Vikan


Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 5

Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 5
jmiWM fram, að íslenzkir ahorfendur hafa stórum batnað hvað þetta snertir, og virðast þeir orðið kunna að meta það, sem vel er gert, hvort sem land- inn er þar að verki eða ekki. En blöðin -— nei, þau sætta sig aldrei við íslenzkan ósigur eins og sigr- uðum sæmir. Erlent lið þarf að standa sig með afburðum vel til að fá lof blaðanna. En aðaltilefni þessara skrifa :minna er samt flennifyrirsögn á- samt greinarkorni í Vísi fyrir skemmstu. Var þar til umræðu ein- hver körfuknattleiks-landsleikur (að ■ég held), sem reyndar var aldrei háður vegna tafa. En íþróttamenn- irnir okkar létu hafa það eftir sér, ,að þeir HEFÐU unnið leikinn með ,svo og svo miklum stigamun, ef leikurinn hefði farið fram. Þarna fannst mér fyrst kasta tólfunum. Menn, sem láta hafa slíkt eftir sér og telja sig íþróttamenn, kasta rýrð ■ á alla íþróttamennsku. Yfirlýsingar sem þessar eru langt fyrir neðan virðingu þess, sem vogar að kalla sig íþróttamann. Mér finnst það beinlínis grundvallarkrafa, að í- þróttamaður virði og meti andstæð- ing sinn og kunni að taka ósigri eins ■ og manni sæmir. Með kærri þökk fyrir birtingu. Lómi. Jólasálmarnir og börnin ... Kæri Póstur. Senn líður að jólum, og börnin eru strax farin að hlakka til. Ég var svolítið að spekúlera í jólunum í gærkvöldi og datt þá í hug svo- lítið, sem ég hef alltaf viljað koma á framfæri, en aldrei lagt í fyrr ■en nú. Það eru blessaðir jólasálmarnir okkar. Mér finnst satt að segja, að það sé illa farið með blessuð börn- in okkar að bjóða þeim upp á þessa sálma, sem hvað mest eru sungnir, og eru þá efst á baugi „Heims um ból“ og ,,í Betlehem er barn oss fætt“. Ég á ekki við sjálf lögin — þau eru ágæt, hátíðleg og auðlærð hverju barni. En það eru textarnir — — ég efast satt að segja um að meðalgreint fullorðið fólk geti túlk- að textana við þessi jólalög, og finnst mér þar af leiðandi fjári hart að bjóða börnunum slíkt. Að vísu má kannski segja, að textinn skipti ekki mestu fyrir barnið, en ég verð að segja, að sálmurinn gæfi barninu óneitanlega meira gildi, meiri fyll- ingu, ef það skildi hann og hefði ánægju af. En ég þori að veðja, að það skilur ekkert barn undir tólf ára aldri að fullu textana við þessi tvö vinsælu jólalög. Væri ekki ráð að búa til auð- skilda texta við þessi ágætu lög, þannig að börnin trítluðu ekki á hverjum jólum í kringum jólatréð kyrjandi lög fullum hálsi við texta, sem þau botna hvorki upp né nið- ur í. Jólin eru hátíð barnanna, en þarna finnst mér einmitt börnunum misboðið. Mamma. Aur og þvottur. Kæri Póstur. í dálkum þínum hefur verið minnst á mörg vandamál okkar þjóð- félags,og hefur það að því er virð- ist oft orðið til þess, að þeir, sem ráða eiga bót á vandamálunum hafa rumskað við. Nú vildi ég biðja þig að koma því á framfæri við bæj aryfirvöldin, að þau komi upp bílaþvottaplönum víðar en nú eru til. Eg held, að ég fari með rétt mál, að engir aðrir eigi bílaþvottaplönin í Reykjavík en olíufélögin, og þeirra plön eru oftast full, þegar manni ríður mest á að geta þvegið bílinn sinn. í haust, þegar drullan á göt- unum náði upp á miðjar felgur, og maður gat ekki ekið hálfan dag án þess að ■ skíta bílinn svo mikið út, að ekki sá í lakkið, — ekki einu sinni á toppnum, — var hvergi hægt að komast að á þvottaplani nema með langri bið. Mér finnst það vera skylda bæjarins, meðan ekki er hugsað betur um göturnar en nú er gert, að sjá okkur fyrir sóma- samlegum þvottaplönum víðar en er og stærri en eru yfirleitt á þessum plönum og heilli slöngur en þessar, sem þvo mann sjálfan fremur en bílinn. Snarfari. TMá ég leggja þér ráð? Fáðu þér drullusokka á bílinn, vatns- fötu og góðan kúst — vandamálið leyst. Hart ... hratt ... Kæra Vika. Ég ætla að biðja þig um að gjöra svo vel að koma á framfæri fyrir mig spurningu til fræðsluyfirvald- anna, sem ég hef velt mikið fyrir mér. Ég á lítinn strák, sem er að læra að lesa í barnaskóla, og að sjálf- sögðu hjálpa ég honum heima við að stafa og lesa undir skólatímann. Hann hefur fengið með sér lestrar- bók, útgefna af Ríkisútgáfu náms- bóka, sem öll börn eiga að nota og læra eftir. Mér dettur ekki í hug að halda því fram, að ég sé öðrum fremur vel að mér í íslenzkri málfræði eða stafsetningu, en þó hef ég ekki komizt hjá því að taka eftir a. m. k. einni meinlegri og ljótri villu í þessari virðulegu bók, sem ég hef hvað eftir annað staðnæmzt við og tekið mér tima til að leiðrétta við son minn. Þessi sama villa er end- Framhald á bls. 49. Jfekk Austurstræti 14. Sími 11687. Kelvinator Áratuga reynsla tryggir yður óvið- jafnanlegan kæliskáp að ytra útliti, hagkvæmni og notagildi. - Hagsýnar húsmæður um víða veröld velja KELVINATOR kæliskápinn. 6 og 7.7 cub.ft. fyrirliggjandi. 5 ára ábyrgð á mótor, árs ábyrgð á öðrum hlutum skápsins. - Viðgerða- og varahlutaþjónusta að Laugavegi 170. Sími 17295. AFBORGUN ARSKILMÁLAR.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.