Vikan


Vikan - 29.11.1962, Síða 29

Vikan - 29.11.1962, Síða 29
Það kom sorpbíll með tveimur mönnum akandi eftir veginum, og ég leit, líklega í hundraðasta skipti, á armbandsúrið. Klukkuna vantaði þrjár mínútur í tíu. Eftir nákvæm- lega fimm mínútur mundi Fidel Castro aka hér fram hjá á leið til skrifstofu sinnar. Það voru því varla tíu mínútur þar til bíll hans mundi vera kominn í rúst og allir í honum orðin blóð- ug lík, sundurtætt af vélbyssuskot- hríð og handsprengjum. Hver taug í líkama mínum var þanin til hins ítrasta þar sem ég stóð og beið í byggingu einni gegnt Balalaika-veitingahúsinu í Havana. Ég var einn af þeim sex mönnum, sem stóðu að því, að gera þessa ferð Castro að hans síðustu. Fremsti maðurinn í hreyfingunni var Ceri- ello — mér er óhætt að nefna nafn hans núna, því að hann er dáinn og átti enga ættingja á Kúbu, sem yrðu látnir gjalda verka hans. Næst- ir honum voru Ramon og Carmina, ég var sá fjórði, og síðan tveir fyr- ið neðan mig. Við stóðum þarna sex í röð, þrír mín megin á götunni og hinum megin aðrir þrír, og bið- um eftir manninum, sem við vild- um feigan. Ég brýndi fyrir sjálfum mér að hugsa um Salvador og að minnast hundruðanna, sem látið höfðu lífið fyrir skothríð Castromanna, þús- undanna, sem þjáðust, og framtíð ættlands míns — minnast alls þessa og hika hvergi. Salvador var bróðir minn. Fyrir rúmu ári síðan hafði hann verið skotinn af liðsmönnum Castro, þeg- ar hann ásamt fleirum, sem höfðu verið handteknir, reyndi að flýja á leið til fangelsisins. Þeir vissu allir, að éftir að þangað væri kom- ið, ættu þeir ekki afturkvæmt, hvort sem þeir væru sekir eða saklausir. Þeir hefðu verið þvingaðir til að játa eitthvað á sig, hvað sem var, til að losna við þær pyndingar, sem allir voru beittir, sem ekki fengust til að viðurkenna þátttöku sína í uppreisninni gegn Castro og stjórn hans. Bróðir minn og fleiri reyndu því að komast undan, en voru sundurskotnir af vélbyssuskothríð á flóttanum. Ég leit aftur á klukkuna. Nú var hún að verða tíu, og ef upplýsingar okkar væru áreiðanlegar og hægt væri að treysta stúlkunum þremur frá miðstöð uppreisnarmanna, sem njósnuðu fyrir okkur, ætti Castro að vera væntanlegur á hverri stundu. Nú máttu engin mistök koma fyrir, þetta varð að takast í þetta sinn. Síðasta tilraun, sem gerð hafði verið í nóvember síðastliðið ár, hafði mistekizt, og þeir, sem ekki höfðu látið lífið í þeirri viðureign, höfðu allir náðst seinna. Nú kom lögreglubíll eftir þröngri götunni og frá felustað mínura gat ég séð ökumanninn og lögreglu- mann við hlið hans, en í aftursæt- inu voru tveir menn, sem höfðu nánar gætur á umhverfinu meðan bíllinn mjakaðist áfram. En þeir urðu ekki varir við neitt. Nokkrum sekúndum síðar kom lögreglumaður á mótorhjóli og í kjölfar hans birtist svarti, gljáandi bíllinn með kúbanska fánann blakt- andi á krómaðri stöng framan á bílnum. Við stýrið sá ég skeggjaðan öku- mann í móbrúnum einkennisbún- BANA- TILRÆÐI VIÐ CASTRO EFTIR PORFIRIO FLORES FIDEL CASTRO ER AF MÖRGUM HYLLTUR SEM BJARGVÆTTUR