Vikan


Vikan - 29.11.1962, Page 45

Vikan - 29.11.1962, Page 45
I I I H I E3 X L_ A. F3 R X -ED I E3 Glæsilegasta húsgagnaverzlun landsins 1æ býður yður SÓFASETX, SÓFABORÐ, BORÐSTOFUSETT, SVEFNHERBERGISHÚSGÖGN, SKRIFBORÐ, SKATTHOL, INNSKOTSBORÐ, SVEFNSÓFA, 1 og 2ja manna, RAÐHÚSGÖGN. Munið okkar fjölbreytta úrval vegghúsgagna. I I I H I BVLAPR VÐ I 2 Hallarmúla — Reykjavík — Sími 38177. þökin, á svalir og rimlagirðingar og skutust úr bílunum inn í dyra- gættirnar til að leita skjóls meðan bardaginn stæði yfir. Við höfðum lokið verkinu. Bíl- flakið lá upp að veggnum og í gegnum brotnar rúðurnar sá ég máttlausa líkama tveggja manna og á bak við bílinn aðra tvo liggjandi á götunni. Skipun okkar hafði ekki hljóðað á það að berjast, heldur aðeins að drepa Castro og flýja síðan tafar- laust, ekki að hætta lífinu að á- stæðulausu eða dvelja lengur en með þurfti til að framfylgja því. Okkur hafði verið sagt að yfirgefa vopn okkar eftir að hafa tekið úr þeim skotin. Foringjar okkar álitu að við hefðum betri möguleika til að sleppa vopnlausir. Ég læddist niður tröppurnar og þar stóð stúlkan mín og beið eftir að fylgja mér á öruggan stað. Hún opnaði bakdyr og litaðist um og benti mér síðan að fylgja sér. Ég var kominn hálfa leið yfir götuna þegar ógurleg sprenging kvað við, það var eins og eldar vítis hefðu teygt sig hingað upp. Eitthvað hitti mig í bakið og ég skall á andlitið. Ég reyndi að rísa upp, en gat það ekki. Ég byrjaði að skríða, en svo fann ég að stúlkan tók um úlnliði mína og dró mig inn í húsið. DAUÐAHALD í LÍFIÐ. Þar var önnur kona fyrir. „Hann er særður,“ heyrði ég að stúlkan mín sagði. Þegar þær tóku mig upp og héldu um handleggi mína og faetur, byrjaði mig að svima. Ég vissi að það mundi líða yfir mig, eða kannski mundi ég deyja, en ég hélt dauðahaldi í lífið og meðvit- undina meðan konurnar báru mig í gegnum húsið og niður einhverja stiga og settu mig síðan inn í eld- gamlan bíl. Ég heyrði vélina fara af stað og ískrið í gírunum og bíll- inn þaut af stað með ofsahraða. Einhvers staðar á þessari trylltu ferð missti ég meðvitund. Ég hafði engar kvalir, en einkennilegt mátt- leysi breiddist um mig allan meðan konan 1 baksætinu strauk mér um hárið og sagði mér aftur og aftur, að þetta mundi lagast. Ég komst aftur til meðvitundar þar sem ég lá á bakinu og heyrði sjávarhljóð skammt frá og raddir. Ég stundi upp beiðni um vatn og stúlka kom með það til mín og lyfti höfði mínu meðan hún lét það renna upp í mig. Það settist mað- ur hjá mér og ég þekkti að það var Lozana. „Þér batnar, Flores,“ sagði hann. „Þú varst skotinn í bakið, en eftir því sem við komumst næst, hefur það ekki snert mænuna. Hreyfðu fæturna og fingurna." Ég gerði eins og hann sagði mér og lyfti vinstra fæti fyrst upp og síðan þeim hægri og hreyfði alla fingurna. „Jæja, guði sé lof,“ hvíslaði Loz- ana. „Við vorum hræddir um að skotið hefði snert mænuna og að þú hefðir lamazt. Nú geturðu verið rólegur, hreyfðu þig ekki. Við skul- um gera allt fyrir þig. Báturinn kemur eftir nokkrar mínútur og þá leggjum við af stað til Nicara- gua.“ Ein konan kom með eitthvað handa mér að drekka. Ég fann bragð af rommi og einhverju beisku, og þegar ég var um það bil að missa meðvitund, heyrði ég hana segja: „Hann sefur í nokkra klukkutíma. Það er vissara, þá hreyfir hann sig ekki.“ Ég kom út úr myrkrinu, sem um- lukti mig og sá að ég lá í hvítu herbergi í mjóu rúmi innan um nokkur önnur rúm, sem litu út eins og spítalarúm. Ég þurfti ekki að bíða lengi þar til maður kom til mín, sem ég þekkti aftur frá Hav- ana, þar sem hann hafði verið lækn- ir. Þegar hann sá að ég var vak- andi, sagði hann: „Hvernig líður þér, Flores?“ og tók um leið um slagæðina. „Mér líður vel núna, læknir,“ sagði ég. „Ég er bara máttfarinn, mjög máttfarinn." Ósjálfrátt fór ég að hreyfa báða fæturna og tær og fingur. Læknirinn sá það og brosti. „Skotið hitti ekki mænuna, Flor- es, til allrar hamingju, og það skað- aði þig ekki alvarlega. Ég náði því út strax og komið var með þig í land í gærmorgun ...“ „Gærmorgun?" kallaði ég. „Hve lengi hef ég verið meðvitundar- laus?“ „Fjörutíu og fimm klukkustundir samfleytt," svaraði hann. „Þú misstir mikið blóð og ég varð að gefa þér blóð tvisvar, en það er engin ástæða til að hafa áhyggjur lengur. Eftir nokkrar vikur verð- urðu orðinn fullhraustur." Ég SKAUT CASTRO. Lozana kom seinna um daginn og færði mér ávexti. Ég spurði hann, hvort hann hefði fengið fréttir frá Havana um dauða Castro. „Ég skaut Castro," kallaði ég. „Ég sá hann og annan mann fara út úr bílnum ...“ Lpzana settist á rúmið mitt. „Mér finnst leitt að þurfa að segja þér það, Flores, en þetta mistókst. Castro er lifandi. Við vitum ekki hvort honum hefur verið gert að- vart um áform ykkar, eða hvort þetta var tilviljun, en þennan dag fór hann ekki þessa ferð. Við erum að reyna fá það upplýst í Havana hvernig á því stóð. Á síðustu stundu varð eitthvað til að tefja hann og hann sendi fulltrúa sinn í staðinn." „En hver var skeggjaði maður- inn, sem fór út úr bílnum? Maður- inn, sem ég drap?“ „Það var maður að nafni Palacio, einn af stuðningsmönnum Castro. Við vitum ekkert um hann og lík- lega hefur hann verið með í ferð- inni, af því að hann líktist Castro svo mjög. Allir, sem hefðu ætlað að drepa Castro, mundu hiklaust halda að Palacio væri Castro og drepa hann í staðinn. Það var líka það, sem þú hélzt.“ Ég er að ná mér eftir sár mín. Aðeins einn af okkar mönnum við veginn varð fyrir skoti og dó, og stúlkan, sem átti að fylgja honum á öruggan stað, segir, að það hafi verið tilviljun að skotið hitti hann. Eftir nokkrar vikur get ég gengið óstuddur og þá líður ekki á löngu áður en ég verð fær um að fara aftur í herdeild mína, er við köll- uðum fyrstu föstu Havana-herdeild- ina. Markmið hennar er að steypa Castro af stóli og gera Kúbu frjálsa. ★ VIKAN 45

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.