Vikan


Vikan - 29.11.1962, Side 28

Vikan - 29.11.1962, Side 28
AÐ KUNNA EKKI FÓTUM SÍNUM FORRÁÐ samt það langt í burtu að bílstjórinn hefði getað stanzað áður en hann kom að mann- inum. Bíllinn hægði aðeins á sér, en þegar það nægði manninum ekki til undankomu — ók hann yfir manninn, sem lézt á stund- inni.Bíllinn ók áfram þar til hann kom að útskoti í veginum, og þar stanzaði hann fyrst. Bílarnir, sem á eftir komu, óku áfram eins og ekkert hefði í skorizt, og flestir yfir lík mannsins. Þegar grænt ljós kom á gatna- mótin, hljóp lögregluþjónn til og dröslaði líkinu yfir á gangstéttina, þar sem það var svo hirt síðar, — en umferðin hélt áfram eins og ekkert hefði í skorizt. Lögregluþj ónninn sagði kunningja mínum að sennilega mundi bílstjórinn ekki verða sakaður um neitt, því ef hann hefði stöðvað bíl sinn til þess að maðurinn kæmist yfir götuna, hefðu yfirgnæfandi líkur verið fyrir því að stórkostlegt slys hefði orðið þarna, þegar bílarnir, sem á eftir komu, hefðu ekið hver á annan. Sennilega hefði bílstjór- inn með snarræði sínu — að aka yfir mann- inn — bjargað mörgum mannslífum. Hér í Reykjavík hlaupa menn þvert fyrir bíla, hvenær og hvar sem er án þess að hugsa sig um tvisvar, bara ef þeir halda að það sé þægilegra að ganga á gangstéttinni hinum megin við götuna, — eða jafnvel bara að gamni sínu. Þessi saga frá Banda- ríkjunum var ekki sögð alveg út í bláinn. Það hefur komið fyrir oftar ,en einu sinni og oftar en tvisvar, að gangandi fólk hefur hlaupið fyrir bíl og valdið með því slysi á öðrum, þegar vesalings bílstjórarnir hafa gripið til örþrifaráða til að forða slíkum línudönsurum frá bráðum bana. Sjálfur hef ég þurft að aka á annan bíl með vilja, aðeins til að forða óforskömmuð- um drengrindli frá slysi. Piltunginn þóttist eiga allan heiminn og gott betur, og gekk í veg fyrir bílinn við gatnamót í glóandi hálku, ■— í brekku þar að auki. Og hann var hreint ekkert að flýta sér. Ef hann hefði gengið aðeins greiðara yfir götuna, hefði ég komist hjá nokkur þúsund króna útgjöldum, en honum lá ekkert á. • Svo hló hann á eftir, þegar hann sá hvern- ig komið var. Þegar slíkt kemur fyrir er engin furða þótt maður verði máttlaus af reiði. Og svo er vitanlega vita-tilgangslaust $jij| að kæra slíkt fólk, því að það er ávallt í rétti. Bílstjórar eiga alltaf að vera barnapíur , fyrir vesalings fólkið, sem aldrei kann fót- um sínum forráð. Ekki 'svo að skilja að þeir, sem aka bílum, sé neitt betri en aðrir, þegar þeir fara gang- andi út í umferðina. Þá skipta þeir um ham á samri stundu, og formæla öllum bannsett- um bílstjórapeyjum, sem halda að þeir eigi alla götuna. Og satt er það að ekki eru allir bílstjórar heldur algjörir englar í akstri, — en- það er þá bara þeim sjálfum fyrir verstu, því þeir fá þá fyrr eða síðar að kenna á því. Þetta ástand í umferðarmálum er algjör- lega óþolandi, og á því er rnjög brýn nauð- syn að eitthvað sé gert til þess að bæta úr því. Það er ekki nóg að tala og skrifa, en það getur kannski hjálpað til. Það verður að segjast að þarna á lögreglan svo til alla sök, því það er eins og lögregluþjónar loki viljandi augum fyrir öllum brotum gangandi fólks á umferðalögum. Þó eru slíkar reglur til, en aldrei hirt um að fara eftir þeim, né sjá um að þær séu haldnar. Það er rétt, að það kostar mikla vinnu, fyrirhöfn, útgjöld, þolinmæði og alls konar reks og umstang. En til þess eru reglurnar, og til þess er lög- reglan, að þetta sé öðruvísi en raun er á. Það er ekki nóg að hamast í nokkra daga í einu og „leiðbeina" fólki um það hvernig Framhald á bls. 51.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.