ÞJÓÐAR SINNAR. EN ÞAÐ ERU AÐRIR KÚBUBÚAR, SEM BERA TIL HANS BEISK- AN HATURSHUG, OG ÞANN NÍUNDA APRÍL Á ÞESSU ÁRI GERÐI LÍTILL HÓPUR MANNA, VOPNAÐUR VÉLBYSSUM, TILRAUN TIL AÐ BINDA ENDI Á EINVELDI HANS. ingi og hjá honum sat hávaxinn maður og hvíldi olnboga á hnjám sér. Ég gat ekki séð hendur hans, en þær héldu án efa á byssu. í þessari fjarlægð gat ég ekki séð inn í aftursætið, en ég vissi að þar hlaut Castro að vera með ein- um eða tveimur lífvörðum sínum. LAUNSÁTUR. Ég hafði aldrei áður drepið mann, þó að ég hefði tekið þátt í bardög- um uppi í hálendinu, þegar ég til- heyrði liði Castro. Það getur verið að ég hafi þá orðið manni að bana án þess að vita það. Það var þá skotið úr launsátri, oft í myrkri og ekki víst hvern maður hitti. En hér gegndi öðru máli. Hér stóð ég sem einn hlekkur í þeim hópi, sem hafði það að markmiði að myrða einvald Kúbu, manninn, sem hafði lofað þjóðinni nýju og betra lífi, en sem hafði, að okkar dómi, gert hið gagnstæða og reynzt verr en sá, sem hann hafði steypt af stóli. Ég horfði á bílinn nálgast vissan stað, sem að vísu var ómerktur á veginum, en þess betur merktur í hugum okkar — það var staðurinn þar sem bíllinn hafði farið fram hjá fyrstu tveimur mönnum okkar og nálgaðist tvo þá næstu. Báðir hóparnir áttu nú að byrja skothríð- ina. Ef eitthvað færi öðru vísi en ætl- að var, ef bíllinn yki hraðann og reyndi að komast frá okkur, átti ég að beina skothríðinni að framrúð- unni, maðurinn á móti mér átti að miða á framhjólin, en mennirnir bak við okkur, sem stóðu lengra upp með veginum, áttu með öllum ráðum að stanza bílinn, ef okkur tækist það ekki. Vinnan var vel skipulögð. Á papp- írnum átti Castro engrar undan- komu auðið, á pappírnum var dauðadómur hans augljós. Nú kom bíllinn á þann hluta veg- arins, sem við kölluðum marka- línuna. Ég leit á klukkuna og hún var eina mínútu yfir tíu, og þá dundi skothríðin yfir. Bíllinn jók hraðann og barðist áfram eins og villtur hestur við að slíta af sér tauminn. Ég miðaði ekki á neitt, en skaut í gegnum rimlagirðinguna, sem ég stóð bak við. Ég gat næstum fylgt gneistunum með augunum þegar þeir hæfðu bílinn. Allt í kringum mig þrumaði skothríðin. Bíllinn beygði til vinstri og lenti á byggingu við götuna, kastaðist aftur frá henni og slangraði eftir veginum, en komst loks aftur á réttan kjöl. Nú miðaði ég nákvæmlega á gluggann við baksætið. Nú hugsaði ég um allar þær ráðagerðir, sem við höfðum verið með, um að losa Kúbu við Fidel Castro, reyna að koma aftur lagi á það öngþveiti, sem hann hafði verið valdur að, og ég hleypti af byss- unni með þeirri einu kaldrifjuðu hugsun: að drepa. Ég hafði verið í mínu öðru föð- urlandi, Haiti, þegar ég hafði feng- ið boð um að koma til þeirrar borg- ar í Guatamala, sem ber sama nafn og ég —- Flores. „Romon Lozana og Jose Cabezas verða á leið frá Gonaives til Puerto Cabezas annað kvöld með tundur- spilli úr stríðinu, sem hefur verið breytt," sagði Pauline Ceriello við Framhald á bls. 44. YIKAN 29

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.