Vikan - 29.11.1962, Blaðsíða 33
Hvíta-Li, hún talaði hins vegar um
Svarta-Li. Ég sá í gegnum hana:
Hún lagði sig eftir — ef ekki elsk-
aði — Svarta-Li. Hana langaði að
vefja honum um fingur sér, gera
hann að öryggisventli sínum. Gæti
hún krækt sér í einhvern „betri“,
myndi hún láta hann sigla sinn
sjó. En fengi hún aldrei betri kosta
völ, gæti hún að lokum gert hann
að lífsförunaut sínum. Þetta fannst
mér einhvern veginn, ég neytti
samt ekki tækifærisins til að koma
þeim saman á ný. Að réttu lagi
hefði ég átt að fara svo að, en
mér fannst of vænt um Svarta-Li,
fannst hann verðskulda að kvænast
himneskri gyðju.
Hjartað í brjósti mínu barðist
eins og trumba, þegar ég fór frá
henni. Hvert hafði Hvíti-Li farið?
Fyrir engan mun mátti ég segja
bróður hans frá þessu. Hann kynni
að auglýsa þegar í stað eftir honum
í blöðunum.
En mér yrði heldur ekki rótt, ef
ég segði honum ekki frá því. Var
ekki of mikil áhætta að finna hann
ekki? Jú, það gat ekki gengið.
Þegar ég kom að skrifstofunni,
heyrði ég hann var að raula eitt-
hvað fyrir innan. Hann raulaði
aldrei nema hann væri sérlega glað-
ur. En það sem hann var vanur
að raula voru ekki almennileg
kvæði, heldur einhver hendinga-
brot sem gátu verið úr hvaða vísu
sem var:
Djúpri inni í dyngjunni
drósin bíður jöðum skrýdd,
enginn finnur saur á hennar faldi.
En þetta sinn var það eitthvað
annað. Ég lagði við eyrun, hann
var að æfa sig að syngja úr sálm-
unum. Hann hafði ekkert lageyra,
kom í sama stað hvaða lag það var,
þau hljómuðu öll eins í hans eyrum.
Auðvitað var það ævinlega sama
lagleysan sem hann söng. Hvað sem
því leið, var hafið yfir allan vafa
að hann var í sérlega góðu skapi.
Af hverju lá svona vel á honum?
Hann flýtti sér að leggja sálma-
bókina til hliðar, þegar hann sá
mig koma inn og sagði himinlif-
andi: „Þú komst eins og kallaður,
■ég ætlaði einmitt að fara að finna
þig. Bróðir var hérna rétt áðan.
Fékk lánaða þúsund dali. Minntist
ekki á að skipta, ekki einu orði.“
Augsýnilega hafði hann ekki
spurt, til hvers þessir peningar
voru ætlaðir. Annars væri hann ekki
svona sæll. Hann skipti sér ekki
af, hvað bróðir hans aðhafðist, bað
hann aðeins að búa áfram með sér.
Eins og hann væri ugglaus um,
hversu hættuleg áformin kynnu að
reynast, aðeins ef þeir skildu ekki
skiptum. Þetta gat ég séð mjög ljós-
lega.
„Bænirnar flytja fjöll,“ sagði
hann með þunga, „undanfarna daga
hefi ég daglega beðizt fyrir, enda
minntist bróðir ekki á það. Þó hann
henti peningunum í sjóinn, ætti ég
þo alltjent eftir bróður."
Ég stakk upp á við drykkjum sitt
staupið hvor af „lienhvabæ" eins
og við vorum vanir. Hann hristi
brosandi höfuðið: „Þú mátt drekka,
ég fæ mér te til samlætis, ég er far-
inn í vínbindindi."
Ég drakk ekkert vín, þorði held-
ur ekki að segja honum ég hefði
leitað bróður hans án árangurs.
Enda engin þörf að segja honum
það, fyrst hann var nú kominn í
leitirnar. En ég minntist á ,,hana“.
Hann svaraði engu til, bara brosti.
Það virtist ekkert fleira að segja
um þau — ,,hana“ og Svarta-Li.
Hann sagði mér nokkrar sögur úr
Biblíunni. Ég gerði bæði að hlusta
og hugleiða með sjálfum mér, mér
fanst afstaða hans til bróður síns
og unnustunnar ekki með öllu rétt,
en ég gat ekki fundið í hverju það
lá. Mér var ekki með öllu rótt á
leiðinni heim.
Enn liðu fjórir fimm dagar, þró-
un mála olli mér stöðugum kvíða.
Eitt kvöld kom Wang Wú, hann dró
mannreið fyrir Li heimilið, hafði
gert það í fjögur ár.
Wang Wú var heiðvirður, áreið-
anlegur maður, rúmlega þrítugur
að aldri. Hann hafði ör á höfðinu,
sagt var að asni hefði bitið hann,
þegar hann var barn. Eini löstur
hans að honum þótti full gott í
staupinu. Þegar hann var drukk-
inn._ þrútnaði örið á höfði hans.
„í hvaða erindagjörðum kemur
þú, Wang Wú?“ Það var einkar gott
milli okkar Wangs; altlaf þegar ég
var í heimsókn hjá Li fjölskyldunni
og varð seinn fyrir, var hann vanur
að hlaupa undir bagga og draga
mig heimleiðis. Auðvitað gaf ég
honum alltaf brennivínsleka að
hressa sig á.
