Vikan


Vikan - 29.11.1962, Síða 47

Vikan - 29.11.1962, Síða 47
ur þeirra er steiktur á eftir. Þær eru hafðar smáar. Flökin eru gufu- soðin á rist og salti stráð á þau. Tómatsósa er búin til úr fisksoð- inu og jafnað upp með bollu úr smjörlíkinu og hveitinu. Tómatmauk sett í eftir smekk. Fiskflökin lögð á volgt fat og bollunum dreift ofan á þau, brúnuðum og soðnum til skiptis og tómatsósan lögð hér og þar á flökin, þannig að þau verða eins og doppótt af bollunum og sósunni. Afgangurinn af sósunni borinn með. Litaðir farssnúðar: 500 gr fiskfars, 250 gr spínat, 2 rifnar gulrætur, tómatpurré eða humarlitur, smjörlíki, salt. Farsinu er skipt í 2 eða 3 hluta, eftir því hve mörgum litum er ósk- að eftir. Spínatinu blandað í einn hlutann og rifnum gulrótum í ann- an, en tómatmaukinu í þann þriðja. Pottur er hálffylltur af söltu vatni, og lok, sem fellur vel á hann, smurt þykkt með smjörlíki. Farsinu er nú sprautað í litla snúða á lokið. Þegar það er þakið af snúðum er það sett varlega á pottinn. Smjör- líkið bráðnar í hitanum og snúð- arnir detta ofan í sjóðandi vatnið. Þeir eru látnir sjóða í 3—4 mín og bornir fram á heitu fati með kart- öflusalati. Ýmislegt um fiskfars: Rifnir hráir sveppir eru góðir til að blanda í farsið áður en það er soðið og gera það að hátíðamat. Kaldar fiskibollur eru ágætar ofan á brauð með nægu af persilju eða graslauk á. Fiskirönd má skera í sneiðar og hita upp í feiti á pönnu og bera fram með kartöflusalati. Kalt fiskfars er ágætt með majones- sósu og ýmsu kryddi, eins og lauk, persilju, dill, eða kapers. Ef fisk- fars er bakað inni í ofni, verður alltaf að vera lok á forminu, því annars myndast skorpa ofan á því. Andlit í spegli. Framhald af bls. 16. sitt orð og fótmál. Skynsamlegar fortölur auka fremur á tortryggni hans en draga úr henni. Þau vélráð, sem hann telur ofsóknara sína brugga sér, eru fyrir sjónum hans allt of raunveruleg, til þess að hann geti fallizt á, að þau séu einber heilaspuni hans sjálfs. Það er til- gangslítið að sýna slíkum sjúklingi fram á það, hvílíkar reginfjárhæðir sá skari njósnara og launsáturs- manna hlyti að kosta, sem ofsókn- arar hans stefni að honum. Hann myndi ekki rengja tölurnar, held- ur segja, að fjandmenn sínir myndu fegnir leggja' miklu meira í sölurn- ar, ef þeim tækist með því að ryðja honum úr vegi. Það raskar ekki þessari trú hans, þótt hann frá raunhæfu sjónarmiði sýnist ekki vera persónuleiki til að standa í vegi fyrir neinu né neinum. En ef þú grefst vandlega fyrir um — hinn ímyndaða — upphafsmann ofsókn- anna, þá munt þú alla-jafnan finna, Allir á hættu , suður gefur. 4 10-9-6-5-3 V D-7 4 9-8-6-2 4 1 A-7 A D-7-2 N A K-G V K ¥ G-10-8-6-5-4 ♦ G-5 V A ♦ 7 * D-G-10-8-6-5-2 S * K-9-4-2 4 i A-8-4 4 } A-9-3-2 4 * A-K-D-10-4-3 * ekkert Suður Vestur Norður Austur 2 tíglar 3 lauf 3 tíglar 3 hjörtu 4 tíglar pass 4 spaðar pass 6 tíglar pass pass 7 lauf dobl pass pass pass IJtspil laufadrottning. Vestur var fjóra niður doblaða, ellefu hundruð og suður og austur byrjuðu báðir að leita að afsökun, sá fyrrnefndi fyrir að segja sex tígla en sá síðarnefndi fyrir að fórna gegn tapaðri sögn. En þegar vestur upplýsti að hann hefði átt hjartakónginn einspil, sögðu suður og austur í kór: „Nú, var það?