Vikan - 20.12.1962, Side 17
NY KIRKJA
fKOPAVOGI
Kópavogskirkja er nálega fullgerð. Hún gnæfir yfir á hárri, grýttri
hæð, gædd þokkafullum bogmynduðum línum. Þetta er kross-
kirkja, langskip og þverskip jöfn að lengd. Forsíðumyndin ætti að
gefa hugmynd um gluggaskipan; þeir fylgja bogum allt niður til
jarðar og eru aðal pragt kirkjunnar. Gluggarnir eru með steindu
gleri og hefur Gerður Helgadóttir, listakona, gcrt þá. Þar koma fram
ýmsar kynjamyndir ef vel er að gáð; annars virðist lieildarmyndin
abstrakt. A suðiirgluggum ber mést á rauðum litum og það eru þeir,
sem sjást á forsíðunni. í hinum gluggunum hefur blátt yfir-
höndina og sumsstaðar grænblátt. Kirkjan er afar falleg að
innan; eklcert ljós skín inn annarsstaðar en gegnum þessa
bogmynduðu glugga. Þeir njóta sín bezt, þegar bjart er úti.
Þá er mjög fagurt og stemmingarríkt inni, þegar ljósin eru
slökkt.
Að utan er kirkjan einnig hið fegursta hús og má arkitekt-
inn, Hörður Bjarnason, húsameistari ríkisins, sannarlega vera
ánægður með verkið. Fegurst er kirkjan neðan úr grjótinu;
þá sýnist hún nánast eins og stærsti steinninn í holtinu, sam-
vaxin náttúrunni. Vonandi fær umhverfið að halda sér, hrjúft
og grátt, en það er að sönnu talsvert umhugsunarefni og blóð-
þrýstingsatriði eins og Hörður Bjarnason orðaði það, hvernig
haga skal litum að utan. Sumir vilja hafa kirkjuna gráa eins
og steinana í holtinu, en sumir vilja lielzt sjá hana hvíta.
Þegar þetta er skrifað hefur kirkjan enn ekki verið vígð, en
vonir standa til þcss að það verði gert hinn 10. desember að
Framhald á bls. 39.
VIKAN 17