„Rétt til að heilsa upp á þig,“
sagði hann um leið og hann settist
niður.
Ég vissi samt hann var kominn
til að segja mér frá einhverju sér-
stöku: „Ég var rétt að hella á te-
ketilinn. Hvað um tebolla?"
„Það er vel hugsað, fæ mér sjálf-
ur í bollann. Ég var satt að segja
orðinn dálítið þyrstur."
Ég bauð honum vindling og
reyndi að koma honum á sporið:
„Hvað er nú títt?“
„Tja, ég fékk mér tvo snafsa til
viðbótar, mér var órótt inni fyrir.
Að réttu lagi ætti ég að steinþegja.“
Hann blés reyknum í gríð og erg.
„Ef það er varðandi Li-fjölskyld-
una, er áreiðanlega ekki rangt, þótt
þú segir mér það.“
„Ég var líka að velta því fyrir
mér.“ Hann þagnaði stundarkom, en
vínið rak á eftir honum, hann gat
ekki setið á sér að segja það. „Ég
hefi verið reiðdragi Li-anna í fjög-
ur ár og þrjátíu og fimm dögum
betur, en nú er mér vandi á hönd-
um. Eldri Li lætur sér mjög annt
um mig, sá yngri er beinlínis bezti
vinur minn. Hvað á ég til bragðs
að taka? Hvað yngri Li aðhefst, má
ekki segja hinum. Og þó er sá eldri
svo grandvar maður. Segi ég hon-
um frá, skammast ég mín fyrir
yngra Li — báðir eru samt vinir
mínir. Steinþegja, nagar mann inn-
an eins og ormur. Eldri Li er góð-
menni — ekki satt — en hann er
húsúbóndi minn, þegar öllu er á
botninn hvolft. Hversu góður hús-
bóndi sem hann er, þá er hann allt-
af húsbóndi, ekki hægt að leggja
þá að jöfnu sem bræður. Hann læt-
ur sér mjög annt um mig. Til að
mynda þegar ég dreg hann út í
bæ í þessu heita veðri sem nú er,
finnur sér ætíð eitthvað til dund-
urs á miðri leið, kaupa eldspýtur,
líta á bækur eða eitthvað annað,
ekki til annars, eingöngu til að ég
kasti mæðinni og hvílist á meðan.
Því kalla ég hann góðan húsbónda,
hann er góður maður, verður að
virða hann, það er kallað að launa
gott með góðu. Ég er búinn að
slampast það lengi um strætin,
Þér hafið ráð á því bezta
frá Anker Urimport,
■■ : ■' v t’
Send loftleiðis án burðargjalds.
Aðeins fyrsta flokks armbandsúr.
5 ÁRA SKRIFLEG ÁBYRGÐ
Eudursendist innan 3ja vikna — ef yður likar ekki
urið. Hvert úr í fallegum gjafaumbúðuni.
Glæsilegt
karlmannsúr
með sjálv. dagatali.
21 steinn, svissneskt
akkerisgangverk. Bæði
úrumgerðin og Cita-
plexarmbandið úr 14
karata gulldoublé.
118 d.kr. 732 ísl.
A 22
Næfurþunnt
karlmannsúr
með sjálfv. dagatali.
21 steinn, svissneskt
akkerisgangverk.
Bæði úrumgerðin og
og Citaplexarmbandið
úr 14 karata gull-
doublé.
158 d.kr. 980 ísl.
Fegurstu
kvenmannsúr
17 steina, svissneskt
akkerisgangverk,
óbrjótandi fjöður,
Inkablökk höggvari,
bakið úr ryðfríu
stáli. Úrumgerðin og
hin fallegu armbönd
úr 14 karata gull-
doublé.
156 d.kr. 965 ísl
Öll
karlmannsúr
okkar eru:
★ Andsegul-
mögnuð
vatns- og ryk-
þétt
★ með virkum
höggvara
★ með berylium-
jafnvægi
★ með bakskjöld
úr ryðfríu stáli
★ með sjálflýsandi vísum o{ * með
merkjum * með
Afarþunnt
karlmannsúr með
sjálfvirku dagatali.
21 steinn, svissnesk
akkerisgangverk, bæði
umgerðin og Cita-
plexarmbandið úr 14
karata gulldoublé, eða
krómstáli, eftir vali.
138 d.kr. 855 ísl.
A 151
Alsjálfvirkt
25 steina karlmanns-
úr með sjálívirku
dagatali; dregur sig
upp sjálft; bæði um-
gerðin og Citaplex-
armbandið úr 14 kar-
ata gulldoublé eða
krómstáli eftir vali.
172 d.kr. 1.062 ísl.
óbrjótanlegri fjöður
Citoplexarmbandi
TAKIÐ EFTIR! Um leið og þér pantið úrið — farið þér í næsta banka
og sækið um gjaldeyrisleyfi fyrir úrinu. Þér greiðið úrið með þeim
gjaldeyri við móttöku þess.
Holbergsgade 13.
---------------------------Klippið hér-------------------------
I Sendið strax úr nr............. d Gulldoublé □ Krómstál
j Nafn .......................................................
| Heimilisfang ................................. .............
I Sendið seðilinn til ANKER URIMPORT, Holbergsgade 13,
Köbenhavn K. — Danmark.