“ og brostu af ánægju og feiginleik. Suður sagði að hann myndi hafa unnið sex tígla og fengið 1470, þann- ig að austur græddi 370 punkta. En suður, sem var góður spila- maður, hefði ekki unnið sex tígla. Hann drepur útspilið í borði, tromp- ar lauf með tíunni og tekur tvo hæstu í trompi. Þar eð hann kast- aði spaða í laufaásinn, spilar hann nú spaðaásnum og síðan spaðaáttu. Von hans er sú, að austur eigi K-D eða K-G eða D-G. Það þýðir ekkert fyrir austur að reyna að kasta spaða- kónginum í trompið; það leiðir að- eins til þess að sagnhafi fær fjóra slagi á spaða. Austur drepur því seinna spaða- útspilið og spilar hjarta. Suður, með sigurbros á andlitinu, lætur lágt og fer þar með einn niður. Vestur malar af ánægju og endur- tekur hina gamalkunnu setningu: „Ég átti hjartakónginn einspil“. IVAR ORGLAND: Stefán frá Hvítadal Þetta er fyrra bindi af tveimur. Þar segir frá einhverjum sérstæðasta persónuleika í hópi íslenzkra skálda og listamanna á þessari öld. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS að hann er sama kyns og hinn of-eins bergmal sjuklegra andstæðna sótti. Ofsóknarbrjálæði hefir jafnan nokkurt ívaf af stórmennskubrjál- æði. Samsærismennirnir ætla kannski að hindra það, að ég nái viðurkenningu sem alheimsskáld eða komist til æðstu metorða með þjóð minni. Vélráð þeirra spretta af öfund yfir hæfni minni og köll- un til svo veglegs hlutverks. Og sjúklingurinn samræmir þessa köll- unarhugmynd sína fátæklegustu andlegum og efnahagslegum að- stæðum, að því er virðist áreynslu- laust. Frá sjónarmiði heilbrigðs manns virðast þessar imyndanir fjarstæð- ar, og okkur hættir til að álíta, að hinn sjúki gæti skilið þetta sjálf- ur, ef hann vildi, og látið þannig af villu sinni. En í sálarlífi hans spretta þær af eðlilegum orsökum: Streit- unni milli eðlislægra, vegvilltra hvata og samfélagsbundinnar siða- vitundar. Villa hins ofsóknarbrjál- aða er framar öllu fólgin í því, að hann ætlar það áform og gerðir annarra, sem raunverulega er að- í sálarlífi hans sjálfs. ★ Blind börn. Frh af bls 13- hann gat farið í kvikmyndahús eins og hver annar og fór meira að segja að líta eina aðstoðarstúlkuna á rannsóknarstofunni „hýru auga“! En sagan fékk því miður skjótan endi. Einn góðan veðurdag hvarf kauði skyndilega — og hafði með sér innihaldið úr peningakassa. Nokkrum vikum síðar fannst hann í hópi umrenninga — algjörlega blindur. Dr. Sukhakarn segir frá því, að til þessa hafi tveimur öðrum börn- um verið kennt að sjá í gegnum kinnarnar. Aftur á móti varð ár- angur enginn, þegar reynt var að kenna 75 ára gömlum manni; hann var orðinn of gamall, til þess að hægt væri að dáleiða hann með árangri. Nú vaknar spurningin: Er nokk- ur von til þess, að evrópskir vís- indamenn hefji tilraunir sem þess- ar? Framhald á næstu síðu. VIKAN 47

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.