Vikan


Vikan - 29.11.1962, Síða 40

Vikan - 29.11.1962, Síða 40
nýtt merki — ný snið Heildsölubirgðir: E. VALDEMARSSON OG HIRST H.F. Sími 38062. bonnie Á fóstrið að lifa. Frh. ráða augnabliksgerðum sínum. Þeg- ar þær verða þess svo áskynja að þær eru með barni, finnst þeim veröldin hrynja saman yfir þær. Þær sjá eftir öllu og finna engin önnur úrræði út úr ógöngunum en að losna við fóstrið. Kannski hefur unnustinn yfirgef- ið þær á neyðarstund og þær sjá eyðilagða framtíð sína framundan, — ung og ógift stúlka með barn í eftirdragi. Ekki eru ástæður betri hjá giftri konu, sem hefur látið augnabliks- ástand ráða gerðum sínum, á meðan eiginmaður hennar er fjarverandi um lengri tíma. Það er greinilegt að eiginmaður hennar getur ekki átt barnið vegna fjarveru, og upp- lausn heimilisins er fyrirsjáanleg ef ekki verður eitthvað að gert. Hún þarf e. t. v. ennfremur að taka til- lit til annarra barna sinna, þótt hún hefði að vísu gjarnan mátt gera það fyrr. Ekki verður spornað við orðn- um hlut, en reynt að bjarga því, sem bjargað verður. Svipaða sögu má gera sér í hug- 40 VIKAN arlund um eiginmanninn, sem hef- ur leiðzt út í ástamök með ógiftri stúlku. Líklegt er að hann reyni að losna út úr vandræðunum með því að leggja hart að stúlkunni að losna við fóstrið. Slíkar sorgarsögur gerast oft í okkar þjóðfélagi, við því verður ekki spornað og ekki hægt að loka augunum fyrir því. En þessar ástæður telja lögin ekki fullgildar, og það má lengi deila um það hvort þær séu fullgildar, og það má lengi deila um það hvort þær séu fullgildar frá mannlegu sjónarmiði. ÓLÖGLEGAR AÐGERÐIR HÆTTULEGRI. Það versta við þetta er, að þess- ar ástæður eru oft fyrir hendi, og að ólöglegar fóstureyðingar vegna þeirra eru framkvæmdar, — og það versta við ólöglegar fóstureyðingar er það, að þær eru ávallt hættulegri en löglegar aðgerðir, heilsufarslega séð. Eins og áður er tek.ið fram, getur aðgerðin verið hættuleg vegna þeirra fylgikvilla, sem stundum eiga sér stað. Til þess að sporna við þeim eins og mögulegt er, þarf aðgerðin að fara fram á sjúkrahúsi þar sem læknar fylgjast með heilsufari kon- unnar og hjúkrun er fullkomin. Þar er einnig hægt að svæfa konuna meðan á aðgerðinni stendur, því það mun vera langt frá því að hún sé sársaukalaus. Síðan eru henni gefin viðeigandi lyf til að sporna við bólgum, blóðmissi eða sýkingu. Þegar fóstureyðing er ólöglega framkvæmd, er það venjulegast gert — og sennilega alltaf — á lækningastofu viðkomandi læknis. Hann er þá í flestum tilfellum einn til staðar og hefur ekkert aðstoðar- fólk. Svæfing er útilokuð, því lækn- irinn vill losna við konuna aftur strax og mögulegt er, og hún verður að komast hjálparlaust á brott. Ein og óstudd. Stundum er deyfing við- höfð, en líklega oftast ekki. Senni- legast fá þær lyf hjá viðkomandi lækni til að verjast bólgum — en síðan ekki söguna meir. Ef illa tekst til, er erfitt um vik að snúa sér til læknis og skýra honum frá ástæðum fyrir veikindunum, því það er að sjálfsögðu viðurkenning á ólöglegu athæfi, og hætta á að allt komist upp. Eina bótin er þó sú að læknar hugsa fyrst og fremst um þá skyldu sína að lækna sjúklinginn, en láta upplýsingar um tildrög og fram- kvæmd fóstureyðingarinnar ekki liggja í fyrirrúmi. Hætta er samt á því þegar þannig stendur á, láti konur dragast úr hófi að leita ann- ars læknis, sem getur leitt til alvar- legri sjákdóms en ella. Sérstaklega mun þetta eiga við, ef um bólgur er að ræða, því þær lýsa sér ekki eins áberandi og heiftarlega eins og t. d. blæðingar, og þá reynir konan oft að þrauka svo lengi sem hún getur, Slíkt er ekki ólíklegt að leiði til varanlegrar ófrjósemi, ef ekki hlýzt verra af. Slík fljótaskriftar-aðferð tekur ekki langan tíma, sennilega fimm til tíu mínútur, en eftir það fær konan að jafna sig í nokkrar mínút- ur áður en hún fer. Þá er oftast varla liðinn hálftími frá því að- gerðin hófst. Ef vel tekst til og kon- unni verður ekki meint af, lætur hún sér oft nægja að leggja sig það sem eftir er dagsins — og kannski ekki einu sinni það, svo að í rauninni

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.