Vikan


Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 12

Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 12
HARAKIRI OG HANAAT • strákunum og kveiktu í slgarettun- um fyrir þá. VitS spurðum, hvort þeim fyndist þetta ekki leiðinlegt starf, en þær sögðu að þetta væri aðalatvinna margra kvenna áður en þær giftust, eftir það sæktu þær aldrei skemmtistjaði. Þeiim fannst það vera sérstakur heiður fyrir okkur að strákarnir skyldu taka okkur með. Vændi er leyft i Japan og virðist mikið stundað eftir kl. 10. Á kvöld- in eru sett upp neon-skilti fyrir utan vændishúsin og miðum dreift til vegfarenda á aðalgötunum. Evrópustúlkan verður skelfingu lostin að komast að raun um, hversu konan er metin lágt. Ég dvaldist í Japan um jólin og nýjárið. Jápanir eru afskaplega Olga Ágústsdóttir, höfundur trúræknir, þeir eru flestir Búddha- trúar og halda ekki hvíldardaginn Iiátíðlegan né jólahátfðina. Við fór- um að verzla á jóladag, en verzlan- ir eru opnar alla daga vikunnar til 10 á kvöldin. í einstaka verzlun mátti sjá lítilf jörleg jólatré með glingri, ananrs var eins og þeir hefðu ekki hugmynd um að það væru jól. Nýjárið er þeirra liátið og þá fara allir í musterin. Börnin eru klædd í kimono og allar stúlkurnar með blóm í hári. Yfir hverjum hús- dyrum er sveigur úr sefi og bambus og í liann fesíar mandarínur. Þetta greinarinnar, með gamla pagóðu í baksýn. á að tákna góðæri heimilisins. í musterunum hafa munkarnir ekki við að skrifa bænir fyrir fólk, en bænirnar selja þeir fyrir nokkra skildinga. Bænunum er svo fleygt í kassa með óskaplegu muldri, en þeir sem rómantískari eru, festa þær í trjágreinarnar í musterisgarðinum. Reykelsisilmurinn barst að vitum okkar og bjölluhljómur munkanna, ásamt bænamuldri, fyllti loftið. Við vissum ekki hvað við áttum að gera, en gættum þess að vanvirða ekki he'gistaðinn. Við gengum upp þrep- in á aðalmusterinu, en héldum svo kyrru fyrri, þar sem allir tóku af sér skóna. Ég gægðist inn um gluggann á einu herberginu. Þar sátu konurnar á hnjánum fyrir framan ættartöflurnar, hneigðu sig í sífellu um leið og þær gengu aftur á bak út úr herberginu. Mér fannst þetta ósköp skrítið a’lt saman og afar ólíkt jólamessunni i Dómkirkj- unni heima. Ég Iiafði litla hugmynd um Filipps- eyjar, vissi að þær lágu skammt frá Borneo og síðan ekki söguna meir. Fyrstu kynnin voru þau, að hitinn jókst að mun og siglt var upp að strönd vaxinni þéttum frumskógi. Einstaka fleytur bar fyrir augu. Það voru trjábolir, holir að innan, með bambusstöngum þvert yfir til þess að fleytan héldi jafnvægi, og réru þeim 1—2 malajar. Þega skipið lagðist að hafnargarð- inum, var þar fyrir múgur og marg- menni, sem lirópaði, æpti og öskr- aði. Bærinn hét Tacloban. Hann kom mjög við sogu á stríðsárunum, ])egar Mac Arthur gerði innrás sína í Japan, og hefur verið reistur þar stór minnisvarði. Tvisvar hefur bær- inn eyðzt af eldi og verið endur- byggður, ef svo mætti kalla það, því fljótt á litið leit hann út eins og hrófatildur. Kofarnir voru byggðir úr pálma- blöðum og sefi, og stóðu á fjórum fótum. Undir þeiin var s\o venju- legt að sjá stórar gyltur með fjölda grísa og hænsn, sem virtust vera helzta fæða bæjarbúa. Á markaðstorgi. Eftir að hafa náð i „taxa“ eða asnakerru með ökusveini, var hald- ið á markaðstorgið. Þar var líf og fjör í tuskunum og kenndi margra grasa. Tannlausar kerlingar með munninn eldrauðan af betel sátu flötum beinum á götunni og buðu strámottur til kaups. Hænsnin lágu i kippu á götunni, bundin saman á fótunum og virtust vera dauð, en ef spyrnt var við þeim með fætinum kom í Ijós að þau voru bráðlifandi, börðu vængjunum og görguðu. Skammt frá var kona að selja hæn- urnar reyttar, hún sleit af þeim lifandi eina og eina fjöður, og draup blóðið af veslings fuglinum. Þar sem vefnaðarvara var seld höfðu eigendurnir gerzt þreyttir í hitanum og lágu og sváfu eins og hráviði innanum rósótta strang- ana. Þeir voru sarnt furðu fljótir að ranka við sér ef einhver nálg- aðist. Margvíslegir ávextir fengu vatnið til þess að koma fram í munninn, en þegar komið var þangað sem kjótið var selt, dró heldur úr lyst- inni. Þar var flugnasveimurinn svo þéttur að vart mátti sjá í kjöt- ið og karlarnir stóðu gleiðbrosandi með miklar sveðjur á lofti og brýndu af kappi. Einn góður vinur minn sagði frá því scinna, að hundakjöt væri oft borðað i veizlum og þætti hið mesta hnossgæti. Mikið fjör var i viðskiptum, prútt- aði hver sem betur gat, æpti og öskraði. Fal egar stúlkur og blóð- heitir „gæjar“. Þcgar kvölda tók var haldið á Framhaid á bls. 41.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.