna. Þegar íslenzk íþróttalið keppa við erlend, keppast blöðin hér hvert í kapp við annað við að finna íslenzka liðinu eitthvað til málsbóta, hversu hrak- smánarlegur sem ósigurinn hefur verið. Ef svo óvenjulega fer hins vegar, að íslenzka liðið vinni, þá er hinn íslenzki sigur hafinn upp til skýjanna sem íþróttaafrek ald- arinnar. Ég vil að vísu taka það HH. -----— Ég verð að segja, að þau blöð, sem tóku eitthvað upp eftir Mynd, hafa gefið blaðinu visst komplíment með því. Auk þess veit ég ekki til, að Mynd hafi átt nein einkaleyfi á þessum nýj- ungum sínum, og það væri and- skoti hart, ef ekki mætti apa neitt af þessum nýjungum upp eftir Mynd sálugu — andskoti hart ef eitt hræ af blaði stæði framförum og betrumbótum ann- arra blaða fyrir þrifum. — Þessi orð stæðu ekki hér á þessum pappír, ef Gutanberg gamli hefði verið látinn í friði með sína prentvél eftir dauðann. Kæri Póstur. Hvernig stendur á því, að fólk er of fínt til þess að klæða sig vel, þegar kalt er? Ég hef verið að veita því athygli, að í kuldunum í vetur hafa karlmenn yfirleitt verið ■ í blankskóm og frakka, í mesta lagi með hatt og trefil, en annars með rauðan háls, nef og eyru og vara- herpu. Þeir sem hafa átt fína fingra- vettlinga eða skinnhanzka hafa not- að þá, aðrir gengið með berar, rauð- ar og bláar krókloppur. Og kven- fólkið tiplar um í pilsum, sem ná niður að hné, nælonsokkum utan yfir litskrúðugum fótleggjunum, sem annars gætu verið fallegir, stuttjökkum, flegnum að framan með skýluklút. Hvar eru nú íslandsúlpurnar, sem voru svo vinsælar hjá kvenfólki og karlmönnum hér fyrir skemmstu? Einn, sem fer ekki úr úlpunni. —------- Alveg sammála. Annars hef ég dálítið gaman af þessum lúmsku auglýsingum, sem smeygt er inn í „Póstinn“ stöku sinnum. íþróttaunnandi ... Kæri Póstur. Mig langar til að benda þeim mönnum, sem vilja kenna sig við —- Ekki nota sporana. Hann kitlar. — Vertu ekki svona andskoti lofthræddur, maður!

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.