Vikan


Vikan - 29.11.1962, Qupperneq 26

Vikan - 29.11.1962, Qupperneq 26
ÞESSAR MYNDIR VÆRI VAFALAUST HVERGI HÆGT AÐ TAKA NEMA Á ÍSLANDI. ÞÆR SÝNA ÞÁ STÓRKOSTLEGUSTU UMFERÐARÓMENNINGU, SEM NOKKURS STAÐAR ER TIL — DAUÐADANSINN Á GÖTUNUM. ÞAÐ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ KENNA FÓLKI AÐ GANGA. KUNNA EKKI iiíwííiíS'- SÍNUM Það er eins og það sé hreint alveg sama, hve oft og mikið er rætt og ritað um þá furðulegu umferðarómenningu, sem liér er í Reykjavík, og þá sérstaklega hjá gangandi fólki. Ráðstafanir til að betrumbæta það ástand, sem ríkir í þessum mólum hafa engar verið gerðar, og ekki er að sjá að neinar slíkar fram- kvæmdir séu í undirbúningi. Umferðarslys verða svo til á hverj- um degi í bænum, og oftast er það gangandi fólk, sem verður fyrir slysum eða er orsök til þeirra. Þau dauðaslys, sem hér verða í umferðinni, verða einnig oftast á gangandi fólki, og þá helzt að börn verða fyrir þeim,því að þau hafa ekki haft tíma til að læra þá furðulegu íþrótt, sem fullorðna fólkið stund- ar alla daga, — að dansa dauðadans milli bílanna á götunni. Það er með umferðarmenningu — eins og alla aðra menningu — að hún er ekki ásköpuð, heldur verður að lærast, og hér á landi er óhætt að segja að slík kennsla sé hvergi fyrir hendi. Það tekur því varla að mínnast á þær örfáu stundir, sem sumir barnaskólar hafa til að kenna börnum umferðarmál, og önnur göngukennsla er ekki til, enda ber umferðin því greinilegt vitni. Öll áherzla virðist á það lögð hjá lögreglunni að tukta til þá sem hafa lagt í það vafasama fyrirtæki að aka bílum hér á götunum, kenna þeim, amast við þeim, skamma þá, kæra þá, dæma þá og hver veit hvað. Og ef bíll og maður rekast saman, þá er það fyrirfram vituð staðreynd að það er allt saman bílstjóragarminum að kenna, — sama hvers konar indíánadans sá fótgangandi hefur dansað í kringum bílinn. Það er orðið eitt af stærstu og ábyrgðarmestu hlutverkum bílstjóranna hér í bæ að bjarga mannslífum.án þess að fá nokkur lietjulaun fyrir, og lítið ekur sá maður eða kona,sem ekki getur stært sig af því með góðri samvizku að hafa bjargað tugum mannslífa með því að hafa vit fyrir götudönsurum bæjarins. Kunningi minn einn hefur sagt mér frá því, er hann var staddur í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum, að hann stóð við fjölfarin gatnamót og beið eftir grænu ljósi til þess að komast yfir. Bílarnir geystust framlijá á fullri ferð, stórir og þungir vöruflutningabílar og minni bílar á milli. Þegar augnablikshlé varð á umferðinni, hljóp drukkinn negri út á götuna og ætlaði sýnilega að freysta þess að komast yfir. Hann var ekki kominn nema hálfa leið, þegar hann hrasaði og datt á götuna. Geysi- stór flutningabíll kom á fleygiferð og stefndi á hann. Hann var

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.